Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 76
5. desember 2005 MÁNUDAGUR
Stóra svið
Salka Valka
Su 11/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20
Woyzeck
Mi 7/12 kl. 20 UPPS Fö 9/12 kl. 20
Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21
Kalli á þakinu
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Su 8/1 kl. 14
Brot af því besta!
Í forsal Borgarleikhússins
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum
fimmtudagskvöldið 8/12 kl. 20
Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur
Helgason, Hreinn Vilhjálmsson, Ingibjörg
Hjartardóttir, Ólafur Gunnarsson, Þórarinn
Eldjárn
Léttur jóladjass og kaffihúsastemning.
Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Su 11/12 kl. 20 Síðasta sýning!
Þrjár systur e. Tsjekhov
Nemendaleikhúsið
Þr 6/12 kl. 20 UPPS Fi 8/12 kl. 20
Lau10/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20
Fö 16/12 kl. 20 Lau 17/12 kl. 20
Manntafl
Fö 9/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar!
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
Ævintýrið um Augastein eftir
Felix Bergsson verður sýnt bæði
á Akureyri og í Reykjavík núna
fyrir jólin
Það er leikhópurinn Á senunni
sem sýnir þessa margrómuðu
jólaleiksýningu í Samkomuhúsinu
á Akureyri og í Tjarnarbíói í
Reykjavík nú fyrir jólin. Sýningar
verða á Akureyri dagana 10. til 12.
desember og í Reykjavík 14. til 18.
desember.
Sýningar á Akureyri eru í sam-
starfi við Leikfélag Akureyrar.
Barnabókin Ævintýrið um Auga-
stein fékk glimrandi viðtökur
fyrir jólin 2003 og seldist í þús-
undum eintaka. Útgefandi var
Mál og menning.
Ævintýrið um Augastein var
frumsýnt í London árið 2002 og í
Reykjavík 2003. Verkið er leikið
af höfundi og það byggir á hinni
sígildu sögu um Grýlu og jóla-
sveinana en ævintýrið er tekið
lengra og sagan um litla dreng-
inn, sem nefndur er Augasteinn,
verður miðpunktur leikritsins.
Augasteinn lendir fyrir tilviljun
í höndum hinna hrekkjóttu jóla-
sveina. Sveinarnir skrítnu eru
skíthræddir við lítil börn en þeir
læra smám saman að elska litla
drenginn og annast hann. Skyndi-
lega kemst Grýla á snoðir um
tilveru barnsins og við tekur æsi-
spennandi flétta. Ná jólasveinarn-
ir að bjarga Augasteini úr klóm
Grýlu og Jólakattarins áður en
jólin ganga í garð? ■
ÆVINTÝRIÐ UM AUGASTEIN eftir Felix
Bergsson.
Aftur á svið
Yfirgefin býli eru ofarlega í
huga Tolla á nýrri sýningu
sem opnuð var um helgina.
Hann sér í þeim tákn um
leitina að paradís, horfinni
fegurð og sakleysi.
Við Skólavörðustíginn hefur verið
opnað nýtt gallerí, Gallerí Ygg-
drasill, sem er staðsett inn af
samnefndri verslun þar sem boðið
er upp á lífrænt ræktaðar vörur.
Fyrstur til þess að sýna í þessum
nýja sal er listamaðurinn Tolli,
sem sýnir þar nokkur stór mál-
verk undir yfirskriftinni Leitin að
paradís.
„Þetta er geysilega flottur
salur,“ segir Tolli og vonast til
þess að salurinn verði mikið not-
aður. „Þetta er sennilega glæsi-
legasti salurinn af þeim sem litlu
galleríin bjóða upp á.“
Eyðibýli og leitin að paradís
er þemað, sem Tolli er að fást við
í þessari sýningu. Hann segist
tengja leitina að paradís við goð-
sögnina um Shangri La. Þessi goð-
sögn er honum greinilega ofarlega
í huga.
„Shangri La er hinn týndi
dalur, hin týnda paradís,“ segir
Tolli. Það er einhver byggð úr for-
tíðinni, eitthvert sakleysi og feg-
urð sem hefur varðveist í afdölum
og þegar ferðalangurinn brýst í
gegnum fjallaskarðið og kemur
inn í dalinn þá blasa við þessi eyði-
býli. Maður tengir þetta ósjálfrátt
við einhverja tíð þar sem maður
og náttúra voru miklu meira sam-
ofin, því leitin að paradís dregur
okkur alltaf bæði að náttúrunni
og að fortíðinni, því þó svo að við
leitum að lausninni í framtíðinni
þá getum við það aldrei öðru vísi
en að huga að fortíðinni.“
Tolli hefur rekist á mörg eyði-
býli á ferðum sínum um landið.
„Ég hef verið dálítið mikið fyrir
vestan þar sem ég hef ferðast um
á kajak, og þar í þessum afdölum
eru oft strandbýli sem eru byggð
alveg niðri í fjöru þar sem var
útgerð líka, og það er ofsalega fal-
leg umgjörð í kringum slík hús.“
Hann segir það einstaka
reynslu að koma til yfirgefinna
húsa. Menn fari ósjálfrátt að velta
fyrir sér sögu þessara mann-
virkja, hverjir hafi búið þar og
hver örlög þeirra urðu. Sömuleið-
is vakni með aðkomumanninum
minningar úr eigin æsku, hann
fari að spyrja sjálfan sig að því
hvaðan hann sé og hvert hann
stefni.
„Það er einhvers konar exís-
tensíalismi, einhver tilvistar-
hyggja í þessum húsum því þarna
sérð þú sjálfan þig líka.“
Tolli segist gjarnan setja verk
sín í eitthvert heimspekilegt eða
sögulegt samhengi, en tekur
fram að slíkt sé í sjálfu sér auka-
atriði.
„Það sem er aðalatriðið er
að ég hef upplifað þetta og mér
finnst þetta fallegt, þetta hefur
snortið mig og haft áhrif á mig og
það gerir mér gott að mála þetta.
Ég vil deila þessari reynslu, þess-
ari hugsun með mínu samferða-
fólki og þess vegna er ég að mála
þetta.“
Hann viðurkennir fúslega að
í þessum stóru málverkum ráði
bæði nostalgían og rómantíkin
ríkjum, „en þetta hvort tveggja,
nostalgían og rómantíkin, er afl.
Á þroskaferð okkar þurfum við á
afli að halda, einhverju jákvæðu
afli. Rómantíkin, náttúran og leit-
in að paradís er jákvætt afl.“ ■
Paradís eyðibýlanna
TOLLI Á SÝNINGU SINNI Sýnir feykistór málverk af yfirgefnum mannvirkjum með dulúðugri stemmningu. FRÉTTBLAÐIÐ/VILHELM