Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 25
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 25
UMRÆÐAN
KJÖR ALDRAÐRA
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
AF NETINU
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
VEGLEGI
PAKKINN
200.000 kr. jólaafsláttur!
Tegund Ver› me› afslætti
Pathfinder XE beinskiptur 3.590.000,-
Pathfinder SE beinskiptur 3.950.000,-
Pathfinder SE sjálfskiptur 4.090.000,-
Pathfinder LE sjálfskiptur 4.590.000,-
Pathfinder LE IT 4.790.000,-
N†R PATHFINDER ME‹ TVÖ HUNDRU‹ fiÚSUND KRÓNA
AFSLÆTTI OG HUNDRA‹ fiÚSUND KRÓNA JÓLAGJÖF Í
KAUPBÆTI. A‹EINS 20 BÍLAR Á fiESSU TILBO‹I!
PATHFINDER
JÓLA–NISSAN
300.000 KALL Í JÓLAGJÖF!
SKIPT_um landslag
A‹EINS 20 BÍLARÁ fiESSU TILBO‹I!
KAUPAUKI100.000 kr.GJAFABRÉF HJÁ
Mikil umræða hefur átt sér stað
um málefni aldraðra. Sennilega er
það m.a. vegna þess að kosningar
nálgast. En einnig hafa mikil blaða-
skrif aldraðra og umfjöllun í sjón-
varpi um þessi mál vakið mikla
athygli á málefnum eldri borgara.
Margir stjórnmálaflokkar hafa á
yfirstandandi alþingi flutt tillögur
um aðgerðir í þágu aldraðra.
Samfylkingin flutti tillögu um
afkomutryggingu aldraðra strax
og þing kom saman í haust. Sam-
kvæmt hennar tillögu á að tryggja
öldruðum lífeyri fyrir eðlilegum
framfærslukostnaði. Og það á að
hækka lífeyri aldraðra í samræmi
við hækkun kaupgjalds launþega.
Í greinargerð með tillögunni er
skýrt frá því, að árið 1995 hafi
tengsl verið rofin milli lífeyris
aldraðra og kaupgjalds lágmarks-
launa á almennum vinnumarkaði.
En fram að þeim tíma hafi lífeyrir
aldraðra hækkað sjálfvirkt, þegar
lágmarkslaun hækkuðu. Í greinar-
gerðinni segir, að lífeyrir aldraðra
frá almannatryggingum þurfi að
hækka um 12 þúsund kr. á mánuði
til þess að jafna þá gliðnun sem
orðið hafi. Landssamband eldri
borgara segir að lífeyrir aldraðra
frá almannatryggingum þurfi að
hækka um 17 þúsund kr. á mánuði
til þess að ná þessu marki. Samtök
vinstri grænna og Frjálslyndi
flokkurinn hafa einnig flutt tillög-
ur á alþingi um að bæta hag aldr-
aðra.
Það var mikið óheillaspor sem
var stigið 1995, þegar rofin voru
tengslin milli lífeyris aldraðra og
lágmarkslauna. Þáverandi forsæt-
isráherra lýsti því þá yfir að kjör
aldraðra mundu ekki versna við
þessa breytingu. Trygging aldraðr-
a í því efni yrði tvöföld: Það yrði
bæði miðað við launabreytingar
og verðlagsbreytingar. Ekki hefur
verið staðið við þessa yfirlýsingu,
þetta fyrirheit. Það var svikið.
Þegar litið er á þróun lífeyris aldr-
aðra og breytingar lágmarkslauna
síðasliðin 11 ár sést, að lífeyrir
aldraðra hefur dregist mikið aftur
úr launum láglaunafólks. Lífeyrir
aldraðra hefur aðeins hækkað um
brot þess sem laun láglaunafólks
hafa hækkað um.
Það hafa verið hafðar af öldr-
uðum stórar fjárhæðir á þessu
tímabili. Samkæmt útreikning-
um hefur ríkið haft af öldruðum
á þessu tímabili um 40 milljarða
króna! Það eru miklir fjármunir.
