Fréttablaðið - 05.12.2005, Qupperneq 88
5. desember 2005 MÁNUDAGUR44
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Geggjað tilboð í dag, mánudag.
890,- kr.kg
Af öllum ferskum fiski í dag.
Skötuselur, lúðusneiðar, laxaflök
ýsuflök og fleira og fleira
ALLT KR: 890,-
Tilboðið gildir aðeins í dag og í báðum verslunum.
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti
Sími 553-0003
22
� � SJÓNVARP
� 15.30 Helgarsportið á RÚV. Endur-
sýndur þáttur frá því í gær.
� 15.55 Ensku mörkin á RÚV. Mörk-
in úr leikjum helgarinnar í ensku úr-
valsdeildinni.
� 18.00 Íþróttaspjallið á Sýn. Fjallað
um heitustu mál dagsins.
� 18.12 Sportið á Sýn. Farið yfir
íþróttafréttir dagsins.
� 18.30 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Útsending frá leik Kansas og Denver
frá því í gærkvöldi.
� 21.00 Ítölsku mörkin á Sýn. Öll
mörkin og tilþrifin úr leikjum helgar-
innar á Ítalíu.
� 21.30 Spænsku mörkin á Sýn. Öll
mörk helgarinnar verða sýnd.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Mánudagur
DESEMBER
3. október 2005 MÁNUDAGUR
� � LEIKIR
� 16.00 Grindavík og Haukar
mætast í Iceland Express-deild
kvenna í Grindavík.
� 19.15 Skallagrímur og Höttur
mætast í Iceland Express-deild karla
í Borgarnesi.
� 19.15 Fjölnir og Keflavík mætast í
Iceland Express-deild karla í
Grafarvogi.
� 19.15 Haukar og ÍR mætast í
Iceland Express-deild karla á
Ásvöllum.
� 19.15 Þór Ak. og Selfoss mætast í
Iceland Express-deild karla á
Akureyri.
� 19.15 KR og Snæfell mætast í
Iceland Express-deild karla í DHL-
höllinni.
� 19.15 Njarðvík og Grindavík
mætast í Iceland Express-deild karla
í Njarðvík.
� � SJÓNVARP
� 10.10 Hnefaleikar á Sýn.
Útsending frá bardaga Jermaine
Taylor og Bernard Hopkins frá því í
nótt.
� 13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Juventus og
Fiorentina.
� 15.50 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Charlton og Man.City.
� 15.50 Meistaradeildin í
handbolta á Sýn. Bein útsending frá
leik Magdeburg og Barcelona.
� 17.20 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur um þessa sterkustu
knattspyrnudeild í heimi.
� 17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Villareal og
Barcelona.
� 20.30 Helgaruppgjör á Enska
boltanum.
� 21.30 Helgarsportið á RÚV. Farið
verður yfir íþróttaviðburði
helgarinnar.
� 21.50 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Útsending frá viðureign Kansas og
Denver í NFL-deildinni.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Sunnudagur
DESEMBER
� � LEIKIR
� 15.00 ÍBV og Selfoss mætast í
DHL-deild karla í Vestmannaeyjum.
� 15.30 Breiðablik og ÍS mætast í
Iceland Express-deild kvenna í
Smáranum.
� 15.30 KA og Steaua Búkarest
mætast í Áskorendakeppni Evrópu í
handbolta karla.
� 16.15 Fram og HK mætast í DHL-
deild karla í Safamýri.
� 16.15 Afturelding og Haukar
mætast í DHL-deild karla í
Mosfellsbæ.
� � SJÓNVARP
� 10.40 NBA á Sýn. Útsending frá
leik Pheonix og Denver frá því í
gærkvöldi.
� 12.00 Upphitun á Enska boltanum.
� 12.35 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Liverpool og Wigan.
� 13.10 Ensku mörkin á Sýn. Mörkin
úr ensku 1. deildinni.
� 13.20 Fimleikar á RÚV. Upptaka frá
móti þar sem bestu fimleikamenn
landsins voru samankomnir.
� 13.35 Spænsku mörkin á Sýn. Öll
mörkin og tilþrifin úr spænsku
úrvalsdeildinni.
� 14.05 Motorworld á Sýn.
