Tíminn - 31.12.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 31.12.1976, Blaðsíða 13
Föstudagur 31. desember 1976 13 r ASNILUNGAR UM ARIÐ 1977? Jaröskjálftar veröa miklir á næsta ári. þessum borgum. Meö öðrum orðum, þá er greinilegt, að sögusagnir sem gengið hafa um einkennileg ljós, á himninum, staðhæfingar manna um að hafa séð óvenjuleg loftför, lendingu þeirra o.s.frv., hefur greinilega við einhver rök aö styöjast! Einn spámaðurinn er fremur svartsýnn, en trúir þó á tilveru varð ég var við marga geimbúa. Ég sá Loch Ness skrimslið, þvi það stakk haus sinum upp úr vatninu og stárði á mig i um fimm minútur. Þriðju nóttina i gömlum draugakastala komu þeir svo til min (þ.e. geimbú- arnir). Ég gat um leið haft vitni að þessu. Næsta dag kom svo i ljós, að margt manna hafði orð- ið loftfars geimbúanna vart og blöðin voru full af fyrirsögnum og fréttum um þetta. A meðan þett^f var alltað ger- ast, voru geimbíúarnir aö vinna að endurbótum og breytingum á heilastarfsemi minni. Einn morguninn t.d., þegar ég ætlaöi að fara að raka mig, tók ég eftir að augnabrúnir minar voru orðnar gráar! Áður höfðu þær verið mjög rauðar!” Fleiri sannanir fékk þessi spásnillingur, m.a. hljóð frá geimförum á seguiband: Þó er of langt mál aö rekja það allt hér. En eins og þið getið séð, góðir lesendur, þá er varla um annað að villast en aö geimbúar eru til og eftir þvi sem allir spá- snillingarnir segja, eru þeir okkur aumingja jaröarbúum fremur vinveittir en hitt, svo viö virðums^ ekkert hafa aö óttast. Læknisfræði — farsóttir Samkvæmt spádómunum, verða margar stórkostlegar læknisfræðilegar uppgötvanir gerðar á árinu. Lyf finnast viö mörgum sjúkdómum, sem áður hafa verið nánast ólæknanlegir og framfarir ótrúlegar. Hins vegar eru þeir lika margir sem spá þvi, að svokölluð svinainflú- ensa, eigi eftir að herja viöa og krefjast margra fórnarlamba. Mikið er talað um Bretland i þessu sambandi en einnig Kan- ada og Bandarikin. Þá mun matarskortur verða mikill i heiminum, einkum i vanþróuðu löndunum og þar er spáð miklum \feðrabreytingum, annað hvort langvarandi þurrk- um, eða þá að óhemju flóð eyðileggi uppskeru manna. Þvi munu margir hreinlega svelta i hel. En svo viö snúum okkur aftur að læknisfræðinni, þá eru, meöal þeirra nýjunga sem fundnar verða upp á árinu, ný lyf við krabbameini og mun koma i ljós i lok ársins, að loks^ ins hefur fundizt lyf viö þessum ógurlega sjúkdómi, sem dugar. Blóötappi er einn af þeim sjúk- Nýjar upplýsingar um moröiö á John F. Kennedy munu valda miklu fjaörafoki og binda endi á feril margra stjórnmálamanna. 'dómum sem erfitt hefur reynzt að koma i veg fyrir, en á árinu munu finnast nýjar aðferðir sem gerir það kleift. Þá munu hjartasjúklingar.einnig fá mikla bót, þvi nýjar aðferðirog ný lyf i sambandi við krankleika þeirra verða fundin upp. Ekki þarf endilega að vera að allar þessar nýjungar i læknis- fræðinni verði fundnar upp á ár- inu 1977, heldur munu þær þá, fyrst koma fyrir almennings- Styrjaldir og óeiröir veröa áfram fylgifiskar mannkynsins á árinu 1977. geimbúanna, þvi hann segir, að hópar þeirra muni lenda i öllum rikjum Bandarikjanna og koma af stað mikilli óreiðu, hvers