Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2006 13 Líkt og vant er þegar snjóar glöddust börnin á höfuðborgarsvæðinu í gær. Veturinn hefur nánast verið snjólaus og því ekki hægt að bregða sér í hefðbundna vetrarleiki með snjókasti, snjóhúsum, snjókörlum og -kerlingum, né heldur renna sér niður brekkur á snjóþotum. Þó að fá tækifæri hafi gefist til snjóleikja fram til þessa kunnu börnin vel til verka og báru sig fagmannlega við leiki sína. Snjóboltar flugu í allar áttir og líklega hefur stöku snjóhús skotið upp kollinum. BRUNAÐ NIÐUR BREKKUNA Snjóþotur voru dregnar fram úr geymslum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Höfuðborgarsvæðið hvítt: Börnin kættust Djúpstæður ágrenningur hefur sett mark sitt á starf þorrablótsnefndar Hornfirðinga í ár og segir Halldóra Katrín Guðmundsdóttir, talsmaður nefndarinnar, að hver höndin sé uppi á móti annarri. „Ágreining- urinn er þó ekki illskeyttur heldur snýst um það að átta karlmenn af þrettán, sem sæti eiga í þorrablóts- nefndinni, vilja allir leika bæjar- stjórann okkar á blótinu,“ segir Halldóra. Hefð er fyrir því að máttar- stólpar samfélagsins á Höfn séu teknir fyrir á þorrablóti Hornfirð- inga og hefur Albert Eymundsson bæjarstjóri oftar en ekki orðið skotspónn þeirra sem skemmta. „Til að freista þess að koma á friði í nefndinni ákváðum við að leyfa þeim öllum að taka þátt í áheyrn- arprufu. Þriggja kvenna dómnefnd mun svo velja besta Albertinn en við teljum að hornfirskar konur hafi fylgst betur með tilburðum og kenjum bæjarstjórans en kyn- bræður hans,“ segir Halldóra. Áheyrnarprófið fór fram í gær- kvöld en Halldóra vildi ekki gefa upp hvar það fór fram og úrslit verða ekki kunngerð fyrr en í vikulok. - kk Deilt um hlutverkaskipan: Allir vilja bæj- arstjórinn vera BÆJARSTJÓRINN OG BÆJARSTJÓRINN LEIKINN Hefð er fyrir því að Albert Eymundsson sé tekinn fyrir á þorrablóti Hornfirðinga. Skemmti- og fræðasetur á sviði vísinda og tækni verður að líkind- um opnað í Reykjavík innan tíðar. Samningur um stofnun félags sem vinna mun að undirbún- ingi setursins var undirritaður á mánudag. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands og Alfreð Þorsteinsson, stjórnar- formaður Orkuveitu Reykjavík- ur, undirrituðu samninginn. Frumkvöðullinn að þess- ari hugmynd hér á landi er Ari Ólafsson, dósent í eðlisfræði, en að hans sögn er mikil þörf á því að efla ímynd vísinda hér á landi sem og annars staðar. „Að miklu leyti snýst þetta mál um ímynd- arsmíð. Raunvísindamenn eru almennt frekar slakir áróðurs- menn og það þarf að bæta ímynd vísinda og tækni. Börn eru alin upp við það í gegnum sjónvarps- efni að vísindamenn séu brjál- aðir og illgjarnir. Þessu þarf að breyta og það er okkar von að hægt verði að upplýsa börn um það í tilraunahúsinu að raunvís- indi geti verið bæði skemmtileg og nærandi fyrir hugann.“ Skemmti- og fræðasetur á sviði vísinda og tækni er að finna í flestum stærri borgum heims. Þau eru afar vinsæll áfangastaður ungs fólks og gegna mikilvægu hlutverki í því fræða börn, unglinga og fullorðna um hlutverk vísinda í lífinu. Vonir standa til þess að hlutafé muni hlaupa á hundruðum millj- óna króna, en setrið á að vera allt hið glæsilegasta. Félagið sem stofnað verður mun leita bæði til fyrirtækja og einstaklinga eftir hlutafé. - mh SAMNINGURINN HANDSALAÐUR Hafinn er undirbúningur að stofnun skemmti- og fræðaseturs á sviði vísinda og tækni. Er því ætlað að auka áhuga á vísindum og tækni og bæta ímynd greinanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR Stefnt að uppbyggingu skemmti- og fræðaseturs innan skamms: Ímynd vísinda og tækni verði bætt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.