Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 79
MÁNUDAGUR 5. desember 2005
Þorbjörg var ein af
Thorsurunum
„Thor Jensen varð svo
mikið um er Þorbjörg
kona hans lést 14. október
1945 að hann gat naumast
afborið harminn. Valtýr
Stefánsson, sem skráði
endurminningar Thors,
var heima hjá honum á
Lágafelli á jarðarfarar-
daginn. ... „Eftir að
kirkjuathöfninni var lokið
leið nokkur stund. Var
engu líkara en hann væri
í leiðslu, og kom ég mér
ekki að því að yrða á hann.
En allt í einu kipptist hann
við og að honum kemur
eins og kuldahrollur. „Nú
eru þeir að sökkva henni
niður í hina köldu gröf,“
segir hann með angist í
röddinni, og var engu
líkara en að hann sæi
þennan atburð fyrir sér.
Síðar sagði hann mér, að
liðið hefði um það bil einn
mánuður eftir jarðar-
förina, uns hann treysti
sér til að rísa úr rekkju, og
þessi mánuður var
næstum úr meðvitund
hans. Svo sár var
hugarkvöl hans eftir
konumissinn.“
edda
edda.is
Bókin um Thorsarana
eftir
Guðmund Magnússon
komin í verzlanir.
tilkynning
10% ÚTBORGUN: 176.500 kr.
Opel Meriva DVD
A‹EINS 23.999 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.795.000 kr.
Opel Astra Caravan
A‹EINS 23.680 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.760.000 kr.
DVD spilari fylgir!
JÓLIN NÁLGAST!
NÁÐU FORSKOTI Á NÝJUM OPEL.
10% ÚTBORGUN 179.500 kr.
Opel Astra Hatchback
A‹EINS 22.810 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.695.000 kr.
10% ÚTBORGUN 169.500 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
*Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 10% útb. og eftirstö›var í 84 mánu›i.
Við erum í sérstöku hátíðarskapi og því býðst þér Opel á frábæru jólatilboði út allan
desember með einungis 10% útborgun! En það er ekki allt: Hverjum Opel fylgir
100.000 kr. gjöf frá Bræðrunum Ormsson handa þeim sem þér þykir vænt um.
Við hvetjum alla ökumenn til að aka varlega um hátíðarnar.
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
Fyrirtæki Svövu Johansen,
NTC, sem rekur meðal annars
verslanirnar Gallerí Sautján,
Smash og Deres, opnaði um síðustu
helgi glænýja herrafataverslun
sem ber nafnið Kultur menn. Nýja
verslunin er staðsett á Laugavegi
89 við hliðina á Galleri Sautján.
,,Það hefur gengið alveg frábær-
lega vel síðan við opnuðum og við
heyrum frá fólki að þetta sé búð
sem hefur vantað á Íslandi. Inni
í NTC erum við auðvitað með
verslanir eins og Evu fyrir konur
á þessum aldri en það hefur
vantað aðeins klassískari og
vandaðri vörur fyrir karlmenn,“
segir Svava. Kultur menn selja
jakkaföt frá Paul Smith ásamt
skófatnaði frá Lloyds og fleiri
merkjum.
,,Þetta er eiginlega okkar svar
við Kultur kvenbúðinni og er
jafnframt verslun fyrir þá sem
vilja fjárfesta í örlítið dýrari og
vandaðri fatnað.“
Að sögn Svövu er hér um
að ræða verslun sem sett er til
höfuðs örlítið öðruvísi markhóp
en til dæmis Gallerí Sautján.
,,Þrátt fyrir að þar sé einnig
fatnaður fyrir yngra fólk þá er
það samt þannig að við erum að
miða við að markhópurinn okkar
sé á aldrinum 25 til 45 ára.“ Svava
segir að úrvalið í versluninni sé
mikið. ,,Við erum með mikið af
flottum jakkafötum ásamt því
að hafa einnig hversdagsfatnað
á boðstólum. Við leggjum mikla
áherslu á góða þjónustu og
gæðavörur á sanngjörnu verði.
Þetta er í rauninni bara smart
búð með vönduðum fötum fyrir
flotta karlmenn á öllum aldri.“
Aðspurð um verðið á helstu
jakkafötunum segir Svava það
vera nokkuð misjafnt. ,,Ef við
tökum til dæmis jakkaföt frá Paul
Smith þá erum við að tala um verð
allt upp í 55 þúsund krónur. Síðan
er hægt að fá mjög góð jakkaföt
á um 25 þúsund krónur ef menn
vilja það“ segir Svava að lokum.
Svava opnar svala herrafataverslun
SVAVA JOHANSEN er hæstánægð með nýju
herrafataverslunina.