Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 20
5. desember 2005 MÁNUDAGUR20
„Hjálpum þeim” er söfnunarátak fyrir Hjálparstarf kirkjunnar
vegna hamfaranna í Pakistan. Ný útgáfa af laginu er flutt af
landsliði íslenskra tónlistarmanna.
Söluandvirði þessarar geislaplötu, utan við virðisaukaskatt, rennur óskipt til
söfnunarátaksins.
Geislaplatan kemur í verslanir 10. desember
Einn sterkasti stjórnmálaleiðtogi
landsins, Davíð Oddsson, hefur
nú verið seðlabankastjóri í rúman
mánuð og verður spennandi að sjá
hvaða tökum hann tekur starfið
og hvort og þá hvaða mark hann
mun setja á Seðlabankann og
efnahagslíf þjóðarinnar í þessu
nýja hlutverki eftir að hafa stýrt
efnahagsmálum landsins í vel
á annan áratug. Þetta skýrist á
næstu mánuðum og misserum en
fyrst reyndi á nýjan seðlabanka-
stjóra fyrir helgina þegar hann
sem formaður bankastjórnar
kynnti hækkun stýrivaxta.
Nátengdur stjórnmálahagsmunum
Davíð er lögfræðingur, ekki
hagfræðingur að mennt. Sem
fyrrverandi forsætisráðherra
og formaður stærsta stjórnmála-
flokks landsins er hann pólitískur
bankastjóri. Hagfræðingar hafa
gagnrýnt skipun hans í embættið,
sérstaklega Þorvaldur Gylfason,
prófessor við Háskóla Íslands.
Þorvaldur segir að peningamál og
stjórnmál séu vond blanda því að
reynslan sýni að stjórnmálamönn-
um hætti til að misbeita valdi sínu
í peningamálum. Þess vegna eigi
stjórnmálamenn ekki heima í
seðlabankastjórnum. Seta þeirra
grafi undan lögboðnu sjálfstæði
seðlabankanna.
„Jafnvel vel menntaðir og
þaulreyndir hagfræðingar úr
hópi stjórnmálamanna henta yfir-
leitt ekki heldur vel sem seðla-
bankastjórar af því að þeir eru
of nátengdir stjórnmálahagsmun-
um,“ segir Þorvaldur og telur að
stjórnmálamenn þurfi að koma
sér burt úr Seðlabankanum og
láta hann í friði.
Þorvaldur rifjar upp að for-
maður bankastjórnar hafi lengst
af verið vel menntaður og þaul-
reyndur hagfræðingur sem hafi
aldrei komið nálægt stjórnmál-
um. Seðlabankinn var fluttur úr
fagráðuneyti yfir til forsætisráðu-
neytisins fyrir nokkrum árum.
Þorvaldur segir að tilfærslan hafi
gengið þvert á það sjónarmið sem
nýju lögunum hafi verið ætlað
að virða, að Seðlabankinn ætti
eftirleiðis að njóta og neyta auk-
ins sjálfstæðis gagnvart öðrum
stjórnvöldum eins og færst hefur
í vöxt í öðrum löndum. Að mati
Þorvalds hefur það sýnt sig að
yfirbragð Seðlabankans hafi verið
pólitískara síðustu ár en nokkru
sinni fyrr.
„Nú er sjálfskipaður fulltrúi
stjórnmálastéttarinnar formað-
ur bankastjórnarinnar, blóðugur
upp að öxlum úr orrahríð stjórn-
málanna og hefur auk þess fengið
sektardóm fyrir meiðyrði, en það
er einsdæmi um seðlabankastjóra
í okkar heimshluta. Orð eru dýr í
seðlabönkum og þess vegna meðal
annars henta orðljótir stjórnmála-
menn öðrum fremur illa þótt víðar
væri leitað,“ segir Þorvaldur.