Þetta þýðir að aldraðir áttu megn-
ið af Símapeningunum.Þegar ríkið
var að ráðstafa peningunum sem
fengust fyrir sölu Símans var í
rauninni verið að rástafa að veru-
legu leyti peningum sem aldraðir
áttu.
Hvernig ætlar ríkið að bæta
öldruðum það, sem af þeim hefur
verð haft? Ríkisstjórnin hefur
sagt að enda þótt búið sé að ráð-
stafa megninu af Símapeningunum
muni sú ráðstöfun rýmka til fyrir
öðrum fjárveitingum.Það verður
því væntanlega af þeim sökum
auðveldara að standa við endur-
greiðslur til aldraðra.Það er krafa
aldraðra að staðið verði við fyr-
irheitið,sem þeim var gefið 1995.
Þeir eiga rétt á því.
Stjórnmálamenn fá áhuga á málefnum aldraðra
Úthringi-æði
Rétt fyrir jól renna á menn ýmiss
konar æði. Eitt af þeim er úthringi-æði
góðgerðafélaga. Í vikunni hefur ég fengið
fimm slík símtöl en eiginmaðurinn ekkert,
reyndar var í einu símtalinu spurt eftir
öðru hvoru okkar. Undirrituð hefur unnið
við úthringingar sjálf og veit því hversu
niðurdrepandi það er að fá hranaleg og
jafnvel dónaleg svör fólks sem stundum
skellir nánast á áður en úthringjandinn
nær að kynna sig og hvaða málefni hann
hringi út af. Því reynir maður að bíða eftir
að viðkomandi hafi klárað fyrstu setningu
áður en tilkynnt er að númerið sem
hringt var í sé bannmerkt í símaskrá. Fólk
biður margfaldlega afsökunar og lofar að
skrá nafnið manns niður þannig að ekki
verði hringt aftur. Af fenginni reynslu er
vitað að það eru orðin tóm.
Guðrún Pálína Ólafsdóttir á deiglan.
com
Glansmyndir
Sjálfsagt eru fáir leiðangrar í
rannsóknarblaðamennsku frægari en
sá sem þýski blaðamaðurinn Günter
Wallraff hélt í árin 1983-1985 þegar
að hann dulbjó sig sem tyrkneskan
verkamann og kynntist því lífi og
þeim kjörum sem hið svokallaða
gestaverkafólk (Gästarbeiter) bjó við í
Þýskalandi. Afrakstur úttektarinnar varð
frægur um allan heim í bók Wallraffs,
Ganz unten (Niðurlægingin í íslenskri
þýðingu frá 1986) þar sem hulunni
var svipt af tvöfeldni þýsks þjóðfélags.
Gestaverkafólkið þrælaði - og þrælaði er
rétta orðið - við ömurlegar aðstæður til
þess að halda gangandi glansmyndinni
af hinu góða og yndislega Þýskalandi
hinum betur settu borgurum til handa.
Sigurður Ólafsson á sellan.is
Námsmenn í vinnu
Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skiptið
sem ég geng um verslunarkjarna
borgarinnar og auðvitað veit ég að
flestar búðanna eru mannaðar með
ungu og frísklegu fólki. Það kom mér
hinsvegar á óvart að vinkona mín, sem
er framhaldsskólakennari, virtist þekkja
flestar stúlkurnar sem tóku á móti okkur
í öðrum verslunarkjarnanum. Vinkona
mín var líka hissa enda var um að ræða
sama stúlknahópinn og deilt hafði
ákaft á styttingu náms til stúdentsprófs.
Athyglisvert.
Vinkona mín, framhaldsskólakennarinn,
ákvað að gera örlitla könnun í framhaldi
þessarar upplifunar okkar þar sem hún
spurði hversu hátt starfshlutfall þessara
stúlkna almennt væri. Könnunin var ekki
mjög vísindaleg en í ljós kom að margar
stunda 50 til 60% starf með skólanum.
Ástæðan? Oftast til þess að eiga pening
fyrir fötum.
Kristrún Lind Birgisdóttir af tikin.is
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2