Tíminn - 31.12.1976, Blaðsíða 12
12
Föstudagur 31. desember 1976
HVAÐ SEGJA BANDARÍSKIR SP
Verur utan úr geimnum munu gera mjög vart viö sig á jöröinni á
næsta ári — og eftir þvl sem spámennirnir segja eru þeir vin-
veittir okkur jarðarbúum.
Nú þegar liður að lokum árs-
ins 1976, lita eflaust margir til
baka og fara i huganum yfir
aðalviðburði ársins, utanlands
sem innan. Hjá flestum vaknar
einnig spurningin um framtið-
ina: Hvað mun árið 1977 bera i
skauti sér? Flestir hafa gaman
af að láta spá fyrir sér um fram-
tiðina og hvenær er meiri
ástæða til þess en um áramót?
Nýlega kom á markaðinn i
Bandarikjunum bók, þar sem
hvorki meira né.minna en 45
spásnillingar láta ljós sitt skina
og segja fyrir um viðburði
næsta árs. Þar er allt tfnt til,
stórt og smátt, en þegar spá-
dómar þessara snillinga eru
bornir saman, kemur i ljós, að
langt er i frá að þeir séu sam-
mála. Þó eru nokkur atriði, sem
þeir virðast vera nokkuð sam-
mála um, svo sem eins og sú
hrakspá að árið 1977 muni verða
hið mesta jarðskjálftaár sem
um getur.
Furðurverur utan úr geimn-
um, (UFO), munu heimsækja
okkur á jörðinni á árinu og
munu visindamenn loks fá
órækar saryianir fyrir tilvist
þeirra, en nánar veröur sagt frá
þessum geimbúum hér á eftir.
Varla er ha^gt að neita að sumir
spádómar; snillinganna eru
harla brosíegir t.d. þessi: I
'Mexico finnst uppspretta ein
nokkuð sérstæö, þvi ef vökva úr
henni er sprautað i fólk, yngist
það upp'. Fertugar konur verða
hvað æstastar; i þetta „yng-
ingarlyf”, þar sem þaö viröist
hafa einna bezt áhrif á þær.
Yngjast þær um tuttugu ár i út-
liti eftir að hafa fengiö vænan
skammt úr uppsprettunni. Kon-
ur frá öllum heimshornum
flykkjast til Mexico til að láta
yngja sig upp, en spámaðurinn
tekur fram að þetta sé mjög
kostnaðarsamt!
Hér er annaö dæmi: frá öör-
um spámanni: Mikið af börn-
um, sem kölluð verða „Þotu-
börnin” munu fæðast á árinu.
Börn þessi eru óvenjulega gáfuð
og i alla staði langt á undan
sinni samtið. Þau eru með mjög
há og gáfuleg enni, og djúpstæð
augu. Spámaðtorinn segirað þau
séu send til jarðarinnar til að
hjálpa aumingja fólkinu sem
þar býr. Þegíy á fyrstu mánuð-
um sinum hér á jörðinni, munu
þessi börn vekja undrun for-
eldra sinna • og lækna, fyrir
dugnað sinn óg gáfur!
Já, það er .af mörgu að taka
þegar litið er yfir spádóma
þessara 45 bandarisku spásnill-
inga og myndu spár þeirra án
efa fylla nokkur Tima-blöð, ef
allt væri tekið. Hér á eftir verða
raktir nokkrir málaflokkar en
tekið skal fram, að þó-einn spá-
maðurinn segi þetta, þá er ann-
aráallt annarriskoðun, og eins
ogfyrrsegir eru það aðeins örfá
mál, sem margir þeirra eru
sammála um. — Hins vegar eru
nær allir spásnillingarnir mjög
neikvæðir i spám sinum, og at-
hyglisvert hve mjög þeir eru
svartsýnir, eins og raunar kem-
ur i ljós ef áfram er lesið:
Geimbúar — UFO
A árinu 1977 munu órækar
sannanir finnast fyrir þvi, að
jörðin er ekki eina plánetan i
himingeiminum sem er byggð
lifandi verum. Geimverur þess-
ar munu t.d. láta i ljósi mótmæli
sín gegn þvi að mennirnir á
jörðinni séu að skipta sér af og
ónáða tunglið. Þeir munu lika,
þ.e. -geimbúarnir og loftför
þeirra, verða valdir að miklum
rafmagnstruflunum og jafnvel
rafihagnsleysi um lengri eða
skemmri tima á þeim land-
svæðum sem þeir fljúga yfir.
