Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 8
8 5. desember 2005 MÁNUDAGUR
Meindl
Colorado GTX
Jólatilboð
kr. 14.990.-
verð áður kr. 17.990.-
FRÁ FUNDINUM Á HÖFN Þorsteinn þylur
hér þá Lilju sem sumir kveðið vildu hafa en
aðrir ekki.
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna-
stofnun hefur nú lokið tólf funda
hringferð sinni um landið en
síðasti fundurinn var haldinn á
Höfn í Hornafirði í vikunni.
Að sögn Þorsteins Sigurðsson-
ar fiskifræðings sem hélt erindi á
Höfn voru umræður einna mestar
um nýtingu loðnustofnsins en eins
og fram hefur komið í Fréttablað-
inu eru útgerðarmenn víða ugg-
andi yfir fæðuskorti á miðum og
kenna margir loðnuveiðum með
flotvörpum um það ástand.
Hafrannsóknastofnun fær
mikið lof fyrir fundarröðina frá
þeim fjölmörgu útgerðar- og
sjómönnum víða um land sem
Fréttablaðið hefur talað við. - jse
Fundir Hafrannsóknastofnunar:
Uggandi vegna
fæðuskorts
FINNLAND Hen, 43 ára, hefur verið
dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir
160 kynferðisbrot gegn börnum.
Þetta er þyngsti dómur sem
kveðinn hefur verið upp í þessum
málaflokki í Finnlandi.
Á norrænum vefmiðlum á
laugardag kom fram að maðurinn
hafði haldið dagbók með
nákvæmum lýsingum á afbrotum
sínum gegn yfir 400 drengjum í
Taílandi á tímabilinu 1995-2005.
Maðurinn á að hafa misnotað
drengi kerfisbundið í 26 ferðum
til Taílands. Sumir drengjanna
voru aðeins tíu ára gamlir og
nokkrir voru misnotaðir daglega í
nokkrar vikur í senn.
Heima hjá manninum var lagt
hald á tölvu, sjónvarp, myndbands-
upptökuvélar, vefmyndavél, 130
myndbönd, 280 geisladiska og
þrettán DVD-myndir sem allar
tengjast afbrotum hans.
Maðurinn var handtekinn
í janúar á þessu ári eftir að
lögreglan hafði fylgst með honum
í Taílandi ásamt belgískum manni
sem nú er ákærður fyrir að níðast
á börnum. - ghs
Barnaníðingur dæmdur í ellefu ára fangelsi í Finnlandi:
Hélt nákvæmar dagbækur
FINNLAND Barnaníðingur hefur
verið dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gagnvart börnum.
Maðurinn hélt dagbækur yfir brot sín.
UMHVERFISMÁL Breytingar á Færi-
bandinu svonefnda, hafstraumi
sem ber hlýjan sjó á norðurslóð-
ir og kaldan aftur að miðbaug, eru
mun hraðari en talið var og kunna
að valda stórfelldri kólnun í Evrópu,
samkvæmt vísbendingum í rann-
sókn sem Harry Bryden, breskur
haffræðingur hefur staðið fyrir.
Ralf Döscher á sænsku veður-
og haffræðistofnuninni segir
Bryden og kollega hans hafa
mælt hafstrauma á mismunandi
dýpi þvert yfir Atlantshafið allt
frá árinu 1957. Litlar breyting-
ar hafi komið fram allt til ársins
1998, en eftir þann tíma séu þær
stórfelldar. Erlendir fréttamiðlar
hafa svo eftir Bryden að þetta sé í
fyrsta sinn sem merkja megi svo
hraðar breytingar í þessa veru
að þeirra verði vart á mannsævi.
The Guardian hefur eftir honum
að haldi þessi þróun áfram megi
búast við kólnun veðurfars í norð-
anverðri Evrópu um eina gráðu á
áratug. Um leið bendir hann á að
þetta víxlstreymi hlýrri og kald-
ari sjávar hafi á ísöld stöðvast
alveg.
Vísbendingarnar sem nú eru
komnar fram renna stoðum undir
kenningar um að bráðnun íshell-
unnar á norðurskautinu og jökla
á norðurslóðum dragi úr seltu
sjávar, sem verði til þess að kald-
ur sjór sökkvi síður og berist því
ekki aftur suður undir miðbaug.
Bryden bendir þó sjálfur á að
niðurstöður hans sanni ekki að
breyting sé að eiga sér stað heldur
þurfi að stunda mælingar í mörg
ár í viðbót. Fjallað
er um
rannsóknina í nýjasta hefti tíma-
ritsins Nature.
Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur tekur undir að mælingarnar á
hafstraumum sem vísað sé til hafi
staðið nokkuð stutt yfir. „Menn
hafa mælt þarna botnstrauma
með meiri nákvæmni en áður
hefur verið gert, en eldri gögn eru
gisin og menn vita ekki í raun hver
náttúrulegur breytileiki þeirra
gagna sem verið er að mæla er.“
Hann segir niðurstöður Brydens
vera viðbót í „hrúgu misvísandi
rannsókna“ og allt of snemmt sé
að draga af þeim ályktanir. „En
þeir eru hrifnir af veðurfarskrís-
um þarna hjá Nature og sjálf-
sagt vekur þetta athygli,“ segir
Trausti.
Líkur á kólnandi
veðri í Evrópu
Nýjar mælingar renna stoðum undir hamfarakenningar
tengdar Golfstraumnum. Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir allt of snemmt að draga ályktanir af niðurstöðunni.
HITAMYND AF HEIMSHÖFUNUM Hér sjást uppsafnaðar hitamælingar heimshafanna í
maímánuði árið 2001. Golfstraumurinn liggur norður með austurströnd Mið-Ameríku og
Bandaríkjanna, en streymir svo eftir Atlantshafinu upp að ströndum Evrópu og norður fyrir
Ísland. MYND/NASA-KSC
TRAUSTI JÓNSSON Veðurfræðingur segir
mælingar á Golfstraumnum hafa staðið
nokkuð stutt yfir.
olikr@frettabladid.is
Ferðamenn veltu á Þingvöllum
Erlendir ferðamenn slösuðust þegar bíll
valt á Vallavegi á Þingvöllum rétt eftir
hádegi á laugardag. Hálka var á veginum
en tveir menn af fjórum slösuðust
nokkuð og voru fluttir með sjúkrabíl
til Reykjavíkur til nánari athugunar. Sá
er slasaðist meira sat í aftursæti og var
ekki í bílbelti.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VERÐLAUN
Vefir verðlaunaðir Íslensku
vefverðlaunin voru afhent í fimmta sinn
á þriðjudag. Besti íslenski vefurinn var
valinn mbl.is, besti fyrirtækjavefurinn í
ár er glitnir.is og verðlaunin fyrir besta
einstaklingsvefinn hlaut arni.hamstur.is.
Þá hlaut skjarinn.is verðlaun fyrir besta
afþreyingarvefinn og verðlaun fyrir bestu
útlits- og viðmótshönnun féllu í skaut
isb.is.
FJÖLMENN MÓTMÆLI Lögregla segir 63.000 manns hafa tekið þátt í göngunni en
skipuleggjendur hennar segja að 250.000 manns hafa mætt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HONG KONG, AP Fjölmenn mótmæli
fóru fram í Hong Kong í gær þar
sem knúið var á um lýðræðis-
umbætur í héraðinu. Ólíklegt er
talið að yfirvöld í Peking bregðist
við óskum fjöldans.
Skipuleggjendur göngunnar
segja að 250.000 manns hafi tekið
þátt í henni en búist hafði verið
við mun minni fjölda. Lögregla
í Hong Kong segir hins vegar að
63.000 manns hafi mætt. Fólkið
vildi með samkomunni krefjast
fulls lýðræðis fyrir héraðið og um
leið láta í ljós óánægju sína með
nýjar tillögur stjórnvalda í Peking
í þessum efnum. Samkvæmt þeim
er gert ráð fyrir að 800 manna
samkunda velji héraðsstjóra og að
eingöngu helmingur þingmanna
Hong Kong verði kjörinn af íbúum
héraðsins.
Forsvarsmenn göngunnar og
frjálslyndir þingmenn kröfðust
viðbragða Donald Tsang
héraðsstjóra við gagnrýninni
sem fram kom í mótmælunum.
Tsang svaraði því til að hann
hefði meðtekið kröfurnar en ekki
væri mögulegt að gera neinar
tímaáætlanir um framvindu
lýðræðisumbótanna.
Hong Kong hefur verið
undir stjórn Kína síðan 1997
en borgríkið nýtur mun meiri
réttinda og sjálfstæðis en önnur
sjálfstjórnarhéruð landsins.
- shg
Tugþúsundir Hong Kong-búa mótmæltu:
Skorað á yfirvöld að
koma á fullu lýðræði
VEISTU SVARIÐ
1Af hvaða tilefni heimsóttu börn af erlendum uppruna Bessastaði á
laugardag?
2 Hve há var desemberuppbótin til eldri borgara fyrir skatta?
3 Í hvaða tveimur íslenskum sjónvarpsþáttum er eins sófasett?
SVÖRIN ERU Á BLS. 50