Tíminn - 31.12.1976, Blaðsíða 9
Föstudagur 31. desember 1976
9
SAMANTEKT: MAGNÚS ÓLAFSSON
Miklar sviptingar uröu á ASÍ-þingi, en mvndina tök Gunnar af atkvæöatalningu á þinginu.
kjaramál haldnir á Suðurlandi
og i Húnaþingi. ASl höfðar mál
vegna hækkunar á kaupi bónda i
marz sl. Fyrsti snjór vetrarins
fellur i Reykjavik. Snjólitið við-
ast hvar um landið og færð góð
miðað við árstfma.
Akæra gefin út á hendur
banamönnum Guðmundar
Einarssonar, þeim Kristjáni
Viðar Viðarssyni, Sævari
Marinó Ciesielski og Tryggva
Rúnari Leifssyni og Albert
Klahn ákærður um hlutdeild
með þvi að aðstoða þá við flutn-
ing á likinu.
Lausn Geirfinnsmálsins i
sjónmáli, en Karl Schutz er
væntanlegur aftur að loknu
jólaleyfi i janúar og þá aðeins til
stuttrar dvalar.
Islendingar ákveða að hafna
nú og framvegis gjafafé frá
þróunarstofnun Sameinuðu
þjóðanna og samningur um
járnblendiverksmiðju á Grund-
artanga við norska fyrirtækið
Elkem Spiegelverket undir-
ritaður með fyrirvara um sam-
þykki Alþingis.
Heildarfiskaflinn 34 þúsund
lestum minni en i fyrra en
þorskflök hækka i verði á
Bandarikjamarkaði.
Dómur kveðinn upp i Klúbb-
játaði hann að vera valdur að
dauða konunnar.
September
Flugræningjar á Keflavikur-
flugvelli. Króatar að verki, en
þeir rændu Boeing 727 — þotu
frá bandariska flugfélaginu
TWA i innanlándsflugi i Banda-
rikjunum, og lenti flugvélin i
Keflavik til þess að taka elds-
neyti. botan hafði hér um
tveggja stunda viðdvöl.
Gifurlegt tjón varð i eldsvoða
i iðnaðarhúsnæðinu að Lauga-
vegi 168, en þar eru fjögur iðn-
fyrirtæki til húsa. 437 kindur
fórust i Svartá i A.-Hún., þegar
fé slapp úr nátthaga við Stafns-
rétt og spennti i ána.
Friðrik Ólafsson og Jan
Timman urðu efstir og jafnir i
Reykjavikurskákmótinu með
ellefu vinninga hvor. Alls tóku
16 skákmenn þátt i þvi. Mjög
góð sildveiði og saltað af fullum
krafti. Alls hafði verið saltað i 30
þúsund tunnur i scptemberlok.
Pjötlur og flisar frá fyrri öldum
finnast i gili i Grisafjöllum.
Sex af átta dragnótaveiðibát-
um frá Ólafsvik sviptir leyfi,
þar sem þeir höfðu ekki notað
rétt veiðarfæri. þýzki lögreglu-
maðurinn Schútz kærir
Morgunblaðið fyrir birtingu
tveggja skopmynda eftir Sig-
mund. Nöfn i ávisanamálinu
birt.
Farið á islenzkum hestum yfir
þvera Ameriku, alls um 3.500
milna vegalengd, og stóðu hest-
arnir sig vel. Næg hey til i land-
inu, en misjöfn að gæðum. Sjón-
varpsmenn i setuverkfalli.
Otkóber
Stöðvarhúsið við Kröflu lyftist
og sigur til skiptis. Leirhver
opnast rétt við borinn Jötunn,
fólk flutt burt frá Kröflu, en
kemur þangað aftur daginn
eftir. Almannavarnaráð vi 11
fresta öllum framkvæmdum og
visindamenn telja vaxandi gos-
hættu á svæðinu. Fram-
kvæmdum haldið áfram af
fullum krafti. Fjörkippur kom i
framkvæmdir við Sigöldu eftir
að Islendingar gengu inn i
stjórnun framkvæmdanna.
Allt brann, sem brunnið gat,
þegar eldur kom upp i áhalda-
húsi vegagerðarinnar á Pat-
reksfirði. Grimshúsið i Borgar-
nesi brennur og tjónið skiptir
tugum milljóna. Bruni i
skemmtistaðnum Óðal. Upp
kemst um visi að skipulögðum
innflutningi og dreifingu á fikni-
efnum.
Garnaveiki finnst i fyrsta
skipti á Vestfjörðum. Vélbátur-
inn Hafursey GK 84 sökk suður
af Reykjanesi. Ahöfnin tveir
menn björguðust. Flugvél
hlekktistá við lendingu á Egils-
stöðum. Mat sf. gefur út álits-
gerð, þar sem segir, að tilraun
Sverris Runólfssonar i vegagerð
hafi misheppnazt.
Deilur um sláturhús i Skaga-
firði, og Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþm. hótar að skjóta hrút
með eigin hendi, fái ekki
sláturhúsið leyfitil þess. Alþingi
kemur saman. 30. þing BSRB
haldið. Frakki gómar háhyrn-
ing og flytur til Frakklands.
Tveir aðrir geymdir i Sædýra-
safninu. Dagur iðnaðarins stóð i
viku á Akureyri, en i þrjá daga á
Egilsstöðum.
