Tíminn - 31.12.1976, Side 2

Tíminn - 31.12.1976, Side 2
2 Föstudagur 31. desember 1976 Þjófaflokkarnir tveir: Verðmæti býfisins skiptir hundruðum búsunda Gsal-Reykjavik — Eins og Timinn greindi frá i frétt i gær hefur verið komið upp um unglings- pilta/ sem hafa stundað þjófnaði. Er hér um að ræða tvo hópa unglinga/ og hefur annar hópurinn nær eingöngu stolið.verð- mætum úr íbúðum, en hinn í verzlunum, einkum hljómplötuverzlunum. I fyrri hópnum eru fimm unglingar. Þessir unglingar hafa stoliö varningi sem skiptir hundruö- um þúsunda að verðmæti. Fyrri hópurinn hefur fengizt við þjófnaðinn um nokkurt skeið og einkum stolið bókum i ibúðum. Að sögn Ilóru Hlinar hafa piltarnir fimrn selt bækurnar cinum fornbókasala, sem aldrei spurðist fyrir um það, hvernig bækurnar væru fengnar. Sagði Dóra Hlin, að piltarnir hefðu stolið heilu ritsöfnunum og farið með úttroðnar ferðatöskur til fornbókasalans. Auk bókanna hafa þessir piltar stolið öðrum verðmætum úr ibúðum s.s. skartgripum. Hinn Kópurinn, sem telur þrjá unglingspilta, hefur einkum stolið hljómplötum og kassettum i verzlunum i Reykjavik. Dóra Hlin sagði, að þessir piltar hefðu stundað hnup'ið i jólafriinu og væri hér um talsvert magn að ræða. Piltarnir fimm i fyrri hópnum hafa flestir að sögn Dóru Hlinar komið við sögu lögreglunnar áður, en hún kvaðst þó vilja geta þess, að tveir piltanna væru litið við málið riðnir. Piltarnir i hinum hópnum hafa ekki áður orðið uppvisir að þjófnuðum. 73 íslend- ingar fór ust á órinu Gsal-Reykjavík — Á árinu urðu 73 banaslys á íslandi, eða tíu banaslysum færra en á árinu 1975. Flestir fór- ust á sjó og vatni, alls 37, í umferðarslysum 21 og í ýmsum öðrum slysum 15. 1 fyrra fórust 18 á sjó og vatni, 35 i umferðarslysum, 7 i flugslys- um og 23 i ýmsum öðrum slysum. Flest urðu banaslys á þessu ári i marzmánuði, samtals 13, i júni 10, i ágúst 9, i april 8, i mai, okt, og nóv. 6, i des 5, í sept. 4 og i janúar og febrúar 1. Fjórir erlendir menn létust á Islandi á árinu. Geðdeild Landspítala íslands Göngudeild opnarvæntan lega á órinu 1978 F.l. Reykjavík. — Stærsta verkefni við mannvirkja- gerð á Landspítalalóðinni nú, þegar kvennadeildin og bráðabirgðahúsnæði bakteríuf ræðideildar Rannsóknastof u Háskól- ans eru frá, er bygging á Geðdeild Landspítala (s- lands. Fyrsta skóflustungan að Geð- deildinni var tekin i janúar 1974, en þá þegar hafði verið ákveðið að byggja hana i áföngum. Samið var fyrst við Miðfell h/f um alla jarðvinnu, og gekk verkið vel. öðrum útboðsáfanga lauk siðast- liðið sumar og hafði Armannsfell h/f veg og vanda af. Þriðji áfangi mun einnig falla i hlut Armannsfells. Nær tilboðið til U-hluta, sem nemur 68,2% af heildarrúmmáli byggingarinnar, og felur það i sér frágang úti- hurða, einangrun og múrhúðun innanhúss, ilögn og flisalögn á gólf og ofnhitunarherbergi, svo og raflagnir, loftræstikerfi og hrein- lætiskerfi að hluta. Að þessu loknu er að þvi stefnt, að göngudeild og 30 rúma legu- deildarrými njóti forgangs með nýju áfangaútboði á árinu 1977, og ef allt stenzt, má búast við opnun göngudeildar 1978. Heildarkostnaður við geðdeild- arbygginguna var seinast áætlað- ur i lok júni sl. og var þá talinn nema 591 m.kr. Öðrum áfanga Geðdeildar Landspitala tslands er nú lokið, og er húsið uppsteypt, rúður á sinum stað, og þak er fullfrá- gengið. Legudeildir verða 4 með 60 sjúkrarúmum alls, en auk þess er gert ráð fyrir 20 manna dagvistardeild. A efstu hæð hússius verður aðsetur lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og annars starfsliðs. Munu þeir hafa aðgang að