eðlis, er ekki tekið fram. Og að lokúm skulum við lita á hvaðeinn aðalsnillingurinn spá- irog hefur að segja um UFO eða geimbúana: „Ég er kallaður UFO-vitringurinn, þvi ég bæði vinn með og fyrir geimbúa. Þeir höfðu fyrir mörgum árum, mikil áhrif ,á mig, heilastarf- semi mina o"g gáfur. Þeir sögðu mér að faya til yfirvalda i Washingtorji'Jtil að fá fjárhags- lega aðstoð til að fara til Evrópu til að finna draugakastala þar þvi þar myndu þeir enn kenna n>ér og bæta heilastarfsemi rriina. Þrátt fyrir að þeir aðilar sem ég talaði viö í Washington, yrða frá sér numdir, þá var mér mjög kurteislega neitað. 1 fyrra fór ég til Inverness i Skotlandi og fyrstu tvær nætur minar þar, Brésnef og Castro munu hverfa af valdastóli á næsta ári. Sá fyrrnefndi dregur sig I hlé af heilsu- farsástæöum, en Castro veröur steypt af stóli. sjónir. 1 heild verða þó þessar nýjungar mjög mikilvægar og munu hvarvetna vekja mikla athygli — og vonir manna — segir einn spásnillingurinn. Veðurfar 1977 Von._mun á miklum veðra- sviptingum > og breytingum á veðurfari uni allan heim á næsta ári, segja' spásnillingarnir, og á árið að verða mjög óvenjulegt hvað þetta snertir. Mikilla þurrka mun gæta viðast hvar, og af Evrópulöndum er Frakk- land sérstaklega tekið fram i þessu sambandi. Aframhald- andi þurrkar veröa i Afriku og leiða til mjög alvarlegs mat- vælaskorts. Rússneska hveiti- uppskeran mun algjörlega bregðast vegna þurrka. Mikið er um hrakspár i sam- bandi við hvirfilvinda og þá sér- staklega i Bandarikjunum og er varla það riki til þar, sem ekki hefur verið talið upp og fær hvirfilvind. Skaðar verða þó mjög misjafnlega miklir. Þurrkar veröa einnig til þess, aö margar virkjanir tæmast þannig aö rafmagnsskortur verður viöa og vatn veröur skammtaö bæði mönnum og skepnum viða um heim. Hins vegareru svo nokkrir sem segja að mikil flóð verði viða, t.d. i Hollandi. — I stuttu máli sagt, eru veðurhorfur allt annað en álitlegar á næsta ári. ef marka má spár snillinganna: Þurrkar, flóð, hvirfilvindar, kuldar og hver veit hvað.. Jarðskjálftar og eldgos Nær allir spásnillingarnir, 45 að tölu, tala um meiri og minni jarðskjáifta um allan heim. Að sjálfsögðu dettur okkur þá i hug sem næst okkur snýr, og viti menn! Einn spámannanna minnist reyndará Island! Hann segir að jarðskjálftar og/eða eldgos verði við þorpið Kópa- sker og við Kröflu á Islandi. Hann fylgist greinilega vel með! Annar spámaður spáir miklum jarðskjálftum við heimskautsbauginn, en tiltékur ekki nánar hvar. Annar segir mikla jarðskjálfta i Alaska. En hér á eftir teljum við upp þá staði sem miklir jaröskjálftar eiga að koma á: I'marz: Tyrk- land og Grikkland, I april: italia og vestur Rússland. Mai: Japan, Phillipseyjar (gæti lika verið hvirfilvindur þar,) og Kalifornia. Júli: Chile og Perú. September/ október: Alaska. Desember: Mexikó. Einmspásnillingurinn segir að jarðskjálftar sem mælast 5,9 á Richterkvarða muni verða i Kansas og Kaliforniu. Þá mun eldgos leggja stóran hluta bæj- arins Hilo á Hawaii i rúst, en þar sem timi mun gefast til að- vörunar, mun flestum bæjarbú- um takast að flýja. — Jarð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.