Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 79

Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 79
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 Þorbjörg var ein af Thorsurunum „Thor Jensen varð svo mikið um er Þorbjörg kona hans lést 14. október 1945 að hann gat naumast afborið harminn. Valtýr Stefánsson, sem skráði endurminningar Thors, var heima hjá honum á Lágafelli á jarðarfarar- daginn. ... „Eftir að kirkjuathöfninni var lokið leið nokkur stund. Var engu líkara en hann væri í leiðslu, og kom ég mér ekki að því að yrða á hann. En allt í einu kipptist hann við og að honum kemur eins og kuldahrollur. „Nú eru þeir að sökkva henni niður í hina köldu gröf,“ segir hann með angist í röddinni, og var engu líkara en að hann sæi þennan atburð fyrir sér. Síðar sagði hann mér, að liðið hefði um það bil einn mánuður eftir jarðar- förina, uns hann treysti sér til að rísa úr rekkju, og þessi mánuður var næstum úr meðvitund hans. Svo sár var hugarkvöl hans eftir konumissinn.“ edda edda.is Bókin um Thorsarana eftir Guðmund Magnússon komin í verzlanir. tilkynning 10% ÚTBORGUN: 176.500 kr. Opel Meriva DVD A‹EINS 23.999 kr. Á MÁNU‹I* VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.795.000 kr. Opel Astra Caravan A‹EINS 23.680 kr. Á MÁNU‹I* VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.760.000 kr. DVD spilari fylgir! JÓLIN NÁLGAST! NÁÐU FORSKOTI Á NÝJUM OPEL. 10% ÚTBORGUN 179.500 kr. Opel Astra Hatchback A‹EINS 22.810 kr. Á MÁNU‹I* VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.695.000 kr. 10% ÚTBORGUN 169.500 kr. F í t o n / S Í A *Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 10% útb. og eftirstö›var í 84 mánu›i. Við erum í sérstöku hátíðarskapi og því býðst þér Opel á frábæru jólatilboði út allan desember með einungis 10% útborgun! En það er ekki allt: Hverjum Opel fylgir 100.000 kr. gjöf frá Bræðrunum Ormsson handa þeim sem þér þykir vænt um. Við hvetjum alla ökumenn til að aka varlega um hátíðarnar. Opel. fi‡ski gæ›ingurinn. Fyrirtæki Svövu Johansen, NTC, sem rekur meðal annars verslanirnar Gallerí Sautján, Smash og Deres, opnaði um síðustu helgi glænýja herrafataverslun sem ber nafnið Kultur menn. Nýja verslunin er staðsett á Laugavegi 89 við hliðina á Galleri Sautján. ,,Það hefur gengið alveg frábær- lega vel síðan við opnuðum og við heyrum frá fólki að þetta sé búð sem hefur vantað á Íslandi. Inni í NTC erum við auðvitað með verslanir eins og Evu fyrir konur á þessum aldri en það hefur vantað aðeins klassískari og vandaðri vörur fyrir karlmenn,“ segir Svava. Kultur menn selja jakkaföt frá Paul Smith ásamt skófatnaði frá Lloyds og fleiri merkjum. ,,Þetta er eiginlega okkar svar við Kultur kvenbúðinni og er jafnframt verslun fyrir þá sem vilja fjárfesta í örlítið dýrari og vandaðri fatnað.“ Að sögn Svövu er hér um að ræða verslun sem sett er til höfuðs örlítið öðruvísi markhóp en til dæmis Gallerí Sautján. ,,Þrátt fyrir að þar sé einnig fatnaður fyrir yngra fólk þá er það samt þannig að við erum að miða við að markhópurinn okkar sé á aldrinum 25 til 45 ára.“ Svava segir að úrvalið í versluninni sé mikið. ,,Við erum með mikið af flottum jakkafötum ásamt því að hafa einnig hversdagsfatnað á boðstólum. Við leggjum mikla áherslu á góða þjónustu og gæðavörur á sanngjörnu verði. Þetta er í rauninni bara smart búð með vönduðum fötum fyrir flotta karlmenn á öllum aldri.“ Aðspurð um verðið á helstu jakkafötunum segir Svava það vera nokkuð misjafnt. ,,Ef við tökum til dæmis jakkaföt frá Paul Smith þá erum við að tala um verð allt upp í 55 þúsund krónur. Síðan er hægt að fá mjög góð jakkaföt á um 25 þúsund krónur ef menn vilja það“ segir Svava að lokum. Svava opnar svala herrafataverslun SVAVA JOHANSEN er hæstánægð með nýju herrafataverslunina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.