Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 85
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 41
Enska úrvalsdeildin:
CHARLTON-MAN. CITY 2-5
0-1 Andy Cole (25.), 1-1 Darren Bent (36.), 1-2
Trevor Sinclair (37.), 1-3 Joey Barton (69.), 2-3 Jay
BothRoyd (73.), 2-4 Darius Vassell (79.), 2-5 Andy
Cole (84.).
STAÐA EFSTU LIÐA
CHELSEA 15 13 1 1 34-7 40
MAN. UTD 14 9 3 2 24-13 30
LIVERPOOL 14 8 4 2 18-8 28
TOTTENHAM 15 7 6 2 19-12 27
ARSENAL 14 8 2 4 22-12 26
BOLTON 14 8 2 4 17-13 26
WIGAN 14 8 1 5 16-13 25
MAN. CITY 15 7 3 5 20-14 24
WEST HAM 13 5 4 4 17-13 19
M´BROUGH 15 5 4 6 20-21 19
CHARLTON 14 6 1 7 19-23 19
Spænska úrvalsdeildin:
ALAVES-MALLORCA 0-3
0-1 Victor Casadesus (46.), 0-2 Victor Casadesus
(52.), 0-3 Mark Iuliano (64.).
CADIZ-R. ZARAGOSA 1-3
1-0 Fernando Enrique (17.), 1-1 Ruben Cani (68.),
1-2 Ewerthon (70.).
ESPANYOL-VALENCIA 1-3
0-1 Miguel Angulo (15.), 0-2 David Villa (42.), 0-3
Pablo Aimar (61.), 1-3 Ferran Corominas (64.).
RACING-REAL SOCIEDAD 2-2
0-1 Alvaro Novo (20.), 0-2 Oscar De Paula (50.),
1-2 Antonio (67.), 2-2 Mikel Alonso (85.).
MALAGA-OSASUNA 1-2
0-1 Pierre Webo (23.), 1-1 Nacho (38.), 1-2 Valdo
(41.).
VILLAREAL-BARCELONA 0-2
0-1 Juan Pena, sjálfsmark (24.), 0-2 Deco (63.).
Ítalska úrvalsdeildin:
FIORENTINA-JUVENTUS 1-2
0-1 David Trezeguet (8.), 1-1 Giampaolo (40.), 1-2
Mauro Camoranesi (88.).
LAZIO-SIENA 3-2
1-0 Paulo Di Canio (42.), 1-1 Erjon Bogdani (52.),
2-1 Aparecido Cesar (60.), 3-1 Igli Tare (79.), 3-2
Angelo Peruzzi, sjálfsm. (90.).
SAMPDORIA-EMPOLI 2-0
1-0 Marco Borriello (78.), 2-0 Francesco Flachi
(87.).
PALERMO-CAGLIARI 2-2
1-0 Andrea Caraccilo (20.), 2-0 Stephan Makinwa
(22.), 2-1 Daniele Conti (64.), 2-2 Francesco Bega
(89.).
TREVISO-MESSINA 0-0
UDINESE-LIVORNO 0-2
0-1 Christian Obodo, sjálfsm. (1.), 0-2 Christiano
Lucarelli (73.).
REGGINA-PARMA 2-1
1-0 Francesco Gozza (9.), 1-1 Giuseppe Cardone
(12.), 2-1 Gaetanto De Rosa (20.).
STAÐA EFSTU LIÐA
JUVENTUS 13 13 0 1 31-8 39
AC MILAN 14 10 1 3 30-15 31
INTER 14 9 2 3 25-11 29
FIORENTINA 14 9 2 3 29-16 29
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Efasemdir um getu David
Beckham til að vera fyrirliði
enska landsliðsins vöknuðu enn og
aftur um helgina þegar hann fékk
að líta rauða spjaldið í þriðja sinn
á tímabilinu. Beckham fékk beint
rautt spjald fyrir að tækla Riki,
leikmann Getafe, á 56. mínútu
á laugardag, en Real Madrid
vann leikinn 1-0 með marki frá
Ronaldo. Þetta var í fjórða sinn
sem Beckham er rekinn af velli
hjá Real en á ferlinum hefur
Beckham, fengið að líta rauða
spjaldið alls sjö sinnum.
Englendingar eru ekki ánægðir
með að sjá Beckham missa stjórn
á sér inni á vellinum sífellt oftar
og vilja margir meina að hann
sé ekki hæfur til að leiða enska
landsliðið á HM í Þýskalandi á
næsta ári. Beckham lét sér ekki
nægja að vera rekinn út af því er
hann var að ganga til búningsklefa
lenti hann í hörðu orðaskaki við
Bernd Schuster, þjálfara Getafe,
og þurfti á endanum að draga
Beckham inn í göngin.
„Hann er undir mikilli
pressu í augnablikinu eins og
allir leikmenn liðsins og hann
einfaldlega varð of bráður í eitt
andartak. Svona getur komið fyrir
alla,“ sagði Valeri Luxemburgo,
þjálfari Real, eftir leikinn þegar
hann reyndi að afsaka hegðan
Beckham. Schuster greindi frá
því fjölmiðla eftir leikinn hvað
hann hefði sagt við Beckham sem
hefði æst hann jafn mikið upp og
raun bar vitni. „Ég sagði bara við
hann: Til hamingju með frábæran
leik.“ - vig
Agavandamál Davids Beckham halda áfram:
Sá rautt í þriðja sinn í ár
BRJÁLAÐUR David Beckham ætlaði
hreinlega að vaða í þjálfara Getafe
eftir að hafa verið rekinn af velli á
laugardag. Þá hafði hann hrósað
Beckham í kaldhæðni eftir leikinn.
FÓTBOLTI Það ræðst á miðvikudag
hvort Manchester United kemst
áfram í meistaradeildinni en
þá fer liðið til Portúgal og mun
kljást við Benfica. United þarf
líklegast á sigri að halda til að
komast áfram en jafntefli gæti
þú dugað ef úrslitin úr leik Lille
og Villareal reynast hagstæð.
Það verður líklega mikil spenna
og taugaveiklun í Lissabon en Sir
Alex Ferguson, stjóri United, er
sannfærður um að liðið komist
áfram.
„Ég hugsa ekki einu sinni út í
það ef við komumst ekki áfram.
Við komumst upp úr riðlinum,
engar áhyggjur. Ég veit að fólk
sem tengist félaginu ekki hatar
ekki þessa stöðu en við þurfum
bara að vinna okkar vinnu. Það
skiptir ekki máli hvort við vinnum
riðilinn eða ekki, það sem skiptir
máli er að komast áfram,“ sagði
Ferguson. -egm
Alex Ferguson, stjóri Man Utd:
Við munum
komast áfram
SIR ALEX Sannfærður um að United komist
áfram í meistaradeildinni.