Akureyri tekur 60 milljón kr.
lán i London til hitaveitu og
gatnagerðarframkvæmda. 2014
m langur flugvöllur tekinn i
notkun á Sauðárkróki. Kona
ráðin aðstoðarborgarlæknir i
Reykjavik. Fyrsta konan skipuð
i stöðu rannsóknarlögreglu-
manns. Pharaormaurar finnast
ihúsii Garðakaupstað. Rjúpna-
veiðin byrjar vel, og fá menn
alit að 40 rjúpur á dag norður i
Gæsafjöllum. Alls var slátrað
857.027 dilkum i sláturtiðinni.
Nóvember
Tveir óðir byssumenn fóru
skjótandi um Laugaveg,
Snorrabraut og Egiisgötu og
gáfust ekki upp fyrr en lögregl-
an hafði ekið annan þeirra
niður. Hús springur i loft upp á
Akranesi. 16 aðilar hafa setið i
gæzluvarðhaldi vegna fikni-
efnamálsins. Virðist vera
nokkur aðskilin mál, en alls hafi
400 gr. af amfetamindufti, 20
skömmtum af LSD og 20 kg af
hassi verið smyglað til landsins.
Sendimaður Efnahagsbanda-
lagsins kemur til landsins til
viðræðna um fiskveiðimál.
Rekstur Hitaveitu Suðurnesja
formlega hafin. Hafnarmann-
virkin i Þorlákshöfn iormlega
opnuð. Ofnar i Hrisey tærast
sundur vegna mikils súrefnis og
salts i vatninu.
Barnaskólakennarar leggja
niður vinnu i einn dag til að
leggja áherzlu á kaupkröfur
sinar. Deilur um úthlutunar-
reglur lánasjóðs islenzkra
námsmanna. 17% af ibúum
Bildudais flýr burt i atvinnuleit.
Júgóslvarnir fara frá Sigöldu og
Landsvirkjun tekur við öllum
framkvæmdum. Saltað hefur
verið i 120 þúsund tunnur af
Suðurlandssild. Dagur iðnað-
arins i Borgarnesi.
Þrumur og eldingar á Suður-
landi. Simasambandslaust við
Þorlákshöfn einn dag. Mikið
vatnsveður gekk yfir Vestfirði
og vegir viða skemmdir.
Desember
Brezku togararnir fara af Is-
landsmiðum þegar samningur-
Eini skugginn á jólahaldi landsmanna var það hörmulega slys,
er fullorðin hjón brunnu inni á jólanótt. Tímamynd: G.E.
Til heiftarlegra átaka kom á Hallærisplaninu, er unglingar
gerðu aðsúg að lögregluþjónum. Timamynd: G.E.
inn, sem gerður var i Osló rann
út. Frá 1970 hefur erlendum
veiðiskipum við landið fækkað
úr 106 i 20. Nigeriumenn semja
um að kaupa 2.500 lestir af
skreið frá Islandi og er þaö
stærsti skreiðarsölusamningur-
inn til þessa. Islenzka rikis-
stjórnin og norska fyrirtækið
Elkem Spiegelverket undirrita
samni ng um járnblendiverk-
smiðju i Hvalfirði með fyrir-
vara um samþykki Alþingis.
Forseti Islands dr. Kristján
Eldjárn sextugur. Framsóknar-
flokkurinn 60 ára. ASI 60 ára og
þing sambandsins haldið i
Reykjavik. Það var róstursamt
á köflum og undir lokin stóðu
þingfundir linnulaust i 30 klst.
Aðalfundur Llú haldinn i
Reykjavik.
Flugvél ferst skammt frá
Geithálsi en tveir menn sem i
vélinni voru sluppu lifandi.
Framnes 1S 608 lenti upp i stór-
grýtisfjöru nálægt Bjargtanga-
vita, en komst út fyrir eigin vél-
arafli. Rafstöðvarhúsið á
Djúpavogi brennur og þrjár
diselvélar gjöreyðileggjast.
Fiölmennir bændafundir um
málinu svonefnda. Niðurstöðu-
tölur fjárlaga ársins 1977 uröu
rösklega 89 milljarðar króna.
Frumdrög að samningi við
Efnahagsbandalagið um fisk-
vernd komin til rikjsstjórnar-
innar ásamt tilboði bandalags-
ins um gagnkvæmar veiði-
heimildir. Málið verður rætt eft-
ir áramót.
Óvenju mikið af upplýsingum
um fljúgandi furðuhluti hefur
komið fram að undanförnu.
Hörmulegt slys á jólanótt, er
hjón brenna inni, varpar skugga
á annars friðsama og ánægju-
lega jólahátið landsmanna.
Maður sá sem hvarf i Frank-
furt 12. október kemur heim
heill á húfi eftir flakk um
Evrópu.
Skáksamband tslands ákveð-
ur að gefa kost á þvi að einvigi
Kortsnojs og Petrosjans i und-
ankeppni að heimsmeistaraein-
vfginu i skák verði haldið hér á
landi.
Avisanamálið sent til sak-
sóknara. Handtökumálið svo-
nefnda enn i rannsókn og ekki
ljóst hver lagði gildru fyrir
hvern i þvi máli.
SAMANTEKT: MAGNÚS ÓLAFSSON