Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 82
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Það er þó nokkuð pönkaður sjarmi
yfir þessari sveit, Brakes. Ekki
vegna þess að hér sé allt bjagað,
urrandi hratt og hrátt. Heldur
vegna þess að á frumraun sinni
hljómar sveitin eins og hún kunni
ekkert svakalega mikið á hljóð-
færi sín. Enn og aftur sannast
speki Einars Arnar Benediktson-
ar, um að það skipti ekki máli hvað
þú kunnir, heldur hvað þú gerir.
Lagasmíðarnar hljóma líka
oft eins og þær séu eftir 13 ára
bílskúrssveit. Fæst laganna ná
tveimur mínútum á lengd, og fjög-
ur þeirra eru innan við 40 sekúnd-
ur. Hér er ekki verið að reyna að
gera neinar tilraunir til þess að
semja hið fullkomna popplag.
Aðal sveitarinnar fyrir mér
eru textarnir. Þeir eru ruddalega
æðrulausir og gera stólpagrín
að uppum á kókaíni og segja alls
kyns sögur af hljómsveitarmeð-
limum. Besti textinn er líklegast
I´ve Heard About Your Band sem
fjallar um það þegar sjálfselsk-
andi jakkafataherðatré reynir að
heilla söngvara sveitarinnar með
sögum af sjálfum sér og hversu
mikið hann þénar á mánuði. Söng-
kona Yeah Yeah Yeahs kemur við
sögu, en bara sem sögupersóna í
textanum. Næstsíðasta lagið er
svo Sometimes Always, tökulag
eftir Jesus and Mary Chain sem
skartaði þá söngkonu Mazzy Star
í aukahlutverki. Hér er textanum
breytt örlítið, þannig að í stað
þess að aðalröddin sé að syngja til
einnar stúlku, syngur hún til hóps
kvenna.
Frumraun Brakes býður ekki
upp á neina snilldartakta hvað
neitt varðar. En samt er hún mjög
skemmtileg og ég get ímyndað
mér að það sé frábært að sjá þessi
fíflalæti á sviði. Hljómar eins og
fimm sveittir strákar í æfinga-
húsnæðinu að spila, drekka bjór,
hlæja og leika sér þangað til að
annaðhvort strengirnir slitna, eða
meðlimir sjálfir.
Birgir Örn Steinarsson
BRAKES: GIVE BLOOD
NIÐURSTAÐA:
Það er ekkert alvarlegt eða dramatískt við
frumraun Brakes. Nokkuð illa spiluð og laga-
smíðar frekar barnalegar. Samt, af einhverjum
ástæðum, gengur þetta upp.
Út er komin önnur prentun á
myndasögubókinni Óli píka eftir
Ómar Örn Hauksson, nema og
poppara. Þetta er fyrsta mynda-
saga Ómars Arnar og gefur hann
bókina út sjálfur.
Þessi nýja prentun er
endurbætt, með fleiri skrítlum og
formála eftir Höskuld Ólafsson,
fyrrverandi félaga Ómars úr
hljómsveitinni Quarashi.
Óli píka fjallar um ævi og
ástir ungs drengs sem er svo
seinheppinn að hafa fæðst
með sköp í stað andlits og þau
vandamál sem þessi ákveðni galli
ber með sér. Bókin er gluggi inn
í sálartetur okkar, segir það sem
við erum öll að hugsa og leyfir
okkur að hlæja að tabúum okkar
samfélags. Er hún ekki talin henta
viðkvæmum.
Bókin kemur út í takmörkuðu
upplagi og verður aðeins seld í
versluninni Nexus Hverfisgötu 103.
Óli píka
endurbættur
ÓLI PÍKA Myndasögubókin um Óla píku er
komin út í endurbættri útgáfu með fleiri
skrítlum en áður.
Hið óhugsandi gerðist á CBS síð-
astliðið fimmtudagskvöld. Spjall-
þáttadrottningin Oprah Winfrey
mætti í kvöldþátt Davids Letter-
man en þau hafa ekki ræðst við í
sextán ár. Áhorfendur Lettermans
hafa ekki farið varhluta af því að
Oprah væri á leiðinni því þættir
hans hafa snúist meira eða minna
um þessa sögulegu heimsókn.
Það fór mjög vel á með þeim og
ræddu þau meðal annars ástæðuna
fyrir þessu samskiptaleysi þeirra á
milli. Letterman hefur gert óspart
grín að Opruh í þáttum sínum og
lét hún meðal annars hafa það eftir
sér í tímaritinu Time Life að hún
gæti ekki hugsað sér að mæta til
Lettermans vegna allra brandar-
anna. Stríðsöxin var engu að síður
grafin en sjónvarpsáhorfendur
tóku eftir því að Oprah sjálf var
greinilega mjög taugaóstyrk eins
og hún byggist við öllu því versta.
Letterman sagðist á hinn bóg-
inn vera himinlifandi yfir að hafa
getað talað hana til en spjallþátt-
adrottningin var ekki sannfærð
um heilindi hans. Letterman kom
henni augljóslega á óvart með því
að hrósa þættinum og Opruh sjálfri
fyrir framlag hennar til þróunar-
mála í Afríka. „Þú hefur gefið lífi
þessa fólks einhvern tilgang. Við
erum bara sjónvarpsþáttur,“ sagði
Letterman og sló hana út af laginu
með þessum gullhömrum sínum
Letterman lauk þættinum á að
fylgja Opruh til frumsýningar á
söngleiknum The Color Purple
en hann er byggður á samnefndri
kvikmynd Stevens Spielberg. ■
Sextán ára stríði lokið
HIÐ ÓHUGSANDI HEFUR GERST Letterman fylgir Opruh Winfrey á Broadway en verið var að
setja upp söngleik eftir kvikmyndinni The Color Purple.
Hljómsveitirnar Forgotten Lores
og TMC Crew ætla að slá saman
í spikfeita hiphop- og funkveislu í
Stúdentakjallaranum í kvöld.
Forgotten Lores mun koma fram
með lifandi undirleik eins og þeir
meðal annars gerðu á Iceland Air-
waves og þegar þeir hituðu upp
fyrir Snoop Dogg í Laugardals-
höll í sumar. Twisted Minds Crew
kemur einnig fram með lifandi
undirleik. Beatmaking Troopa og
DJ B-Ruff hita upp. Húsið opnar
klukkan 22.00. ■
Forgotten
Lores og
TMC í kvöld
FORGOTTEN LORES Hljómsveitin mun slá
saman í mikla hiphop- og funkveislu í
Stúdentakjallaranum í kvöld.
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.30
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 áraSýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Fimm sveittir strákar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 5.20 og 10.15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
���
- HJ MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
- SV MBL
Þóra Hallgrímsson
Þegir um
meinta förgun
á bókarkafla
um fyrrverandi
DV2x10 4.12.2005 19:41 Page 1