Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 34
[ ]
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Staflarar
einnig úrval af pallettutjökkum
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
BÍLSTJÓRAR - HÆTTIÐ AÐ PRÍLA!
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000 • www.islandia.is/scania
Notagildi og verð skipta miklu
máli en hljómflutningstæki, út-
lit og hönnun hafa minni áhrif.
Samkvæmt niðurstöðum víðtækr-
ar Evrópurannsóknar er öryggi sá
þáttur sem ræður mestu við val á
nýjum bíl. Rannsóknin var gerð á
vegum Euro NCAP með það fyrir
augum að kortleggja hvaða þætt-
ir væru ráðandi þegar kaupendur
gera upp á milli ólíkra bíltegunda.
Næst á eftir öryggi kom áreiðan-
leiki, að Bretum og Þjóðverjum
undanskildum sem settu áreiðan-
leikann á undan örygginu.
Rannsóknin staðfesti jafn-
framt að bílakaup grundvallast á
tveimur ytri þáttum sem eru nota-
gildi og verð. Þessir ytri þættir
grófflokka hvaða bílar koma til
greina hverju sinni og í hvaða
verðflokki. Fjölskyldufólk sigtar
þannig út tveggja sæta sportbíla,
svo að dæmi sé tekið, ásamt þeim
verðflokkum sem falla utan tekju-
markanna. Innri þættir skilja
svo á milli þeirra bíla sem koma
til greina. Þar vega öryggismál-
in þyngst, eins og áður segir, og
áreiðanleiki næstþyngst.
Næst á eftur öryggi og áreið-
anleika voru aksturseiginleikar
og rekstrarkostnaður. Í öllum
löndum settu aðspurðir þessa
tvo þætti í annaðhvort þriðja eða
fjórða sætið. Mun minni áhrif á
bílaval höfðu síðan atriði á borð
við orðstír/gæði, útlit/hönnun,
loftkælingu, hljómflutningstæki
og leiðsögukerfi. Í Austur-Evr-
ópulöndunum var reyndar lögð
mun meiri áhersla á útlit/hönnun
en í öðrum Evrópuríkjum.
47% aðspurðra sögðust leita sér
upplýsinga um öryggi og öryggis-
búnað bíla. Þeir fróðleiksfúsustu
í þessum efnum reyndust vera
Þjóðverjar (70%). Næstir voru
Tékkar (47%) og þá Bretar og Pól-
verjar (42%). Af þeim sem keyptu
sér bíl sögðust 57% hafa leitað sér
upplýsinga um öryggi bílsins áður
en hann var keyptur. Þessara upp-
lýsinga er meðal annars aflað í
sérhæfðum bílablöðum (20%), hjá
vinum og kunningjum (19%) og í
öðrum fjölmiðlum en bílablöðum
(17%).
Marktækur munur reyndist
vera á milli tekjuhópa. Þeir sem
tilheyra tekjuhærri hópnum lögðu
aðeins meiri áherslu á öryggi
(96%) og áreiðanleika (97%) en
þeir tekjulægri (89% og 88%).
Þá voru kynin ekki heldur alveg
samstiga í sinni afstöðu, þar sem
karlarnir reyndust hafa ívið meiri
áhuga á aksturseiginleikunum.
Jafnframt reyndust karlarnir
oftar hafa lokaorðið varðandi val
á bíl eða í um 60% tilvila.
Rannsóknin var gerð af MORI
(Market & Opnion Research Int-
ernational) og byggir á svörum
1000 einstaklinga frá hverju
þátttökulandi. ■
Öryggi ráðandi þáttur við val á bíl
Í könnun sem Euro NCAP gerði á dögunum kemur fram að meginþorri bílakaupenda lítur á öryggi sem ráðandi þátt í vali sínu.
Rúðuþurrkur verða lélegar með tímanum. Það verður að skipta reglu-
lega um rúðuþurrkur því það er mikið öryggisatriði að það sjáist almenni-
lega út um gluggana á bílunum.