Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 46
[ ]Utanlandsferðir geta verið skemmtilegar jólagjafir. Fæstir hafa efni á því að gefa margar utanlandsferðir en það er kannski hægt að gefa ein-hverjum einum sem manni þykir mjög vænt um utanlandsferð í jólagjöf.
Ferðaskrifstofan Trans Atlant-
ic hefur verið starfandi í rúmt
ár. Ferðaskrifstofan flýgur
meðal annars frá Egilsstöðum
og Akureyri á áfangastaði víða
um heim.
Ferðaskrifstofan flýgur í sam-
vinnu við erlend flugfélög til
dæmis með Estonian Air, Dubrov-
nik Airline og Air Vilnius. Flest-
ar ferðirnar eru settar upp sem
pakkaferðir og sér ferðaskrif-
stofan fyrir fararstjóra. Pakka-
ferðirnar eru í ódýari kantinum
miðað við það verð sem ferðalang-
ar þekkja. Margir kjósa að kaupa
allan pakkann en einnig er hægt
að kaupa eingöngu flugfarið.
Trans Atlantic bjóða um pásk-
ana upp á ferðir til Pétursborgar
í Rússlandi og til miðaldaborgar-
innar Tallinn í Eistlandi. Flogið
er bæði frá Keflavík og Akur-
eyri til Tallinn og farið með rútu
til Pétursborgar. Þeir sem eru
áhugasamir um þessar ferðir
ættu samt að hafa hraðar hendur
þar sem selst hratt í þessa ferð.
Einnig er flogið til Vilníus í Lit-
háen gegnum Kaupmannahöfn.
Vilníus hefur yfir sér sjarma sem
margir þekkja frá bæði Prag og
Tallinn. Flogið er til beggja borga
allt árið.
Næsta sumar verður flogið frá
Akureyri, Egilstöðum og Kefla-
vík til Split í Króatíu og gist við
Adríahafið. Ferðin stendur yfir í
tíu daga. Einnig hefst sala, í enda
maí, á tveggja vikna ferðum til
Suður-Ameríku, Mexíkó, Belíss
og Gvatemala. Gist verður á fjög-
urra til fimm stjörnu hótelum þar
sem allt er innifalið. Gist verður í
bænum Playa Del Carmen sem er
60 kílómetra suður af Cancun og
í nánda við Gvatemala og Maya-
rústirnar sem margir kannast við
úr Survivor-þáttunum. Margir
nýta líka tækifærið og skjótast til
Kúbu. Trans Atlantic mun einnig
bjóða upp á þriggja landa ævin-
týraferðir til Mexíkó, Belíss og
Guatemala og verður sú fyrsta
farin í lok maí.
Spennandi áfangastaðir
víða um heim á lægra verði
Trans Atlantic flýgur til Kaupmannahafnar
og áfram til Vilníus allan ársins hring.
Einnig er boðið upp á ferðir til ýmissa
borga í Evrópu.
Kafað við strendur Mexíkó.
Strendur Belíss í Suður-Ameríku.
Trans Atlantic býður upp á þriggja landa
ævintýraferðir til Gvatemala, Belíss og
Mexíkó í Suður-Ameríku.
Úrslitamót heimsmeistara-
keppninnar í ísklifri verður
haldið í mars næstkomandi.
Íslenski Alpaklúbburinn vekur
athygli á því á heimasíðu sinni að
úrslit í heimsmeistaramóti ísklif-
ursmanna fer fram í Hemesdal
í Noregi dagana 3. til 5. mars á
næsta ári. Hemesdal, sem er á
milli Oslóar og Björgvinjar, býður
upp á stórkostlegar klifurleiðir
með stuttum aðkomum og er svæð-
ið að sögn kunnugra glæsilegasta
skíðasvæði Norðmanna. Fyrir þá
sem vilja fylgjast með mótinu hafa
kost á að fljúga með Flugleiðum
til Oslóar. Rútur ganga frá Osló-
arflugvelli til Hemelsdal föstu-
daga og sunnudaga. Hemesdal er
einnig mikil útivistarparadís og
því ætti sannur áhugamaður um
ferskt loft og vetraríþróttir ekki
að láta þennan viðburð fram hjá
sér fara. Nánari upplýsingar má
fá hjá íslenska Alpaklúbbnum eða
á www.hemesdal.com.
Heimsmeistaramótið í ísklifri verður haldið
í útivistarparadís Norðmanna fyrstu helgina
í mars. MYND ÚR SAFNI
Ísklifur í
Noregi
Á MORGUN STENDUR FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS FYRIR AÐVENTUFERÐ UM
MIÐBÆ REYKJAVÍKUR.
Lagt verður af stað
klukkan 17 á morgun
frá styttu Jóns Sigurðs-
sonar við Austurvöll.
Gengið verður um
miðbæ Reykjavíkur
með leiðsögumanni,
Ólafi Erni Haralds-
syni forseta Ferðafélagsins, og verða
göngumenn fræddir um sögu,
byggingar og menningu Reykjavíkur.
Litið verður inn í Alþingishúsið og
komið við í þingsalnum, þar sem saga
Alþingis Íslendinga
og byggingarinnar
verður kynnt. Því næst
tekur Hjálmar Jónsson
Dómkirkjuprestur
á móti hópnum í
Dómkirkjunni og
býður í kynnisferð um
kirkjuna. Á kirkjuloft-
inu verður boðið upp
á kaffi og meðlæti.
Þátttakan í aðventugöngunni er öllum
opin.
Aðventuferð um miðbæinn