Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 10. desember 2005 13
Það eru ekki margir karlmenn
sem þora að klæðast hvít-
um leðurskóm. Þeir finnast
þó hér og þar um bæinn og
tískuspekúlantar vilja meina
að karlmönnum sem klæðist
slíkum skóm fari ört fjölgandi.
,,Við fengum sendingu af hvít-
um leðurskór seinasta sumar.
Hvítir skór eru mjög sumarleg-
ir og gætu orðið vinsælli næsta
vor. Þeir eru reyndar fyrir viss-
ar týpur og það er ekki rífandi
eftirspurn eftir þeim,“ segir
Magnús Ketilsson, verslunar-
stjóri Sautján á Laugavegi.
Hvíta leðurskó handa karl-
mönnum er ekki að finna í öllum
skóbúðum. Gyllti kötturinn fékk
þó um daginn gamlan lager sem
innihélt meðal annars slíka skó.
,,Það er einn og einn sem er að
fá sér hvíta leðurskó. Strákar
eru yfir höfuð að biðja um fleiri
liti, eru orðnir þreyttir á þess-
um týpísku svörtu. Strákar vilja
vera meira spes en áður,“ segir
Jóna Elísbet Ottesen, starfs-
maður Gyllta kattarins.
Í einu versluninni með not-
aðan fatnað sem selur einungis
karlmannsfatnað er nýbúið að
selja síðustu tvö pörin af hvítum
leðurskóm. ,,Mér finnst hvítir
leðurskór mjög svalir. Þú verður
líka að vera svalur persónuleiki
til þess að klæðast þeim, það
getur ekki hver sem er gert það.
Menn verða að passa líka vel
upp á fatasamsetninguna. Til
dæmis er hægt að vera í flottum
svörtum buxum og bleikum bol
eða í einhverjum daufum litum,
nálægt hvítu. Það er einnig
hægt að klæðast einhverju mjög
dökku að ofan. Ég held að fólki
finnist hvítir leðurskór yfir
höfuð ekki hallærislegir. Ég
vona samt að allir byrji ekki
að klæðast svona leðurskóm,
ég fíla meira skemmtilegan
neðanjarðarfatnað,“ segir
Krummi, söngvari í Mínus,
sem nú er verslunarstjóri
Elvis á Vatnsstíg.
steinthor@frettabladid.is
Hvítir leðurskór fyrir svala karlmenn
Hvítir leðurskór
eru mjög svalur
skófatnaður.
Leni, nítján mánaða dóttir þýsku
fyrirsætunnar Heidi Klum, hefur nú
þegar skoðanir á klæðnaði sínum.
,,Hún er mjög stelpuleg,“ segir
Heidi, sem einnig á þriggja mánaða
soninn Henry. ,,Ég var ekki svo hrifin
af þessu bleika þema, en það er í
uppáhaldi hjá henni. Hún velur sér
sjálf fötin sem hún klæðist.“
Heidi Klum er komin með nýja teg-
und raunveruleikaþátta. Þar fá tólf
fatahönnuðir að spreyta sig en sá
sem sigrar hlýtur að launum 100.000
dollara til að hefja framleiðslu á
sinni eigin fatalínu og tilsögn frá
Banana Republic. Elizabeth Hurley,
Jade Jagger, Jemima French og Sadie
Frost mættu saman á frumsýningu
þáttanna sem verða sýndir á Sky
One á næsta ári.
Naomi Camp-
bell leikur
aðalhlutverkið
í nýrri kvik-
mynd. Myndin
sem kemur í
kvikmyndahús
seint á næsta
ári heitir Karma,
Confessions and
Holi og er leiks-
týrð af Manish
Gupta.
,,Ef ég er í
brjóstahaldara
sem passar ekki
við nærbuxurnar
finnst mér eins
og ég sé hölt,“
segir ofurfyrir-
sætan Elle
Macpherson,
sérfræðingur
í undirfötum.
,,Það er einhvern
veginn ekki rétt.“
Karl Lagerfeld kynnti á
dögunum nýjustu hönn-
un Chanel í New York.
Fötin voru sýnd á
tveimur sýningum,
annars vegar fyrir
tískufjölmiðla en
hins vegar fyrir
stjörnur og voru
Lindsay Lohan
og Claire Danes
þar á meðal.
,,Coco Chanel-hönn-
unin var einstaklega
fáguð og Karl segir
að snyrtilegur, glans-
andi og óaðfinnan-
legur klæðnaður sé
kominn aftur í tísku,“
sagði blaðamaður
Vogue, Andre Leon
Talley.
fólk }
Af nærfötum og
nýjum þáttum
FRÆGAR FYRIRSÆTUR HAFA Í ÝMSU
AÐ SNÚAST.