Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
5. desember 2005 — 329. tölublað — 5. árgangur
JÓLALEST
COCA-COLA
KEMUR EFTIR
5
DAGA
Leitin að paradís
Yfirgefin býli eru ofarlega
í huga Tolla sem
sést á nýopnaðri
myndlistarsýningu
hans.
MENNING 32
ÞORBJÖRG
MÍMISDÓTTIR
ÆTLAR AÐ VERÐA LEIKKONA
Malt- og appelsínstúlkan
er komin í jólaskap
FÓLK 50
GUÐRÚN EVA
MÍNERVUDÓTTIR
SKRIFAR UM FÁGAÐAN HRYLLING
Yosoy er skáldsaga sem
er auðveld aflestrar
MENNING 30
HEIÐAR JÓNSSON
Á uppáhaldshús á
Snæfellsnesi
• hús • fasteignir
Í MIÐJU BLAÐSINS
BJARTVIÐRI SUNNAN TIL
en skýjað og stöku skúrir eða él á
Vestfjörðum og fyrir norðan og austan.
Hiti 0-5 stig með ströndum, hlýjast á
Suðausturlandi.
VEÐRIÐ Í DAG
LÖGREGLA „Ég var að loka hjá mér
þegar ég sá sjúkraflutningamenn
taka manninn upp úr götunni á
laugardagsmorgun. Svo þegar ég
var á leiðinni heim á sunnudags-
morgun fór ég fram hjá þvílíkum
blóðpollum skáhallt á móti veitinga-
staðnum Asíu að það var líkt og ein-
hverjum hefði verið slátrað þarna,“
segir Gunnar Már Þráinsson, einn
af eigendum Kaffi Oliver.
Þessi rúmlega þrítugi maður,
sem Gunnar Már sá, slasaðist
alvarlega um klukkan sjö á laug-
ardagsmorgun eftir að á hann var
ráðist rétt fyrir utan gistiíbúðir
á Laugavegi 18. Var hann fluttur
þaðan á Landspítalann þar sem
liggur á gjörgæslu. Manninum var
enn haldið sofandi í öndunarvél
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Talið er að hann hafi slasast þegar
hann skall með höfuðið í jörðina
eftir árás.
Maður um þrítugt hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
á miðvikudag. Að sögn lögreglunn-
ar hefur árásarmaðurinn ekki áður
komið við sögu vegna ofbeldismála.
Nú er verið að rannsaka tildrög
deilnanna og hafa þegar allnokkur
vitni verið yfirheyrð.
Lögregla og sjúkraliðsmenn
voru komnir á vettvang skömmu
eftir að maðurinn slasaðist en að
sögn lögreglu virtust menn ekki
átta sig á því í fyrstu hve illa mað-
urinn var slasaður.
„Hér eru allar gangstéttir útat-
aðar í blóði á morgnana þannig að
maður veit að einhvern tímann
hlýtur einhver að slasast illa í þess-
um djöfulgangi,“ segir Árni Einars-
son, eigandi gistiíbúðanna.
„Eftir að myndavélarnar voru
settar upp í miðbænum færast
þessi ólæti bara upp Laugaveginn
og nú er þetta orðið að frumskógi
þar sem menn eru barðir til óbóta
um hverja helgi og öskrin og lætin
eru eftir því. Auk þess er tjón af
þessu látum hreint skelfilegt. Bara
um þessa helgi voru brotnar hér
rúður fyrir 600 þúsund krónur,“
segir hann.
Árni segir dugleysi yfirvalda
um að kenna að íbúar og fyrirtæki
þurfi að búa við slíkt ástand og vill
að veitingastaðir sem laða að sér
svona ástand verði sviptir starfs-
leyfi: „Ef einhver kvartar yfir lýs-
islykt eða tillitslausum nágranna
þá er strax brugðist við en ef um
er að ræða veitingastaði þar sem
borgarstjórarnir drekka kaffið sitt
þá fæst ekki rönd við reist.“ - jse
Laugavegur blóði drifinn
Maður um þrítugt liggur þungt haldinn á gjörgæslu eftir líkamsárás á Laugavegi á laugardagsmorgun.
Eigendur fyrirtækja við Laugaveg segja gangstéttir útataðar í blóði eftir helgarskemmtanir.
