Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 26
MARKAÐURINN Heiðar Sigurvinsson, eigandi Fjarðarstáls í Hafnarfirði, segir rekstur járnsmíðaverkstæða á Íslandi vera í járnum. Launa- og efniskostnaður sé hár, sóknarfærin fá og vaxtamöguleikarnir því takmarkaðir. Starfsmenn Fjarðarstáls hafa sérhæft sig í að smíða hillur og aðrar innréttingar í verslanir. Mikið asníða hluta þeirra inn í verslanirnar. „Ég hef verið að íhuga að opna fyrirtæki á Spáni til að smíða innréttingar og fleira,“ segir Heiðar sem hefur farið nokkrum sínum út til Spánar til að kanna grundvöll slíks reksturs. Segir hann þetta mjög ákjósanlegan kost. Allur kostnaður þar ytra sé lægri. „Með því að opna verkstæði á Spáni gætum við framleitt hillur, standa og aðrar vörur þar í landi og selt viðskiptavinum okkar á Íslandi heildarlausnir í samkeppni við erlenda aðila. Þá myndi Fjarðarstál á Íslandi þjónusta þessa viðskiptavini, sett þetta upp og gengið frá öllu,“ segir Heiðar. Mikilvægt sé að huga að sóknarfærum því þegar umsvif íslenskra fyrirtækja minnki muni verða erfitt að ná endum saman. Fjarðarstál er ellefu ára gamalt fyrirtæki með fimm starfsmenn. Heiðar segir að hann þyrfti að hafa verkefni fyrir um fimmtán starfsmenn svo ásættanleg arðsemi yrði af rekstrinum. - bg Vika Frá áramótum Actavis Group 14% 14% ATORKA GROUP 5% 5% Bakkavör Group 8% 8% DAGSBRÚN 0% 0% Flaga Group -0% 0% FL Group -13% 13% Íslandsbanki 10% 10% KB banki 6% 6% Kögun 3% 3% Landsbankinn 6% 6% Marel 10% 10% Mosaic Fashions 4% 4% SÍF 0% 0% Straumur 11% 11% Össur 3% 3% *Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn G E N G I S Þ R Ó U N 11. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R Sala á fiskmörkuðum jókst árið 2005 um rúm fjögur prósent frá fyrra ári. Alls voru seld 99.635 tonn á fiskmörkuðum á Íslandi árið 2004 en 103.685 tonn árið 2005. Verðmæti þessara við- skipta nemur um 11,7 milljörðum króna og eykst um 3,3 prósent milli ára. „Þetta var besta árið frá því að ég byrjaði,“ segir Sigmundur Þorkelsson hjá fiskmarkaði Vestfjarða á Bolungarvík. Hefur ekki eins mikið farið í gegnum alla fiskmarkaðina síðan árið 1999, en misjafnt er hvernig það skiptist milli landsvæða. Sigmundur segir það hafa verið jákvæða þróun að fara að bjóða upp fisk á landssvísu. Þá geti litlar útgerðir, sem ekki hafi vinnslu á bak við sig, selt afla sinn. Öryggið sé mikið því þeir sem bjóði verði að leggja fram bankaábyrgð sem tryggingu. Greiðslur berist því örugglega. Eins séu vinnslur öruggari en áður með að fá afla til vinnslu. Sigmundur segir að aflinn sé fluttur landshorna á milli. Afli sem kemur á land á Vestfjörðum sé fluttur bæði norður og suður. Eins sé nokkuð um að keyptur sé afli til Vestfjarða þegar þannig standi á. - bg BJÓÐA Í FISK Fjölmargir sækja fiskmarkaði á hverjum degi til að kaupa fisk, sem seldur er hæstbjóðanda. Uppboð á fiski fyrir tólf milljarða Mikið af afla flutt landshorna á milli. Fjarðarstál skoðar rekstur á Spáni Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Stjórn Kers hefur falið fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að annast sölu á Olíufélaginu. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Olíufélagsins og aðal- eigandi Kers, segir að ákvörðunin taki mið af breyttri fjárfestingarstefnu Kers. „Við ákváðum fyrir allnokkru síðan að auka okkar fjárfestingar enn frekar erlendis í útrásarverkefn- um og höfum verið að vinna eftir þeim markmiðum síðan. Olíufélagið, sem er mjög vel rekið fyrirtæki og með afgerandi bestu stöðu á þessum markaði, er á tímamótum og tilbúið til að taka þátt í enn frekari verkefnum, hvort sem það er í nýjum orkugeira, smásölu eða heildsölu. Við töldum því rétt að bjóða fyrirtækið til sölu á þessum tímapunkti.“ Ólafur segir enn fremur að sú leið hafi verið farin að gefa öllum fjárfestum sem hafa áhuga og getu kost á því að bjóða í fyrirtækið. „Við gerum okkur vonir um að geta lokið þessu ferli tiltölulega fljótt.