Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 10
10 11. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR UMFERÐARMÁL Ekkert dauðaslys hefur orðið á Reykjanesbraut síðan tvöföldun á stórum kafla brautarinnar lauk en áætlað er að framkvæmdum við brautina ljúki á næstu árum. Reykjanesbrautin var lengi vel sá staður á landinu þar sem bana- slys voru tíðust en mikil breyting hefur orðið á tíðninni síðan tvö- földun brautarinnar kom til. Sigurður Helgason, forstöð- u maður Umferðarstofu , segir það vera mikið ánægjuefni að slys- um hafi fækkað en hann þakk- ar árangurinn ekki síst því að ákveðið var hækka ekki hámarks- hraðann á brautinni þrátt fyrir tvöföldun hennar. „Það er alveg ljóst að það var rétt ákvörðun að hækka ekki hámarkshraðann. Þannig náðust öll þau öryggis- markmið sem nauðsynlegt er að hafa á jafn fjölförnum vegi og Reykjanesbrautin er.“ Mikill hraði hefur ávallt ein- kennt umferðina á Reykjanes- brautinni en að sögn Ágústar Mogensen, starfsmanns rann- sóknarnefndar umferðarslysa, virðist sem tvöföldun brautarinn- ar hafi haft góð áhrif á háttalag ökumanna og umferðin sé nú síst hraðari en hún var fyrir tvöföld- unina. „Þegar ég hóf störf hjá rann- sóknarnefndinni árið 2000 fór ég margoft á Reykjanesbrautina og oftar en ekki var um harða árekstra að ræða. Svo hélt ég áfram að fara á Reykjanesbraut- ina reglulega næstu ár á eftir, þangað til tvöfölduninni á stór- um kafla lauk. Það er mikilvægt að hafa stórar og fjölfarnar götur við höfuðborgarsvæðið tvöfaldar. Sérstaklega þarf að tryggja betra öryggi á Suðarlandsvegi og Vest- urlandsvegi, auk Reykjanesbraut- ar, því það er nær undantekning- arlaust um alvarleg slys að ræða á þessum slóðum þar sem bílar skella saman úr gagnstæðri átt. En annars eru þessi mál í réttum farvegi og ég sé fram á að öryggið á þessum fjölförnu vegum muni aukast verulega á næstu árum.“ magnush@frettabladidi.is Stórslysalaust eftir tvöföldun Tvölföldun Reykjanesbrautar virðist þegar vera farin að borga sig en ekkert dauðaslys hefur orðið eftir að stór kafli brautarinnar var tvöfaldaður. HINDÚAHÁTÍÐ Helgur maður hindúa leikur á hljóðfæri í tjaldbúðum við ósa Ganges á Indlandi, en hindúískir pílagrímar munu fjölmenna við ósana á laugardag til að baða sig í ánni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2 2 4 6 2 2 2 2 4 5 2 2 0 0 TÍÐNI UMFERÐARSLYSA OG LÁTINNA Á REYKJANESBRAUT Slys og tala látinna á Reykjanesbraut SL YS LÁ TN IR DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja - víkur féllst ekki á kröfu Reyk ja - víkurborgar um að vísað yrði frá dómi máli sem snertir eignarhald á verkum listamannsins Jóhannesar Sveinssonar Kjarval. Úrskurður féll í gær, en málið höfðuðu Guð rún Kjarval, eftirlifandi eigin kona málarans, og Metta Stiil, dóttur dóttir fyrri eiginkonu hans. Kristinn Bjarnason, lögmaður Guðrúnar og Mette, segir dóm inn ekki hafa fallist á þau rök borg- arinnar að stefna máls ins væri of ítarleg og frá vísun ar kröf unni hafi því verið hafnað. „Dóm ar inn telur að þetta sé nægjanlega skil merkilega sett fram til að hægt sé að fjalla um málið,“ segir hann. Borg inni er í stefnu gefið að sök að hafa sölsað undir sig yfir fimm þúsund verk málarans, auk bóka úr dánarbúi hans, síðla árs 1968. Ekkja Kjarvals og dóttur- dóttir vilja fá munina afhenta og gera kröfu um 200 þúsund króna dag sektir, verði það ekki gert 15 dög um eftir dómsuppkvaðningu. Næst verður málið tekið fyrir í febrúarbyrjun og segir Kristinn útlit fyrir að aðalmeðferð gæti farið fram í fyrri hluta marsmánaðar. - óká KRISTINN BJARNASON Kristinn er lög mað ur Guðrúnar Kjarval og Mette Stiil í mál- a rek st ri þeirra gegn borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Kröfu Reykjavíkurborgar um frávísun á máli erfingja Jóhannesar Kjarval hafnað: Erfingjar Kjarvals höfðu betur SUÐUR-KÓREA, AP Leiðtogi Norður- Kóreu, Kim Jong Il, er nú staddur í Kína í einni af afar sjaldgæfum ferðum sínum út fyrir landsteina heimalands síns, samkvæmt upp- lýsingum frá talsmanni suður- kóreska hersins. Talsmaðurinn sagðist hafa fengið staðfest frá Kína að Kim hefði komið þangað í gær. „Við vitum að hann fór þang- að með lest,“ sagði hann og bætti við að ástæður heimsóknar Kims væru ekki kunnar. Kínversk yfirvöld vildu ekki staðfesta neitt um heimsóknina, en viðurkenndu þó að til stæði að Kim heimsækti Kína. - smk Leiðtogi Norður-Kóreu í Kína: Fór með lest til Kína SENDIRÁÐ NORÐUR-KÓREU Kínverskur her- maður stendur vörð við norðurkóreanska sendiráðið í Bejing í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Umboðsmaður Alþingis gerir dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu að taka til endurskoðunar beiðni föður sem óskaði eftir gjaf- sókn til málaferla við barnsmóður sín, vilji hann það. Ráðuneytið vísaði beiðni manns- ins frá á þeim forsendum að maður- inn hefði áður farið í mál við móður- ina vegna dóttur þeirra. Ekki yrði séð að aðstæður þeirra hefðu breyst þannig að niðurstaða sem fengist fyrir dómi yrði önnur. Umboðsmað- ur benti á að fyrra dómsmálið hefði til að mynda aðeins varðað forsjá dóttur þeirra en ekki sonar. Þá hefði móðirin ekki leyft föðurnum að hitta börnin. - gag Umboðsmaður Alþingis: Tekur undir kvörtun föður F l o k k u r Innlausnartímabil Innlausnarverð* á kr. 10.000,- 1989 2. fl. A 10 ár 15.1.2006 til 14.1.2007 41.167kr. Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.* Reykjavík, 10. janúar 2006 Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Lánasýslu ríkisins að Borgartúni 21, 2. hæð, hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 og í bönkum og sparisjóðum um land allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.