� 14.35 Fifth Gear á Sýn.
� 14.40 Á vellinum með Snorra Má
á Enska boltanum.
� 15.00 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Chelsea og Middlesbrough. Allir
aðrir leikir dagsins verða sýndir á
öðrum rásum Skjásins.
� 15.00 Race of Champions á Sýn.
� 16.05 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV.
� 17.00 A1 Grand Prix á Sýn.
Fréttaþáttur um heimsbikarinn í
kappakstri.
� 17.15 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Man.Utd. og Portsmouth.
� 20.00 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Real Madrid og
Getafe.
� 21.40 Best á Sýn. Þáttur um
knattspyrnumanninn fyrrverandi
George Best.
� 02.00 Hnefaleikar á Sýn. Bein
útsending frá bardaga Jermaine
Taylor og Bernard Hopkins.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
30 1 2 3 4 5 6
Laugardagur
DESEMBER
74-75 (22-23) sport 3 2.12.2005 12:15 Page 2
FÓTBOLTI Frammistaða 2. deildar-
liðsins Doncaster Rovers í ensku
deildarbikarkeppninni í ár hefur
verið lyginni líkust. Liðið er nú
komið í átta liða úrslit keppninnar
eftir að hafa gjörsigrað Aston Villa
í vikunni 3-0 en þar áður hafði liðið
borið sigurorð af Manchester City
í sömu keppni. Liðið er í áttunda
sæti 2. deildarinnar í Englandi og
á hraðri uppleið en það sem færri
vita er að fyrir minna en áratug
var allt útlit fyrir að félagið yrði
lagt niður.
Árið 1998 féll Doncaster úr
3. deildinni niður í utandeildina
á Englandi, eftir að hafa fengið
lánaðar keppnistreyjur frá
Sheffield United í síðustu leikjum
tímabilsins þar sem félagið hafði
ekki efni á sínum eigin. Félagið
var rústir einar og enginn hafði
áhuga á að koma með fjármagn inn
í það. Þá ákvað John nokkur Ryan,
stuðningsmaður Doncaster til
fjölda ára, að taka áhættu og veita
félaginu stuðning til að komast á
ról á nýjan leik. Á örskömmum
tíma varð Ryan að hetju innan
félagsins, enda dreif hann alla
með sér með sínum mikla metnaði,
bjartsýni og ósérhlífni. Doncaster
náði strax að vinna sér aftur sæti
í deildarkeppninni en sat fast í 3.
deildinni allt til ársins 2001. Þá kom
til skjalanna knattspyrnustjórinn
Dave Penney, sem ásamt Ryan
á langstærstan þátt í upprisu
Doncaster en í heildina hefur
Ryan lagt 500 milljónir króna í
starfsemi félagsins.
Penney fékk til félagsins vel
valda leikmenn sem voru án
samnings og árið 2003 vann liðið
sig upp í 2. deildina. Þar kom
liðið gríðarlega á óvart og varð
meistari strax á sínu fyrsta ári.
Í fyrra hafnaði liðið í tíunda sæti
2. deildar eftir að hafa verið spáð
falli fyrir tímabilið og í dag er liðið
í áttunda sæti þegar þriðjungur
er liðinn af mótinu. Liðið þykir
spila hraðan og stórskemmtilegan
fótbolta sem hefur nú skilað liðinu
í átta liða úrslit deildarbikarsins.
„Dave hefur sannað hæfni
sína sem þjálfari með því að
búa til öfluga liðsheild úr minni
spámönnum sem eru færir til
að spila úrvalsdeildarlið sundur
og saman,“ segir Andy Liney,
formaður stuðningsmannafélags
Doncaster, sem hefur aldrei á
sinni ævi upplifað skemmtilegri
tíma. Nýr sextán þúsund manna
heimavöllur er langt kominn í
byggingu og stefnir liðið á að
spila leiki sína þar frá og með
áramótunum 2006. „Ef við
höldum áfram að bæta okkur og
komumst upp í 1. deildina veit
ég að það verður uppselt á hvern
einasta leik,“ segir Liney, en það
var einmitt langtímamarkmið
Ryans þegar hann ákvað að
setja peninga í félagið - að gera
Doncaster að góðu 1. deildarliði
sem ætti möguleika á að komast
í úrvalsdeildina. „Með sama
áframhaldi verður raunin orðin sú
eftir fimm ár. Doncaster verður
á meðal tíu efstu í 1. deildinni,
og liðið mun spila góðan fótbolta
á nýja heimavellinum sínum.
