Tíminn - 31.12.1976, Page 6

Tíminn - 31.12.1976, Page 6
6 Föstudagur 31. desember 1976 ANNÁLL ÁRSINS 1976 Janúar LandhelgisstriöiB við Breta var mjög hart i janúar. Brezk verndarskip gerðu margar og itrekaðar ásiglingartilraunir á islenzk varðskip og stór- skemmdu þau. Stjórnmála- . slitum við Breta hótað, ef ásiglingartilraunum verði ekki hætt. Luns framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins kemur til Reykjavikur og reynir að leysa deiluna. Bretar kalla herskipin út eftir að þeim hafði verið veittur nokkurra daga frestur til þess, en stjórnmála- sambandi að öðrum kosti slitið. Geir Hallgrimsson forsætisráð- herra ræðir viö Wilson i London. Týr klippir á landhelgisbrjót á meðan, sem neitað hafði að hætta veiðum. Togararnir heimta hervernd og sigldu út, þegar þeir fengu hana ekki. Héldu aftur á miðin, þegar brezka stjórnin ákvað að veita þeim styrk vegna tapaðra veiði- daga. Sex hús á Kópaskeri gjöreyði- lögðust i jarðskjálfta og fjöl- mörg önnur stórskemmd. Flest- ir ibúarnir fluttir burt um stundarsakir. Enginn maður fórst i þessum hamförum. Jörð rifin og tætt viða um öxarfjörð. 300 ferkilómetra landsvæði á hreyfingu og nær svæðið úr Mývatnssveit og norður i öxar- fjörð. Stöðvarhúsið við Kröflu sigur. Nokkrir visindamenn skrifa iðnaðarráðherra bréf og telja óráðlegt að halda fram- kvæmdum við Kröflu áfram. Miklar umræður um hvort hætta eigi framkvæmdum, en ekki varð þó af þvi. Stóra bor- holan við Kröflu hrynur saman og stór hver myndast. Mikið heitt vatn kemur úr holum, sem verið er að bora við Laugaland i Eyjafirði. Akveðið að leiða vatnið til Akureyrar. Ólafur Jóhann Sigurðsson hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Atli Heimir Sveinsson hlýtur tónlistarverð- laun ráðsins. Mikil ófærð er i Reykjavik i mánuðinum og hjálparsveitir oft önnum kafnar við að hjálpa fólki. Flugvél eyðileggst i nauðlendingu á Borgarfirði eystra, en flugmaðurinn slapp ómeiddur. Flugfélagið Ernir á ísafirði hættir flugi um tima. Einn fjölmennasti fundur, sem haldinn hefur verið i Húnaþingi styður eindregið virkjun Blöndu. Hermann Jónasson fyrr- verandi forsætisráðherra lézt i Reykjavik 79 ára gamall. Febrúar Ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra segir f útvarps- Mikið tjón varð á mannvirkj- um á Kópaskeri í jarðskjálft- um og jörð rifnaði. Tima- myndir: M.E. og Gsal. rannsóknarlögreglu rikisins lagt fram á Aiþingi. Arni Guðmundsson fyrrum bóndi að Brekku i Dýrafirði varð 100 ára á hlaupársdaginn 29. febrúar. Einsdæmi, sem vart gerist næstu aldirnar. Sjómenn fara i verkfall og flotinn stöðvast. Allsherjar- verkfall i landi. 35 þúsund manns leggja niður vinnu. Bændur verða að hella niður mjólk vegna verkfallanna. Brezku herskipin stunduðu ofsalegar ásiglingar á fslenzku varöskipin. Þannig kom Vereitt sinn tilhafnar og var mildi að enginn skinveria skyldi týna lífinu f þessari bamslausu árás Bretanna. Timamynd: G.E. þætti að það sé sin persónulega skoðun að ekki sé grundvöllur á sámkomulagi við Breta á grundvelii þeirra viöræðna, sem fram fóru milli forsætisráö- herra íslands og Bretlands. Hugmvndum Breta um samninga hafnað af rikis- stjórninni tveim dögum siðar. Boðið upp á viðræður um veiði- heimildir til skamms tlma. Brezkar freigátur koma aftur inn i landhelgina, og hefja ásiglingar. Norðmenn gefa yfirlýsingu um að þeir styðji íslendinga heils hugar. Stjórn- málasambandi við Breta slitið. frar koma til landsins á skinnbát. Tfmamynd G.E. Eldur kom upp I fataverksmlöjunni Hekiu á Akureyri I marz og hlauzt af þvi tugmilljóna tjón. Loðnuaflinn orðinn 137 þúsund lestir fyrir verkfall. Mokafli um það bil, sem vinnustöðvun hefst. Ibúðarhús brennur að Efri- Mýrum i A.-Hún. Fólkið bjarg- ast naumlega. Búnaðarþing sett i Reykjavik. Frumvarp um ANNÁLL ÁRSINS 1976

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.