“ Stærstu eignarhlutir Kers eru í Eglu, sem er næststærsti hluthafinn í KB banka, Samskipum, SÍF og Íslandsbanka. Samkvæmt heimildum hefur Ólafur flust búferlum til London til að einbeita sér að fjárfestingum þar. Ólafur gat ekkert gefið út um verðmæti Olíufélagsins, það sé kaupendanna að gefa það út hvað þeir treysta sér til að borga. Olíufélagið ehf. var stofnað árið 2001 og tók við starfsemi gamla Olíufélagsins hf. í ársbyrjun 2002. Móðurfélagið Ker var afskráð úr Kauphöll Íslands árið 2003. Olíufélagið til sölu Ker vill losa sig við ESSO og fara í erlendar fjárfestingar. OLÍUFÉLAGIÐ TIL SÖLU Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Olíufélagsins, segir að nú sé heppilegur tími til að selja félagið. Íslandsbanki hefur fengið félagið til sölumeðferðar. Arion, sem er vörslureikningur fyrir viðskiptavini KB banka, er kominn í hóp stærstu eig- enda Opera Software, norska hátæknifyrirtækis sem sérhæfir sig í símalausnum. Hluturinn, sem er 3,15 pró- sent, er 700 milljóna króna virði. Ekki er vitað með vissu hverjir eru raunverulegir eigendur þessa hlutar en samkvæmt heimildum er Eyrir fjárfestingafélag nokkuð stór hluthafi í Opera án þess að nafn félagsins komi á lista yfir stærstu hluthafa. Félag í eigu Íslendingsins Jóns S. von Tetzchner er næststærst í Opera. - eþa Stór í Opera MP fjárfestingabanki á orðið átta prósent stofnfjár í Sparisjóði vél- stjóra. Sigurður Valtýsson, fram- kvæmdastjóri MP fjárfestinga- banka, segir að bankinn hafi hug á að eignast allt að tíu prósent stofnfjár. Kaupin eru gerð með vitund stjórnar SPV en einnig hafi Fjármálaeftirlitinu verið greint frá kaupunum. Fyrstu viðskipti með stofnfé í SPV fóru fram á genginu 24 en samkvæmt heimildum hefur fjárfestingabankinn boðist til að kaupa stofnfjárhlutina á genginu 27. Einnig hefur frést af viðskipt- um með stofnfé á genginu 30 og 35 sem fóru í gegnum annað verðbréfafyrirtæki. Viðskipti með stofnfjárbréf í SPV fara fram á opinberum markaði líkt og þeim sem SPRON rekur fyrir sín bréf. Þá eru höml- ur á atkvæðisrétti með stofnfjár- bréf í SPV en hámarksatkvæðis- réttur miðast við sex bréf. - eþa MP kominn í átta prósent í SPV Gengi á stofnfjárhlutum fer hækkandi. STOFNFJÁRFEIGENDAFUNDUR MP fjárfestingabanki er kominn með 8 prósent í SPV. Stofnfjárhlutir hækka í verði. Eignarhaldsfélagið Stekkur hefur keypt tæplega nítján prósenta hlut í Fiskmarkaði Íslands af Jóni Ásbjörnssyni, samkvæmt tilkynn- ingu Kauphallarinnar. Kaupverð er um sjötíu milljónir króna Fiskmarkaður Íslands, sem er sá stærsti á Íslandi, seldi fyrir 5,4 milljarða króna árið 2005, tæpum tvö hundrað milljónum minna en árið áður. Gengi bréfa í Fiskmarkaðnum standa nú í 5,4 krónum á hlut í Kauphöllinni og er markaðsvirði félagsins um 384 milljónir króna. - jsk Stekkur á fiskmarkað FJARÐARSTÁL Í SÓKN Heiðar Sigurvinsson, eigandi Fjarðarstáls, skoðar nú sóknarmöguleika á Spáni. V E LTA Á F I S K M Ö R K U Ð U M * 2000 11.560 2001 14.635 2002 13.755 2003 11.381 2004 11.386 2005 11.673 *í milljónum króna Íslenskir fjárfestar, undir for- ystu MP fjárfestingabanka, hafa samið um kaup á níutíu prósentum hlutafjár í úkraínska bankanum Bank Lviv. Kaupin eru þó gerð með fyrirvara um samþykki Seðlabanka Úkraínu, sem fer með bankaeftirlit í landinu, og íslenska fjármála- eftirlitsins. Í tilkynningu frá MP fjár- festingabanka kemur fram að Margeir Pétursson, stjórnarfor- maður MP, telji að um góð kaup séu að ræða miðað við kaup ann- arra vestrænna banka á banka- stofnunum í Úkraínu og að leitað verði til Sparisjóðs vélstjóra og fleiri íslenskra sparisjóða um að koma kerfum og vinnuferlum Bank Lviv í nútímalegra horf. Í Úkraínu búa fimmtíu millj- ónir manna og er búist við gríðar- legum vexti í bankakerfi landsins á næstu árum. Hafa vestrænir bankar hafið innrás sína til lands- ins, keypt fjölda banka og komið upp útibúum. - jsk Kaupir úkraínskan banka Búist er við gíðarlegum vexti úkraínska bankakerfisins á næstu árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.