Sannkallaður draumur,“ segir
Liney. - vig
Upprisa sem er engri lík
Fyrir sjö árum féll Doncaster Rovers úr enskri deildakeppni. Í dag hefur liðið sett
markmiðið á sæti í 1. deildinni og framundan er draumaleikur gegn Arsenal.
SPÚTNIKLIÐIÐ Miðjumaðurinn Sean Thornton sést hér faðma stjóra sinn, Dave Penney, eftir að
hann hafði skorað fyrir Doncaster gegn Aston Villa í deildarbikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI „Arjen Robben er leik-
maður sem hefur lítið gert fyrir
okkur á þessu tímabili, hann ætti
að gefa okkur miklu meira,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, sem hefur orðið fyrir
vonbrigðum með frammistöðu
hollenska vængmannsins það sem
af er leiktímabili. Robben hefur
átt við meiðsli að stríða og skort
sjálfstraust, hann hefur aðeins
verið skugginn af sjálfum sér frá
því á síðasta tímabili.
„Hann hefur verið eitthvað
meiddur en hann er nú búinn að
ná sér og sýndi gamla takta í leikn-
um gegn Middlesbrough. Þegar
maður hefur verið frá þarf maður
að koma aftur af krafti og auka
sjálfstraustið. Hann er ekki enn
tilbúinn til að spila heilan leik en
þetta er á réttri leið,“ sagði Mou-
rinho. -egm
Jose Mourinho stjóri Chelsea:
Vill meira frá
Arjen Robben
ARJEN ROBBEN Hefur ekki spilað eins vel í
ár og hann gerði á síðustu leiktíð.
FÓTBOLTI Alan Pardew, knatt-
spyrnustjóri enska úrvalsdeildar-
liðsins West Ham, hefur staðfest
að hann sé að reyna að fá Teddy
Sheringham til að framlengja sam-
ning sinn við félagið. Sheringham
mun halda upp á fertugsafmæli sitt
í apríl og var fastlega reiknað með
því að hann myndi leggja skóna
á hilluna að loknu tímabili. Hins
vegar hefur hann spilað mjög vel
á þessu tímabili og ef hann heldur
því áfram sér Pardew ekki hvers
vegna hann ætti að hætta.
„Við ætlum að tala við Teddy
strax eftir tímabilið um fram-
tíðina. Ég veit að honum sjálfum
finnst sem hann geti spilað áfram
án nokkurra vandræða og myndi
skrifa undir tíu ára samning strax
í dag ef hann fengi færi á. Þrátt
fyrir aldurinn tel ég að hann sé alls
ekki búinn,“ sagði Pardew. -egm
Pardew vill ekki missa Teddy:
Sheringham
ekki hættur?
TEDDY SHERINGHAM Spilar hann eitt ár í
viðbót með West Ham?
FÓTBOLTI Steve Bruce, knatt-
spyrnustjóri Birmingham, segist
vel finna fyrir pressunni en lið
hans hefur byrjað tímabilið ansi
illa. Eftir ágætis árangur síðasta
tímabil hefur annað verið upp á
teningnum að þessu sinni og liðið
verið að berjast á röngum enda
töflunnar. Bruce segir að þetta
hafi haft áhrif á fjölskyldulíf sitt
og að hann hafi alvarlega íhugað
það að hætta afskiptum af fótbolt-
anum.
„Stressið er mikið og það
getur haft slæm áhrif á heilsufa-
rið. Síðustu vikur hefur fjölskylda
mín þjáðst vegna þess að ég hef
þjáðst. Þetta hefur verið rosalega
erfitt og ég hef hugsað út í það
að segja þetta bara gott,“ sagði
Bruce, en Birmingham er í næst-
neðsta sæti deildarinnar og tekur
í kvöld á móti West Ham. -egm
Bruce á ekki sjö dagana sæla:
Hugsaði um að
segja upp