Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 10. desember 2005 3
Með nýjum dælulykli er hægt
að kaupa bensín á öllum stöðv-
um Atlantsolíu án nokkurrar
fyrirhafnar.
Dælulykillinn er tengdur greiðslu-
korti og er afar einfaldur í notkun.
Lykillinn er borinn að lyklalesara
dælunnar sem á skammri stundu
gengur úr skugga um að lykill og
kort sé í gildi. Þegar búið er að
dæla má biðja um kvittun með því
að bera dælulykilinn aftur að les-
aranum. Kortið er svo skuldfært
fyrir þá upphæð sem dælt er á
bifreiðina hverju sinni.
„Þetta er ein mesta bylting við
eldsneytiskaup síðan greiðslu-
kort voru kynnt fyrir um 15
árum,“ segir Hugi Hreiðarsson
hjá Atlantsolíu. „Við vitum fyrir
víst að bíleigendur vilja tvennt,
annars vegar eldsneyti á sem
bestum kjörum og hitt að það
taki sem stystan tíma að nýta sér
þjónustuna. Með dælulyklinum
er brotið blað í þessum efnum
þar sem lykileigandi þarf ekki að
stimpla inn PIN-númer, velja útt-
tektarupphæð eða leita að vesk-
inu.“
Dælulykillinn er ókeypis og
veitir einnar krónu afslátt af
hverjum lítra af bensíni sem
keyptur er. Lykillinn var kynntur
1. desember og hafa bensínkaup-
endur sýnt talsverðan áhuga að
sögn Huga.
Hægt er að sækja um dælulyk-
il á heimasíðu Atlantsolíu www.
atlantsolia.is. ■
Ekkert kort og engir seðlar
Dælulykill Atlantsolíu er einfaldur í notkun, einungis þarf að láta nemann lesa af lyklinum
til að hægt sé að dæla bensíni.
Bílskúrssalan er haldin í sam-
vinnu við félaga ýmissa bíla-,
jeppa- og mótorhjólaklúbba, auk
annarra áhugamanna um vélar
og tæki. „Í raun má hver sem er
koma með það sem hann vill til að
selja og eða skipta,“ segir Ragnar
Stefánsson, verslunarstjóri í Bíla-
búð Benna. Hver og einn getur
sett upp bás á eigin vegum og haft
vörur sínar á eigin borðum, vöru-
brettum eða gólfinu eftir hent-
ugleikum og er öllum velkomið
að vera með að kostnaðarlausu.
„Þetta er tilvalinn prúttmarkaður
fyrir alla sem vilja koma gamla
dótinu sínu í verð og eða skipta á
öðrum hlutum. Þarna geta menn
fundið hlutinn sem hefur vantað
í Corvettuna í öll þessi ár, fram-
brettið á jeppann sem var allt of
dýrt í umboðinu eða selt moto-
cross-stígvélin af syninum sem
hann er vaxinn upp úr.“
Bílskúrssalan verður haldin
í húsi Bílabúðar Benna, Tangar-
höfða 2 á sama stað og afmælis-
sýning Kvartmíluklúbbsins var
haldin í október. Opið verður frá
kl. 11 til 17 í dag en 13 til 17 á
morgun sunnudag. ■
Bílskúrssala í
Bílabúð Benna
Bílabúð Benna stendur fyrir
bílskúrssölu og útsölu í Bíla-
búðinni um helgina. Allir eru
velkomnir með það sem þeir
vilja selja eða skipta.
Nýi Yaris-inn hefur bæði verið
lengdur og breikkaður, auk þess
sem hjólhafið er meira en á fyr-
irrennaranum. Þetta þýðir meðal
annars allnokkra stækkun á far-
angursrými.
Mikið verður um dýrðir hjá
Toyotaumboðinu á Nýbýlavegi í
tengslum við frumsýninguna á
Yarisnum. Meðal annars munu
gestir eiga þess kost að sjá fyrsta
piparkökubílskúrinn sem útbúinn
hefur verið af landsliðsbökurum
utan um Toyota Yaris.
Opið er í dag frá kl. 12 til 16 og á
morgun sunnudag frá kl 13 til 16.
Nýr Yaris
Um helgina verður frumsýndur
nýr Toyota Yaris hjá umboðinu.
Nýr Toyota Yaris verður frumsýndur um
helgina.
Allir sem taka bensín hjá Shell fá
skafmiða sem gefur þeim möguleika
á að vinna miða á jólatónleika Frost-
rósa sem haldnir verða í Laugardals-
höll 10. desember.
Leikurinn er í samstarfi við stórtón-
leika Frostrósa og Bylgjuna. Margir
skemmtilegir aukavinningar eru
í boði en vinningar eru á öllum
miðum.
jólaleikur }
Jólatónleikar með
bensíninu
VINNINGAR Á ÖLLUM SKAFMIÐUM
HJÁ SHELL.