Tíminn - 31.12.1976, Side 7
Föstudagur 31. desember 1976
7
SAMANTEKT: MAGNÚS ÓLAFSSON
Marz
Samningar takast i kjara-
deilunni og verkföllum aflýst.
Kauphækkanir verða 24% i
áföngum, auk 1500,00 kr. lág-
launauppbótar. Fjögur félög
fella sjómannasamningana, en
verkfalli þeirra siðan frestað. 12
hundruð þúsund litrum af mjólk
hellt niður i verkfallinu.
Brezkir togaraskipstjórar
brjótast út úr flotakvinni, sem
herskipin hafa haldið þeim i að
undanförnu þvi þau hafa ekki
getað verndað þau gegn ásókn
varðskipanna. Meiri heift færist
i baráttuna á miðunum. Baldur
stórskemmdur eftir ásiglingar.
Aðstoðarráðherra i brezku
stjórninni flaug yfir miðin og
sendi sinar beztu kveðjur og
hamingjuóskir til skipshafna
brezku verndarskipanna og
sagði að þau hefðu- unnið hið
bezta verk Byssur á brezku
herskipi mannaðar og miðað á
islenzkt varðskip. Togarinn Ver
fer til gæzlustarfa.
Stálskipið Hafrún AR 28 frá
Eyrarbakka ferst og með þvi
átta manna áhöfn. Einn maður
fórst þegar fólksflutningabill
steyptist niður snarbratta
fjallshlið við mynni Stráka-
gangna i Siglufirði. 16 manns
tókstað komast út úr bifreiðinni
á siðustu stundu. Ofsaveður á
Austf jörðum. Tveir bilar fuku út
af veginum og gjöreyðilögðust.
Annar billinn var mannlaus, en i
hinum voru piltur og stúlka, og
fóru þau 6 veltur áður en þau
komust út. Pilturinn ómeiddur,
en stúlkan meiddist litilsháttar.
Tugmilljónatjón varð i Fata-
verksmiðjunni Heklu á Akur-
Island komst heldur betur I heimsfréttirnar, þegar flugvélaræn ingjar lentu á Keflavikurflugvelli. Róbert tók þessar myndir og á
neðri myndinni sést vél ræningjanna t.h. ásamt fylgdarvélinni og á efri myndinni sjást starfsmenn Flugleiða flytja töskur með
dreifimiðum úr vél ræningjanna i fylgdarvélina og voru töskurnar gegnumlýstar í millitíðinni.
Friðrik ólafsson, stórmeistari, sigraði á sjöunda Reykjavikurskákmótinu. Hoilenzki stórmeist-
arinn Timman varð jafn Friðrik að vinningum og hér eru meistararnir i hófi menntamálaráð-
hérra að mótinu loknu. Timamynd: G.E.
ir færa sig á Vestfjarðamiö.
Varðskipin gera mikinn usla og
gengur vel i baráttunni, og
brezku freigáturnar gefast upp
við að vernda togarana i hópum.
Freigáturnar láta dráttar-
bátunum eftir ásiglingatilraun-
ir. Loftskeytamenn á strand-
stöðvum neita að afgreiða brezk
skip við landið. Bandarikja-
menn beðnir um skip til gæzlu-
starfa. Islenzkir netabátar
staðnir að ólöglegum veiðum
mitt i þorskastriði.
Alftanes GK 51 ferst út af
Hópsnesi og með bátnum tveir
menn. Skipverjar á Hrafni
Sveinbjarnarsyni II bjarga sex
skipverjanna.
Tuttugu og átta ára maður,
Guðbjörn Tryggvason, skotinn
til bana á Akureyri. Atján ára
piltur, úlfar ólafsson var hand-
tekinn kvöldið eftir og viðurk.
hann morðið sólarhring siðar.
Skinnadeild Heklu hefur
vinnslu i nýju húsnæði. Nýr tog-
ari kom til Dalvikur. 800 lesta
oliugeymir hjá Alverinu sparkk
og eldur kviknaði i oliunni.
Lá við stórslysum á Holta-
vörðuheiði, þegar margir lögðu
á heiðina um páska án nægilega
góðs útbúnaðar og stórhrið
brast á. Margir lentu i miklum
hrakningum.
„Böðunarstrið” var i Húna-
þingi.
Mai
Landhelgisgæzlan fær nýja
þyrlu. Freigáturnar hefja á ný
ásiglingar á varðskipin. Baldur
svaraði einni ásiglingunni i
sömu mynt, og stórt gat kom á
freigátuna. Sjö sinnum siglt á
varðskipin einn daginn, og stóð-
ust þau ásiglingarnar með
prýði, en ein freigátan
hrökklaðist burt með brotið
stefni. Byssa varðskipsins Týs
mönnuð og skotið fyrir framan
togara. Nimrodþota hótar að
skjóta varðskipið niður. Ekki
fyrr vitað, að þoturnar væru
vopnaðar. Fjölmennar mót-
mælaaðgerðir gegn dvöl
varnarliðsins og veru íslands i
Nato. Farin var Keflavikur-
eyri, þegar eldur kom upp i hrá-
lager verksmiðjunnar.
Daglegt lif færist i eðlilegt
horf á Kópaskeri. Samiö um
hönnun hitaveitu fyrir
Akureyri. Búnaðarþingi lýkur i
Reykjavik. Innlend kjarnfóður-
framleiðsla, orkumál og lána-
mál landbúnaðarins voru meðal
merkustu mála þingsins. Þingið
stóð i 17 daga og voru 20 fundir
haldnir.
Ný flugvél bætist i flugflota
Norðurlands. ASI á 60 ára
afmæli. Þórarinn Þórarinsson á
40 ára ritstjórnarafmæli.
April
'Varðskipið Týr verður að
sigla á brezka freigátu til að
komast hjá þvi að verða sjálft
siglt niður. Brezku veiðiþjófarn-
437 kindur fórust i Svartá, þegar safnið slapp úr nátthaganum við Stafnsrétt og spennti á ána. Timamynd Mó.
SAMANTEKT: MAGNÚS ÓLAFSSON