Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 75
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 31
Hjálmar hafa sýnt og sannað að
Íslendingar geta spilað reggí, en
nú reynir hljómsveitin L‘amour
fou að bæta um betur og spila
tangótónlist. Fyrirliði hljómsveit-
arinnar, Hrafnkell Orri Egilsson,
segist þó ekki dansa tangó, en sé
mikill áhugamaður um tónlist-
ina. „Ég fékk fyrst áhuga á tangó
þegar ég sá franska tangóhljóm-
sveit spila á Sólon fyrir 15 árum.“
Fræi hefur verið sáð þá sem er
núna að bera ávöxt. „Lagið Þú
og ég eftir Gunnar Þórðarson er
í argentínskri sveiflu, en annað
byggist á salontónlist frá því um
miðja síðustu öld. Elsta lagið er
Dagný frá 1944.“ Hljómsveitin
heldur útgáfutónleika þann 15.
desember í Þjóðleikhúskjallaran-
um og verða þetta einu tónleikar
hljómsveitarinnar í bili. „Aðeins
tveir hljómsveitarmeðlimanna
búa á Íslandi, hinir búa í New
York, Kaupmannahöfn og Hol-
landi.“ Aðdáendur Hrafnkels eiga
þó möguleika á að sjá hann oftar,
því hann leikur einnig á selló með
Sinfóníuhljómsveit Íslands. ■
L‘AMOUR FOU Spilar tangótónlist í anda
stríðsáranna.
Íslenskur stríðsáratangó
Söngdívurnar sjö sem skipa Frost-
rósir falla landanum greinilega vel
í geð því það eru einungis fimm
hundruð miðar eftir á aukatón-
leika þeirra í Laugardagshöll sem
fram fara 10. desember. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir að einungis
yrði um eina tónleika að ræða en
aðsóknin var slík að brugðið var á
það ráð að bæta við einum tónleik-
um sem verða fyrr um daginn.
Frostrósir hafa haldið jólatón-
leika undanfarin þrjú ár en nú
er þetta í síðasta skipti sem þeir
verða haldnir í þessari mynd. Er
því engu til sparað og á að klæða
Höllina í sitt allra fínasta. Auk
söngkvenanna sjö verður á sviðinu
150 manna karlakór og 25 manna
hljómsveit en þeir Bjarni Ara-
son, Leone Tinganelli og Gunnar
Guðbjörnsson munu einnig heiðra
gesti með nærveru sinni. ■
Frostrósir
slá í gegn
FROSTRÓSIR Það er að verða uppselt á
aukatónleika Frostrósa.
Kallarinn er margverðlaun-
uð sakamálasaga
eftir franska met-
söluhöfundinn Fred
Vargas, ókrýnda
drottningu franskra
glæpasagnahöf-
unda. Í bókinni
glímir Jean-Bapt-
iste Adamsberg,
yfirlögregluþjónn í
París, við furðulegt og óhugnanlegt mál.
Grámann gefur út.
Stílbrot hefur gefið út Trölla-
fell, ævintýrasögu
eftir Katherine
Langrish. Þar segir
frá ævintýrum
Peers Úlfssonar hjá
frændum sínum
Grími og Baldri,
sem fara með hann
eins og þræl.
Þykkskinna hin síðari er
safn sagnaþátta úr
Rangárþingi eftir
Helga Hannesson
sem Sunnlenska
bókaútgáfan hefur
sent frá sér. Í
skrifum Helga fer
saman sagnagleði
höfundar, frábær
tök á íslenskri
tungu og hispursleysi í frásögnum sem
á fáa sína líka.
Ljóðasafn Auðuns Braga
er komið út í útgáfu
höfundar, Auðuns
Braga Sveinssonar.
Hann hefur valið í
bókina úrval ljóða
sinna frá ýmsum
tímum.
NYJAR BÆKUR
AUGL†SINGASÍMI
550 5000