Magdeburg lá á heimavelli
Alfreðs Gíslasonar og
lærisveina hans í þýska
handboltaliðinu Magdeburg
bíður erfitt verkefni í síðari
leiknum gegn Barcelona
eftir tveggja marka tap
á heimavelli í gær.
ÍÞRÓTTIR 40
BAGDAD, AP Íröksk yfirvöld skýrðu
frá því í gær að þau hefðu flett
ofan af samsæri uppreisnarmanna
um að skjóta eldflaugum að
dómssalnum þar sem réttað verður
yfir Saddam Hussein í dag.
Í yfirlýsingu Mouwaffak al-
Rubaie, þjóðaröryggisráðgjafa
landsins, kemur fram að
samtök sem kallast Herdeildir
byltingarinnar 1920 hafi áformað
árásirnar en leyniþjónustan hafi
komist á snoðir um það. Ekkert
kom fram um hversu margir
hefðu verið handteknir.
Þá var ráðist að Iyad Allawi,
forsætisráðherra bráðabirgða-
stjórnarinnar sem var við völd
þar til í janúar á þessu ári, þar
sem hann var við bænir í hinni
ginnheilögu Ali-mosku í Najaf. Sex
tylftir manna köstuðu að honum
grjóti og skóm en slíkt þykir mikil
óvirðing í Mið-Austurlöndum.
Allawi sagði eftir atburðinn
í gær að augljóslega hefði átt að
ráða hann af dögum eins og Abdul-
Majid al-Khoei, hófsaman klerk
sem myrtur var af æstum múg á
sama stað í apríl 2003. Talið er að
eldklerkurinn Muqtada al-Sadr
hafi staðið fyrir þeirri árás en
litlir kærleikar eru á milli þeirra
Allawi eftir að sá síðarnefndi lét
berja niður uppreisn al-Sadr í
Najaf í ágúst í fyrra. - shg
Íraska leyniþjónustan kemur í veg fyrir stórfellt hryðjuverk:
Hugðust sprengja réttarsalinn
OSLÓARTRÉÐ TENDRAÐ Lúðrasveit Reykjavíkur og Dómkórinn spiluðu og sungu við hátíðlega athöfn er kveikt var á jólatrénu á Austurvelli í
gærdag. Hátt í fimm þúsund manns skemmtu sér ágætlega í góðu veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
IYAD ALLAWI Hann átti fótum fjör að launa
þegar lýður lét skóm og grjóti rigna yfir
hann í Najaf í gær.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Jólin koma í Árbæjarsafn
Á jólasýningu safnsins geta ungir og
aldnir rölt milli húsa og fylgst með
undirbúningi jólanna eins og hann var
í gamla daga.
TILVERA 16
Söfnun fyrir vatni
Sá og sú sem kropið hefur við læk í
íslenskri sveit og bergt af honum hefur
fundið bragðið af sjálfri jörðinni eins
og hún er óspillt og okkur gefin til
varðveislu og nytja.
SKOÐUN 22
BÓKAÚTGÁFA „Ég vísa þessum
samsæriskenningum til föður-
húsanna sem hafðar hafa verið
uppi um ástæðu þess að við förg-
uðum þessum eintökum,“ segir
Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri
Eddu.
Fjölmörgum eintökum af bók
Guðmundar Magnússonar um
Thorsarana var fargað. Greint
hefur verið frá því að það hafi
verið gert þar sem í henni var
kafli sem fjallaði um hjónaband
núverandi eiginkonu Björgólfs
Guðmundssonar og stofnanda
Nasistaflokksins í Bandaríkjun-
um.
„Ástæðan fyrir því að við
förguðum þeim er einfaldlega sú
að þetta var ekki hið endanlega
handrit höfundar þar sem rangt
tölvuskjal hafði farið í prentun,“
segir Páll Bragi.
„Ég veit ekkert hversu mörg
eintök þetta voru eða hvað þetta
kostar fyrr en ég fæ reikning-
inn,“ bætir hann við. Gallinn kom
í ljós áður en bókin fór úr prent-
smiðju. - jse
Bókaútgáfan Edda:
Rangt handrit
fór í prentun
AF VETTVANGI Gistihúsaeigandi segir
Laugaveginn verða að frumskógi um helgar
þar sem menn eru barðir til óbóta.