sérhæföu bóka- safni, og er slikt nýnæmi. (Timamynd G.E.) RIKISSTARFSMENN ERU 12.000 FJ-Reykjavik. Nú munu ríkiss+arfsmenn vera um 12.000 talsins og er líkleg f jölgun á þessu ári um 200, að sögn Sigurðar Haraldssonar hjá f járlaga- og hagsýslustofnun f jármálaráðuneytisins. Sú stof nun hef ur nú sent f rá sér starfsmannaskrá ríkisins 1. janúar sl. og eru ríkisstarf s- menn samkvæmt henni 11.839 og hafði þeim þá f jölgað um 356 frá árinu áður. ins, án þess að bein heimild hefði verið fyrir þvi.' Samtals voru heimilaðar 198 nýjar stöður á ár- inu 1975, þar af um 60 vegna stofnunar f jölbrautarskóla i Breiðholti og Flensborg og stofn- unar drykkjumannahælis á Vifilsstöðum. Flestir eru starfsmennirnir á vegum menntamálaráðuneytis- ins — 4007 talsins, 2599 starfa á vegum samgönguráðuneytisins, 2446 á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, 1238 á vegum dóms- og kirkju- málaráðuneytisins, 910 á vegum iðnaðarráðuneytisins, 599 á veg- Þetta er i annað skipti, sem slik starfsmannaskrá er gefin út og sagði Sigurður, að nú ætti útgáfan að vera komin i réttar skorður, þannig að þriðja skráin gæti komið út um mitt næsta ár. 1 starfsmannaskránni kemur fram, aöstöður án heimildar voru i fyrra 576, en ónotaðar stöður voru öllu fleiri eða 652. Ein meginskýringin á þessu er að sögn Sigurðar sú, að á rikisspitöl- unum er talið óráðið i fjölda hjúkrunarfræðingastaða, sem heimildir eru fyrir, en stöður sjúkraliða og annars hjúkrunar- fólks, sem i raun koma i staðinn eru taldar óheimilaðar stöður. Þá sagði Sigurður, að einnig kæmu þarna til starfsmenn, sem upp- haflega hefðu verið ráðnir i á- kveðið verkefni til skamms tima, en siðan ilengzt i þjónustu rikis- um fjármálaráðuneytisins, 378 á vegum landbúnaðarráðuneytis- ins, 294 á vegum sjávarútvegs- ráðuneytisins, 226 á vegum utan- rikisráðuneytisins, 61 á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins, 53 á veg- um forsætisráðuneytisins og 40 á vegum viðskiptaráðuneytisins. Við embætti forseta Islands, hjá rikisstjórninni og Hæstarétti starfa 44, hjá Hagstofu Islands 28, hjá rikisendurskoðun 37 og hjá fjárlaga- og hagsýslustofnun starfa 8 manns. Sigurður Haraldsson kvaðst vilja geta þess, að nokkrar stofn- anir hefðu þegar tekið tillit til at- hugasemda fjármálaráðuneytis- ins og komið starfsmannamálum sinum i rétt horf og einnig tekur fjárveitinganefnd Alþingis ó- heimilaðar stöður til sérstakrar athugunar nú sem fyrr og sagði Sigurður, að menn væntu þess, að mál kæmust nú á hreint, hvað þetta varðar. Útgerðarfélag Akureyrar byggir við frystihúsið K.S. Ak. Nú er unniö að viðbótar- byggingu við frystihús Otgerðar- félags Akureyringa hf. og verður nýbyggingin notuð undir fisk- vinnsluvélar og heildarfiskimót- töku. Nú eru um 500 manns á launaskrá hjá útgerðarfélaginu, en þess má geta að hluti þeirra vinnur aðeins hálfan daginn. Segja má, að atvinna hafi verið jöfn og góð á árinu hjá félaginu. Afli Akureyrartogaranna hefur verið fremur tregur að undan- förnu, en þó er greinilega betri veiði nú en upp á slðkastiö. Allir togarar Otgeröarfélagsins voru að veiðum um jólin, en Sólbakur kom inn á annan dag jóla og landaðiþá 140 lestum. Togararnir veiða aðallega fyrir vestan og á Halamiðum. í desember lestuðu Selfoss og Brúarfoss rúmlega 26 þús. kassa af freiðfiski, sem fór á Banda- rikjamarkað og á annað þús. kassar fóru á Evrópumarkað. Saltfiskverkun er svipuð og i fyrra, eða 7-800 lestir, sem aðal- lega eru seldar til Portúgals, en einnig töluvert til Grikklands og Italiu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.