Setur mark sitt á öll störf
Birgir Ármannsson, alþingismað-
ur og fulltrúi Sjálfstæðisflokks
í efnahags- og viðskiptanefnd
alþingis, telur fullsnemmt að
segja til um hvernig seðlabanka-
stjóri Davíð verður. Hann segir
það skipta verulegu máli hverj-
ir gegni embætti seðlabanka-
stjóra enda séu allar meiriháttar
ákvarðanir teknar af bankastjór-
unum þremur. Hann bendir á
að formaður bankastjórnar hafi
oddaatkvæði og eigi að höggva á
hnúta ef ágreiningur kemur upp.
Davíð gegnir einmitt þessu hlut-
verki. Birgir kveðst ekki vera í
vafa um að Davíð setji mark sitt
á öll störf sem hann taki að sér.
Í starfi seðlabankastjóra mark-
ist svigrúm hans af lögunum og
miðað við hvernig framkvæmd-
in hafi verið síðustu ár eigi hann
ekki von á neinum byltingum í
bankanum.
„Það er alltof snemmt að segja
hvernig hann á eftir að vinna úr
sinni stöðu þarna en ég er hins
vegar sannfærður um að hann er
ekki að fara í seðlabankann til að
setjast í helgan stein,“ segir Birg-
ir.
Ingólfur Bender, forstöðumað-
ur Greiningar Íslandsbanka, segir
að hlutverk seðlabankastjóra hafi
ekkert breyst með nýjum manni.
Seðlabankinn hafi það markmið
að halda verðbólgunni í 2,5 pró-
sentum og hann hafi stýrivext-
ina sem stýritæki í höndum sér
og reyni að beita því þannig að
markmiðið náist. Ingólfur segir
að skipan seðlabankastjóra í
nágrannalöndum Íslands fari
fram með svipuðum hætti og hér.
Hægt sé að velta fyrir sér hvort
hið pólitíska landslag geti truflað
en hefur ekki mikla trú á því að
það geti gerst, Seðlabankinn hafi
afar skýrt hlutverk og afmarkað.
„Hans aðgerðir eru orðnar
mjög gegnsæjar í dag. Maður sem
situr þarna getur ekki leyft sér
neitt slíkt. Það kæmi mjög skýrt
fram og bankinn næði síður verð-
bólgumarkmiði sínu. Þess vegna
held ég að allir átti sig á því og
spili innan þess ramma sem þeir
hafa. Það er á margan hátt ágætt
að hafa sterkan aðila í brúnni sem
Davíð gefur bankanum pólitískt yfirbragð
Bílageymsla.
1. hæð
Matsalur,
móttaka og
skrifstofur
Seðlabankans.
2. hæð
Reiknistofa
bankanna.
3. og 4. hæð
Skrifstofur
Seðlabankans.
5. hæð
Skrifstofur
seðlabankastjóra og
fundarherbergi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Davíð Oddsson hefur verið einn sterkasti stjórnmálaleið-
togi landsins í aldarfjórðung og hann hefur stýrt efnahags-
málum landsins í vel á annan áratug. Á næstu mánuðum
og misserum skýrist hvaða mark hann mun setja á Seðla-
bankann og efnahagsmálin.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR,
FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
„Ef menn fá á tilfinninguna að
bankinn láti stjórnast af pólitískum
veðrabrigðum eða sé með hentistefnu
þá getur það verið mjög skaðlegt
fyrir efnahagslífið og alla umgjörð
peningamála,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar.
DAVÍÐ ODDSSON SEÐLABANKASTJÓRI
Davíð Oddsson, formaður
bankastjórnar Seðlabankans, tilkynnti
hækkun stýrivaxta á föstudag.
Sumir telja hættu á að þessi gamli
stjórnmálaleiðtogi haldi sig ekki innan
þess ramma sem hlutverkinu er ætlað.
Kannski óþarfar áhyggjur en hver veit?
Aðrir telja að reynsla hans og þekking
komi að góðum notum í þessu starfi.