Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 71
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 27
Kýrin Blökk sem býr í góðu yfirlæti í
Húsdýragarðinum kom starfsmönnum nokkuð
á óvart að kveldi fyrsta dags aðventu þegar hún
bar svarthuppóttri kvígu. Þetta var tveimur
mánuðum fyrr en gert var ráð fyrir. Dýrahirðar
garðsins hafa því í nógu að snúast þessa dagana
við að gefa kálfinum mjólkursopa oft á dag.
Kvígan litla var heldur smá, aðeins nítján kíló,
en síðasti kálfur sem borinn var í garðinum var
um 40 kíló að þyngd þriggja daga gamall.
Húsdýragarðinum hefur borist enn meiri
nýliðun en eins og undanfarin ár dvelur þekktur
stóðhestur þar. Þetta árið er það skagfirski
gæðingurinn Kraflar frá Miðsitju sem nýtur
gestrisni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Kraflar er margverðlaunaður og hlaut síðast
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti
hestamanna árið 2004 sem er mesti heiður sem
stóðhestur getur hlotið.
Óvæntur aðventukálfur og gæðingur
HEIÐURSHESTUR Kraflar frá Miðsitju er gæðingafaðir og
verður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í vetur.
DÓTTIR BLAKKAR Kom í heimin tveimur mánuðum fyrir
tímann til að taka þátt í jólaundirbúningnum.
Ritmennt, ársrit Landsbókasafns
Íslands – Háskólabókasafns, er
komið út í níunda sinn. Ritmennt
er alhliða menningarrit um
íslenskt efni þar sem birtar eru
fræðilegar ritgerðir, greinar eða
skrár á þessum vettvangi, sem og
óbirtar heimildir úr handritaarfi
þjóðarinnar.
Meðal efnis í blaðinu að þessu sinni
er umfjöllun um Daniel Willard
Fiske sem gaf Landsbókasafni
meðal annars fágætt skákritsafn.
Gerð er grein fyrir þýðingu séra
Jóns Þorlákssonar á Bægisá á
uppeldisriti eftir J.B. Basedow sem
var bannað í Danmörku á sínum
tíma. Áhrifum hugmyndafræði
Gruntvigs á Íslendinga eru gerð
skil auk margs annars fróðleiks.
Ritmennt í
níunda sinn
FORSÍÐA RITMENNTAR Alhliða menningarrit
um íslenskt efni.
LJÓMANDI FAGURT Verk franska
listamannsins Jean Francois Arnaud er hluti
af hátíðinni „Tré og ljós“ í Genf í Sviss.
AP/REUTERS
Eina írska kráin í Reykjavík,
Dubliner, er tíu ára um þessar
mundir. Er ætlunin að nokkur
gleði ríki á staðnum fram í miðjan
mánuðinn af því tilefni, með írskri
tónlist og gleðistundum. Þá ætla
barþjónar staðarins að afgreiða
milljónasta lítrann af bjór á
næstunni.
Hafnarstræti 4, sem hýsir
Dubliner, er sögufrægt hús.
Verslun var í húsinu frá 1798 allt
til ársins 1995 þegar Dubliner
var opnað. Þar var fyrsti íslenski
fáninn dreginn að húni þann 12.
júní 1809 að fyrirmælum Jörundar
hundadagakonungs. ■
Dubliner í
áratug
SÖGUFRÆGT HÚS Í Hafnarstræti 4 var rekin
verslun í nær 200 ár.