Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 05.12.2005, Qupperneq 2
2 5. desember 2005 MÁNUDAGUR Snilldartaktar! Nýjasta bók Ians Rankin um lögreglumanninn John Rebus. Enn einn snilldar- krimminn frá Ian Rankin! Besta bók Rankins til þessa og það segir þó nokkuð! – Observer SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - www.skrudda.is FANGAFLUG Þýskir og breskir fjöl- miðlar greindu frá því í gær að flugvélar bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA hefðu ítrekað haft viðkomu á þarlendum flugvöll- um. Condoleezza Rice heimsækir fjögur Evrópulönd í vikunni og má gera ráð fyrir að hún verði krafin svara um fangaflug og leynifang- elsi í henni. Í nýjasta tölublaði þýska viku- ritsins Der Spiegel, sem út kemur í dag, er sagt frá því að flugvél- ar sem sagðar eru á vegum CIA hafi farið í 437 skipti um þýska lofthelgi og lent á flugvöllum í Berlín, Frankfurt og í bandarísku herstöðinni í Ramstein á árunum 2002 og 2003. Upplýsingarnar koma frá þýsku ríkisstjórninni eftir að Vinstriflokkurinn fór fram á að þær yrðu teknar saman. Ekkert kemur fram um erindi vél- anna eða hverjir voru um borð. Þá er því haldið fram í breska blaðinu Mail on Sunday í gær að CIA hafi fengið ótakmarkað leyfi til lendinga á breskum flug- völlum. Máli sínu til stuðnings birtir blaðið myndir af þremur flugvélum sem bendlaðar hafa verið við flutninga á grunuðum hryðjuverkamönnum, en mynd- irnar tóku flugáhugamenn á flug- völlum í Skotlandi í ár og í fyrra. Ein þessara véla er undir smásjá Evrópuráðsins vegna ásakana um að hún hafi verið notuð til slíkra flutninga. Önnur vélin hefur einnig verið ljósmynduð á alþjóða- flugvellinum í Kabúl í Afganistan. Blaðið segir breska varnarmála- ráðuneytið engar skýringar hafa gefið á ferðum vélanna. Evrópuför Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hefst í Þýskalandi í dag en þá munu þær Angela Merkel kanslari hittast. Búist er við að ásakanir um fangaflug og leyni- leg fangelsi sem CIA á að starf- rækja í Evrópu muni verða ofar- lega á baugi en fram til þessa hafa bandarísk stjórnvöld ekkert tjáð sig efnislega um málið. Stephen Hadley, þjóðaröryggis- ráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði í viðtali á Fox-sjónvarpsstöðinni í gær að Rice myndi segja banda- mönnum sínum að ríkisstjórn Bandaríkjanna standi ekki í flutn- ingum á grunuðum hryðjuverka- mönnum til landa þar sem þeir eru pyntaðir. Í viðtali við CNN vildi Hadley ekki svara hvort CIA ræki leynifangelsi í Evrópu, aðeins að Bandaríkjamenn virtu fullveldi þeirra ríkja sem þeir ættu í sam- skiptum við. Dagblaðið International Her- ald Tribune segir í grein á vefsíðu sinni í gær að stóra spurningin í öllum þessum umræðum hljóti að vera hversu mikla vitneskju stjórnvöld í umræddum ríkjum hafi haft um fangaflutningana og leynifangelsin. Því sé ekki víst að leiðtogar Evrópuríkjanna vilji þjarma of mikið að Banda- ríkjamönnum því þá gæti um leið komið í ljós að þáttur þeirra í mál- inu sé meiri en þeir hafa hingað til haldið fram. sveinng@frettabladid.is CIA notar breska og þýska flugvelli Flugvélar á vegum CIA virðast margoft hafa farið um breska og þýska flugvelli á ferðum sínum með grunaða hermdarverkamenn. Málið verður eflaust ofar- lega á baugi í Evrópuför utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem hefst í dag. RAMSTEIN Þýska vikuritið Der Spiegel heldur því fram að flugvélar á snærum CIA hafi í 473 skipti farið um þýska lofthelgi og lent á þarlendum flugvöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Slagsmál á Herðubreið Einn þurfti að gista fangageymslur lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að ólæti brutust út á dansleik í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði. Rúða var brotin í íbúðarhúsi og ryskingar voru í bænum sem taldar eru tengjast dansleiknum. Einn var tekinn grunaður um ölvunarakstur eftir dansleikinn. Minniháttar meiðsli urðu á fólki. Órói í miðbæ Reykjanesbæjar Lögreglan í Reykjanesbæ þurfti að hafa nokkur afskipti af mönnum vegna ölvun- ar og slagsmála í miðbænum á aðfara- nótt laugardags. Nokkrir hlutu skrámur og beinbrot. Lögregla handtók engan vegna slagsmálanna en tveir voru látnir sofa úr sér í fangageymslum. LÖGREGLUFRÉTTIR WASHINGTON, AP Stephen Hadley, þjóðaröryggisráðgjafi George W. Bush Bandaríkjaforseta, vildi ekki staðfesta að einn þeirra fimm manna sem féllu í árás pakist- anskra hermanna á fimmtudaginn sé Hamza Rabia, yfirmaður al- Kaída í Pakistan. Pakistanskir ráðamenn full- yrtu í fyrradag að óyggjandi sannanir væru fyrir því að Rabia hefði fallið í árásinni. „Á þessari stundu getum við ekki staðfest hvort hann sé dáinn. En sé það rétt eru það góð tíðindi í stríðinu gegn hryðjuverkum. Rabia er einn af vondu gaurunum,“ sagði Hadley í viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina í gær. ■ Háttsettur al-Kaídaliði: Ágreiningur um lát Rabia Á LÍKBÖRUNUM Ættingjar Abduls Wasit, eins fimmmenninganna, virtu lík hans fyrir sér í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Stefán, voruð þið Roger að „bonda“? „Roger Moore hefur einstakt lag á að ná til fólks og hann náði mjög sterkt til mín eins og fjölda annarra.“ Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, tók á móti Sir Roger Moore þegar hann kom til landsins en hann er velgjörðasendiherra UNICEF. BORGARMÁL Dagur B. Eggertsson, óflokksbundinn borgarfulltrúi R- listans, íhugar alvarlega að bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í komandi borgarstjórnarkosningum. „Það var býsna fjarri mér að fara í framboð þegar Reykjavíkurlistinn ákvað að bjóða ekki fram aftur og sagði strax þá að ég gerði ekki ráð fyrir því að fara fram,“ segir Dagur en hefur áhyggjur af stöðunni eins og hún er í dag. „Það á frekar illa við mig að sitja með hendur í skauti og horfa upp á Sjálfstæðisflokkinn vinna óverðskuldaðan stórsigur,“ segir Dagur sem ætlar að gera upp hug sinn fyrir jól. Ef af verð- ur ætlar Dagur að ganga til liðs við Samfylkinguna þrátt fyrir að flokk- urinn gangist fyrir opnu prófkjöri í vor þar sem óflokksbundnir geta tekið þátt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingar, fagnar þeim möguleika að Dagur gangi til liðs við flokkinn. „Við erum auðvitað mjög ánægð með að Samfylkingin dragi að sér atorkumikið og hæfi- leikaríkt ungt fólk,“ segir Ingibjörg og kveðst sjálf hafa hvatt Dag til að ganga til liðs við flokkinn. - sgi Dagur B. Eggertsson hugsanlega til liðs við Samfylkingu: Íhugar alvarlega framboð EKKI LENGUR ÓFLOKKSBUNDINN Ef Dagur tekur þá ákvörðun að bjóða sig fram til borgarstjórnarkosninga í vor, ætlar hann að ganga til liðs við Samfylkinguna. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� DAKKA, AP Tvö heimilislaus börn í leit að mat fundu tifandi tíma- sprengju undir einni rútunni á umferðarmiðstöð í Dakka, höf- uðborg Bangladess. Þau létu lögreglu vita sem lét aftengja sprengjuna. Í borginni Mirzapore töldu menn sig hafa fundið sprengju í barnaskóla en í ljós kom að aðeins var um hvellhettur og tímastilli að ræða. Ófremdarástand hefur ríkt í nokkrum borgum Bangladess undanfarna viku en þrettán manns hafa látist í sprengju- tilræðum sem talin eru vera á ábyrgð öfgasinnaðra íslamista. ■ Skálmöld í Bangladess: Götubörn fundu sprengju STRAND Skipið Hring SH 535 frá Grundarfirði tók niðri þegar það var á siglingu á Eyrasundi á laugardag. Skipið var að heimleið eftir að hafa verið í slipp í Póllandi, að sögn Guðmundar Smára Guðmundsson, framkvæmdastjóra útgerð ar innar. Skipið er það nýjasta í flota Guðmundar Runólfssonar hf. á Grundarfirði. „Við lentum á grynn- ingum úti fyrir Kaupmannahöfn. Þetta var bara minniháttar,“ segir Hinrik Reynisson, skipstjóri á Hring, og bætir við að áhöfnin hafi haldið ró sinni. Hann segir engar teljandi skemmdir hafi orðið og þeir sigli nú aftur heim á leið. Því hafi betur farið en á horfðist í þessum hrakförum. ■ Hringur í hremmingum: Strandaði á Eyrarsundi Á GRUNDARFIRÐI Nýjasta skip Guðmundar Runólfssonar tók niðri á Eyrarsundi. ÖRYGGISGÆSLA Milli 200 og 300 manns voru í viðbragðsstöðu í gær þegar Airbus 330 þota í eigu Air Canada nauðlenti á Kefla- víkurflugvelli vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflug- velli, segir allan undirbúning hafa gengið snurðulaust fyrir sig en þegar tilkynnt var um bilunina klukkan þrjú í gær var allt sett á viðbúnaðarstig. Þá felur í sér að samhæfingarstöðin í Skógarhlíð mönnuð svo og aðgerðastjórn- stöðin á Keflavíkurflugvelli og vettvangsstjórnstöðin auk þess sem björgunarsveitir og sjúkra- hús eru sett í viðbragðsstöðu. Þrátt fyrir þetta var hættan á óhappi talin lítil. Þotan var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Toronto í Kanada. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli taldi að hinir tæplega 300 far- þegar og áhöfn þotunnar myndu bíða í flugstöðinni eftir að flug- félagið sendi þeim aðra vél til að flytja þá áfram til Toronto. - sgi Farþegaþota kanadísks flugfélags nauðlendir í Keflavík: Mikill viðbúnaður á vellinum MIKILL VIÐBÚNAÐUR Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í viðbragðsstöðu í Straumsvík. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ALLT GEKK VEL Þrátt fyrir skerta flughæfni þotunnar var ekki talin mikil hætta á ferðum við lendingu. M YN D /VÍKU R FR ÉTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.