Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 28
[ ]
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Mikið úrval af burstasettum
og neistahlífa, ásamt ýmis
konar aukahlutum.
Opið laugardaga kl. 10-16 og
sunnudaga kl. 12-16 til jóla.
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Bómullarsatín
sett í miklu úrvali
Heiðar Jónsson snyrtir á sér
ýmis uppáhaldshús en það er
húsið vestur á Snæfellsnesi sem á
staðinn í hjarta hans. ,,Húsið er að
Krossum og er eyðibýli í dag. Við
stórfjölskyldan eigum það saman
og í dag er það sumarhúsið okkar
þannig séð.“
Húsið er líklega eitt af fáum
austfirskum húsum á Vesturlandi
að Heiðars sögn. ,,Austfirsku
húsin voru norsk hús flutt inn í
einingum á Seyðisfjörð og þaðan
á firðina í gamla daga. Afi minn
sem dó ungur úr berklum var Esk-
firðingur en amma mín var Snæ-
fellingur. Afi hafði milligöngu um
að tengdafaðir hans keypti þetta
hús í gegnum austfirsku aðilana.“
Þetta hús á sér greinilega langa
sögu og voru flutningarnir á því
einir og sér merkilegir. ,,Húsið
kom til Reykjavíkur og var flutt
á prömmum í Borgarnes og þaðan
á öðrum prömmum upp undir
Kolbeinsstaðahrepp. Ein stærsta
hestalest sem vitað var um á þes-
sum slóðum flutti það síðan að
Krossum,“ segir Heiðar. Húsið var
fullgert árið 1928 og þótti mikið
stórhýsi enda tvílyft timburhús á
steyptum grunni. Það er staðsett á
sunnanverðu Snæfellsnesinu við
enda Löngufjara. ,,Þetta er ein af
þessum jörðum sem var kostajörð
meðan hestanna naut við þar sem
Löngufjörur voru í þjóðleið. Því
var þetta stórbýli og mikið gest-
kvæmt en síðan komu bílarnir
og vegur upp undir fjallið,“ segir
Heiðar sem bjó sjálfur aldrei í
húsinu. ,,Fölskylda mín lenti í
hremmingum og flosnaði upp
og ég var gefinn á prestssetrið á
Staðastað eins árs gamall.“
Þó Heiðar hafi búið í Reykja-
vík í 40 ár kveðst hann í raun
aldrei hafa átt heima þar. Það er
því ekki úr vegi að spyrja hvers
vegna hann búi ekki á nesinu
fagra. ,,Það er bara ekki nóg af
kerlingum sem vilja láta mála sig
þar,“ segir hann skellihlæjandi
og bætir því við að ennfremur sé
engin sjónvarpsstöð send þaðan
út en eins og flestir vita sér hann
um þáttinn Allt í drasli ásamt
Margréti Sigfúsdóttur. ,,Ég væri
alveg til í að vera arftaki Gísla á
Uppsölum en það yrði ekkert vin-
sælt hjá aðstandendunum!“ segir
Heiðar að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Væri til í að vera arftaki
Gísla á Uppsölum
Stórfjölskylda Heiðars Jónssonar snyrtis á gamalt ættaróðal vestur á Snæfellsnesi. Langafi hans
keypti húsið á sínum tíma, en eftir að bílarnir komu til sögunnar lagðist býlið í eyði.
er margvíslegt og margir leggja mikið upp úr því að skreyta húsin sín og
garðana fyrir jólin. Nú er til dæmis hægt að kaupa ýmislegt sem áður sást bara
í bandarískum görðum eins og risastóra ljósajólasveina og snjókarla.
Útijólaskraut
Húsið að Krossum kemur alla leið frá Noregi en hefur staðið á Snæfellsnesi síðan 1928.
Heiðar myndi búa á Snæfellsnesi ef þar væru fleiri konur sem létu mála sig.