Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 31
MÁNUDAGUR 5. desember 2005
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
534 1300
w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s
Hafðu samband
og við komum
heim til þín
Vandað, einfalt og ódýrt
Húsgögn og gjafavara
Skeifan 3A við hlið Atlantsolíu
108 Reykjavík
Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604
mylogo@mmedia.is
www.local1.is
Tilboð á
völdum vörum
Þegar snjóa tekur verða gangstéttir
og tröppur oft á tíðum ófærar gang-
angdi vegfarendum. Hægt er að
ráða bót á þeim vanda með ýmsum
hætti, en ekki er sama hvaða aðferð
og verkfæri eru notuð.
SKÓFLA
Kostir: Tekur mikið snjómagn í einu.
Hægt að ráðast á ís með sterku
skóflublaði.
Gallar: Nær ekki fínu, þunnu snjólagi.
Hentar best: Við mikinn, þungan
snjó.
SÓPUR
Kostir: Hreinsar hvert einasta
snjókorn, sé snjórinn þurr og léttur.
Gallar: Gagnast lítið á blautan snjó
eða ís.
Hentar best: Strax eftir létta snjó-
komu í töluverðu frosti.
HEITT VATN
Kostir: Bræðir það sem fyrir verður,
hvort sem það er snjór eða ís.
Gallar: Frýs aftur og verður flughálka.
Heitt vatn getur skemmt steypu.
Hentar best: Í hláku. Til að hreinsa
gamlan ís, t.d. af trépöllum.
SALT
Kostir: Skilur engar leifar eftir sig.
Bræðir frá sér hægt og rólega.
Gallar: Salt hefur tærandi áhrif á
mörg efni. Virkar illa í frosti.
Hentar best: Um og yfir frostmarki. Á
þunnt snjó- og íslag.
SANDUR
Kostir: Gerir hált yfirborð stamara
og öruggara yfirferðar. Virkar óháð
hitastigi.
Gallar: Eyðist ekki. Verður á sama
stað í vor. Hefur engin áhrif á snjóinn
sjálfan.
Hentar best: Á þunnt hálkulag, blaut-
an ís eða þjappaðan snjó.
gangstéttir }
Hvernig er best að
hreinsa snjó?
AÐFERÐIR FARA EFTIR AÐSTÆÐUM
Lítið mál að hressa upp á
gamlar flísar.
Til að mála gamlar flísar þarftu
að hafa sterkt hreinsiefni, sveppa-
eyði til að hreinsa upp úr gömlum
fúgum, naglabursta, grunnmáln-
ingu, vatnslakk, sandpappír, máln-
ingarlímband, rykklút, pensil með
gerviefnahárum eða rúllu og plast
til að hylja innbúið.
Rýmið herbergið af húsgögnum
og breiðið plast á gólfið. Athugið
hvort nauðsynlegt sé að gera við eða
skipta um flísar því þá þarf fúgan
að þorna í um það bil viku áður en
flísarnar eru málaðar. Hreinsið alla
fitu af flísunum og notið sveppa-
eyði ef þarf. Flísarnar þurfa að
vera alveg þurrar áður en málað er.
Skrapið gamla málningu af flísun-
um og málið alltaf í sömu átt. Látið
grunninn þorna í um sólarhring.
Þegar grunnurinn er orðinn þurr
þá er strokið með sandpappír yfir
penslaför og misfellur og strjúkið
yfir með rykklút. Málið svo með
lakki, alltaf í sömu átt, og reynið
að hylja allan grunninn til þess að
gera vatnshelt. Látið lakkið þorna.
Strjúkið svo aftur með sandpappír
yfir misfellur og pensilför og málið
svo seinni umferð eins og áður.
www.husasmidjan.is
Flikkað upp á flísar
Málaðu gömlu flísarnar og gefðu þeim
nýtt líf.
Á að salta hér eða sanda? Nota skóflu
eða sóp? MYND/PJETUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI