Tíminn - 31.12.1976, Síða 27
Föstudagur 31. desember 1976
27
Yfirlýsing frá
Varnarmálanefnd
Fyrir nokkru voru flugmála-
stjörn afhentar 3 notaðar
slökkvibifreiðar frá varnarlið-
inu. Blaðaskrif hafa orðið um
mál þetta. Þannig birtist 17.
des. s.l. viðtal við slökkviliðs-
stjórann á Reykjavikurflugvelli
i Þjöðviljanum þar sem segir:
„Við skoðun hefur komið i ljós
að hægt er aö gera einn af þess-
um þremur bilum upp með all-
miklum tilkostnaði, en hinir
tveir eru algert rusl, sem eng-
um dettur i hug að reyna að
gera við, sundurryðgaðir auk
alls annars”. Siðar segir:
„Enda væri það svo aö Kaninn
væri að losa sig við bilana vegna
þessaðþeir væru ónýtir. Fleiri
eru ummælin og öll i sama dúr.
Þetta er svo endurtekið i Visi
sama dag þar sem m.a. er full-
yrt: „Gjafabilarnir ónýtt rusl”.
t Þjóðviljanum 22. des s.l. fer
svo flugmálastjóri sjálfur af
stað og segir m.a.: „Þetta væru
tæki, sem herinn væri hættur að
nota, en það hefðu aftur á móti
verið mistök hjá varnarmála-
nefnd að þiggja þá, eins og þeir
væruá sig komnirog láta lita út
sem um einhverja „þjóðargjöf”
til tslendinga væri að ræða. Þar
sem i viðtölum þessum er mjög
hallað réttu máli telur varnar-
málanefnd nauðsynlegt að eftir-
farandi komi fram:
Upphaf máls þessa er bréf,
dags. 2. marz 1976 stilað til ut-
anrikisráðuneytisins, og undir-
ritað af Agnari Kofoed-Hansen,
en bréiið er svohljóðandi: „A
878. fundi flugráðs, sem hald-'
inn var 26. f.m. var m.a. rætt
um nauðsynlegar úrbætur á
slökkviþjónustu á islenzkum
flugvöllum og kom þar fram að
slökkvilið Keflavikurflugvallar
er að losa sig við ýmsan eldri
búnað. Af þessu tilefni var gerð
eftirfarandi samþykkt:
„Flugráð beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til utanrikis-
ráðuneytisins, að það hlutist til
um, að allur sérhæfður slökkvi-
búnaður fyrir flugvallaslökkvi-
liðið, þ.á.m. bifreiðar og tæki,
sem slökkvilið Keflavikurflug-
vallarhefurekkilengur not fyr-
ir, verði fenginn flugmálastjórn
til að sinna brýnustu úrbótum i
slökkviþjónustu á öðrum flug-
völlum á Islandi.”
Utanrikisráðherra taldi strax
að óhjákvæmilegt væri að Sala
varnarliðseigna afgreiddi málið
á venjulegan hátt þ.e. með sölu
þessa varnings til hæstbjóð-
anda. Hins vegar vildi flugráð
fá bifreiðarnar beint til ráöstöf-
unar, og var þessi ösk margend-
urtekin i samtölum ýmissa
flugráðsmanna og starfsmanna
flugmálastjórnar við ráðherra
og starfsmenn varnarmála-
deildar.
Lauk þessu máli svo að sam-
þykkt var aö afhenda bif-
reiðarnar flugmálastjórn til
ráðstöfunar, en beiðnir um þær
höfðu lika borizt utan af landi.
Jafnframt var Sölu varnarliðs-
eigna falið að tollafgreiða þær.
Meðan mál þessi voru til um-
ræðu kom fram að varnarliðið
var fúst til þess að gefa bifreið-
ar þessar, og tvær til viðbótar á
næsta ári, gegn þvi að þær færu
til flugvalla á Islandi þar sem
þeirra væri mest þörf, en væru
ekki seldar i pörtum, eins og
fram að þessu hefur tiðkazt hjá
Sölu varnarliðseigna.
1 fyrrgreindum blaðaskrifum
er látið að þvi liggja að ástand
biíreiðanna hafi komið viðtak-
endum algjörlega á óvart. Stað-
reynd málsins er hins vegar sú
að trúnaðarmenn flugmála-
stjórnar höfðu kynnt sér ástand
bifreiðanna með endurteknum
skoðunarferðum til Keflavikur-
flugvallar. Þetta staðfestir flug-
málastjóri raunar með þessum
orðum i Visi 23. þ.m.
„Guömundur Guðmundsson,
slökkviliðsstjórinn okkar og
Gunnar Sigurðsson, flugvallar-
stjóri, voru löngu búnir að skoða
þessa bila, suðurfrá, og vissu
vel um ástand þeirra.” Sjálfur
skoðaði flugmálastjóri bif-
reiðamar á s.l. vori.
Þegar kunnugt var að bif-
reiðarnar yrðu afhentar til
notkunar á islenzkum flugvöll-
um lögðu slökkviliðsmenn á
Keflavikurflugvelli sig fram um
að afla til þeirra tækja og
búnaðar, þannig að þær gætu
komið að sem beztum notum.
Af framansögðu er ljóst að
umræddar 3 slökkvibifreiðar
voru afhentar flugmálastjórn
samkvæmt eindregnum tilmæl-
um hennar, aö undangenginni
nákvæmri skoðun bifreiðanna
af tilkvöddum trúnaðarmönn-
um flugmálastjóra svo og hon-
um sjálfum. Ummæli flugmála-
stjóra og starfsmanna hans um
hið gagnstæða eru þvi bæði röng
og villandi.
Páll Asg.Tryggvason
Hallgrimur Dalberg
Höskuldur Ólafsson
Hannes Guðmundsson
Valtýr Guðjónsson.
Gleðilegt nýór
þökkum viðskiptin
á liðnum órum
RAFN H.F.
SANDGERÐI
Útgerð
Sfldarvinnslunnar
Neskaupstað
óskar öllum
viðskiptavinum
starfsmönnum
svo og landsmönnum
öllum farsældar
á nýja árinu
Óskum öllu starfsfólki okkar og viðskipta-
vinum
farsældar
ó nýja órinu
Þökkum samstarfið á árinu sem er að
liða.
Haraldur Böðvarsson & Co
Akranesi
Útgerðarfélag Akureyringa h.f. óskar öllu
starfsfólki og viðskiptavinum
gleðilegs nýárs
Gleðilegt nýár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Bjarni Þ. Halldórsson & Co.,
Garðastræti 4.
Gleðilegt nýár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
KAUPFÉLAG REYKJAVlKUR OG NAGRENNIS
Óskum viðskiptamönnum okkar, svo og
landsmönnum öllum
farsœldar á koinandi ári
Þökkum þau liðnu.
Gluggasmiðjan
Gissur Simonarson,
Siðumúla 20, simi 38220.