Dagblöð um alian heim, munu
verða yfirfull af sögum af fólki,
sem tekið hefur verið og flutt
með loftförum geimbúa oft i
langan tima, en vegna ein-
hverra ástæ^na, þá er fólk þetta
meira og njinna haldið minnis-
leysi þegar það loks kemur aft-
ur í leitirnar. Einn af marg-
nefndum snilljngum okkar, seg-
ir þó og varaó við, að þáð eru
ekki alltaf geimbúar senyeru að
verki, og á þá! aðallega Uö, þau
vandræði sem af þeim -hljótast,
svo sem rafmagnsleysið, heldur
eru þetta RÚSSAR á ferð! Nán-
ari skýringu um þetta, segir
hann vera þá, að Rússar séu
komnir svo langt á úhdan
Bandarikjamönnum, og reynd-
ar öllum öðrum tækniþjóðum,
hvað varðar geim- og kjarn-
orkuvisindi, að þeir valdi oft
óskiljanlegum vandræðum, sem
vinum okkar geimbúunum er
siðan kennt um!
Einn spámaðurinn segir, að
geimbúarnir muni rjúfa sjón-
varpssendingar viöa um heim,
og bjóða þar fólki ókeypis fimm
ára ævintýraferðalag um heim-
inn! (Og nú skuluð þið bara fara
að .„undirbúa ykkur!). — Þá
Miklar framfarir verða á sviöi læknavisindanna á árinu 1977 m.a. I baráttunni gegn krabbamein-
inu.
Island:
Spáð er
eldgosi
og nýju
þorska-
stríði
Löngum hafa menn verið
forvitnir að fá að vita hvað
framtiðin ber i skauti sér. 1
nýútkominni bandariskri
bók, er að finna spádóma 45
manna og kvennh um það,
sem þau álita að gerist á
komandi ári. —jl;Aðeins á
tveim stöðum er minnzt á ts-
land. Fyrri spáin hljóðar
þannig: A árinu. 1977 verðn
mlklir jarðskjálftar og/eða
eldgorS'-við þorpið Kópasker
og við Kröfiu á lslandi. Hin
spáin er þannig: Bretar og
islendingar munu enn einu
sinni hefja harðvitugt
þorskastrið. Fulltrúar er-
lendra þjóða munu gerast
sáttasemjarar og mun tak-
ast að ná sáttum eftir ein-
hvern tima.
Arið 1977 verður mikiö þurrkaár og verður að grfpa til vatns-
skömmtunar víða um heim.
munu geimbúarnir senda eitt-
hvað af dýrum sinum til jarðar-
innar, en ekki tekur þessi til-
tekni spásnillingur fram
hvernig þau dvr eru útlitis, né
heldur i hvaða tilgangi þau eru
send. 1
í Suðurrikjum Bandarikj-
anna, kemur upp einkennilegur
orðrómur um þrjá menn, sem
þar eru búsettir, að þeir séu
ekki frá okkar gamla góða
heimi, heldur frá annarri plá-
netu, með öðrum orðum: Geim-
búar! Ekkert er þó getið um,
hvortnokkuð sannast i þessu til-
felli.
Spáð er, að ný pláneta, sem
ekki var áður vitað um, muni
finnast. Sami maður segir blá-
kalt, að i Vesturrikjum Banda-
rikjanna, muni finnast undar-
legirhlutirúröðrum heimi, sem
virðast vera úr „járnkenndu
efni”, en fer ekkert nánar út i
neinar útskýýingar.
Þá munu ^eimför og geimbú-
ar sjást i miörgum stærri borg-
um i heiminum og munu geim-
búarnir hafa samband við fólk i