Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 20
[ ]
Mikil söluaukning varð á
tvinnbílum í Bandaríkjunum
á síðasta ári. Tvinnbílar hafa
bæði rafmótor og venjulega
bensínvél. Bílarnir hafa þann
kost að vera mun sparneytnari
í innanbæjarakstri en hefð-
bundnar vélar og eru þar af
leiðandi umhverfisvænni.
Frá því að fyrsti tvinnbíllinn, Toyota
Prius, kom á markað 1997 hafa
tvinnbílar verið í mikilli
sókn. Í Bandaríkjunum
jókst sala þeirra um
143% á síðasta ári
og rúmlega 1%
allra seldra bíla
eru tvinnbílar.
B j a r t s ý n u s t u
spár gera ráð
fyrir að þessi
tala verði komin
upp í 12% árið
2010 og þá verði 2
milljónir tvinnbíla
á norður-amerískum
vegum.
Enn sem komið er
eru tvinnbílar dýrari
en hefðbundir bílar. Þó
svo að bensínsparnaður vegi
upp á móti þessum kostnaði eru
flestir sérfræðingar sammála
um að verð þurfi að lækka ef
tvinntæknin á að ná varanlegri
fótfestu á markaðnum. Ný tækni
er alltaf dýr en þróunin er hröð
og bílafyrirtæki keppast við að
gera tvinnbílatæknina ódýrari
og öflugri. Til að mynda hefur
General Motors kynnt svokallaða
Græna línu þar sem tvinntæknin
hefur verið einfölduð til að ná
kostnaði niður um allt að helming.
Tvinnbílar eru misjafnir að gerð
og hefur hver bílaframleiðandi
sína útgáfu af tvinntækninni. Allir
tvinnbílar eiga það þó sameiginlegt
að hafa tvo orkugjafa, annars
vegar hefðbundna vél sem brennur
bensíni og hins vegar rafmótor.
Samvinna orkugjafanna gerir
bensínvélinni kleift að ganga ávallt
á kjörsnúningi og spara þannig
bensín. Aðeins við mikið álag og
hraðakstur eykst snúningshraði
bensínvélarinnar en í kyrrstöðu
og upp að 25 km hraða er alveg
slökkt á vélinni.
T v i n n v é l a r
virkja og nýta
hemlunarorku og þar sem
bensínvél.
Notkunarmöguleikar tvinnbíla
eru þeir sömu og hefðbundinna bíla.
Þeir eru allt að 50% sparneytnari í
innanbæjarakstri en sparnaðurinn
minnkar og hverfur á endanum
við mikið álag og hraðakstur. Þá
hættir rafmótorinn að framleiða
næga orku og bensínvélin tekur
við. Þetta gerir það að verkum að
sparnaðurinn við tvinnvélarnar er
lítill sem enginn við svokallaðan
þjóðvegaakstur þar sem vélin
er þanin í lengri tíma án þess að
hemla.
Í dag eru til níu tegundir af
tvinnbílum, þar af fjórar tegundir
fólksbíla, fjórar tegundir fjölnota
bíla og jepplinga, og ein tegund
pallbíls. Á næsta ári er gert ráð
fyrir því að tegundirnar verði
orðnar 19 og árið 2008 ætlar
Porsche að setja Cayenne með
tvinnvél á markað og verða
tegundirnar þá orðnar 20.
Tveir tvinnbílar eru fáanlegir á
Íslandi. Þær eru Toyota Prius, sem
hefur yfirburða markaðsstöðu
á tvinnbílamarkaðnum,
og lúxusjeppinn Lexus
RX 400. Umboðsaðili
beggja bílanna er
P.Samúelsson
hf. ■
Full búð af aukahlutum
á bílinn þinn
lexusljós, angeleyes,
neonljós, græjur,
spoilerar, lækkunargormar,
kraftsíur, racekútar, o.fl.
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
Langar bílferðir milli landshluta geta orðið enn lengri á
þessum árstíma. Allra veðra er von og stundum er betra að halda
kyrru fyrir einhvers staðar á leiðinni ef veðrið er slæmt.
Sala tvinnbíla margfaldast
SCANIA ER MEST SELDI VÖRU-
BÍLLINN Á ÍSLANDI MEÐ TÆPLEGA
32% HLUTDEILD.
Samkvæmt sölutölum Umferðarstofu
voru alls skráðir 269 hefðbundnir
vöru- og flutningabílar, 16 tonn og
stærri, á árinu 2005 og er það mesta
skráning frá upphafi í þessum flokki.
Scania var söluhæsti vörubíllinn, en
alls voru skráðir 85 Scania vörubílar
á síðasta ári. Er þetta fimmta árið í
röð sem Scania er söluhæsti vöru-
bíllinn í þessum flokki.
Ásmundur Jónsson, framkvæmda-
stjóri vélasviðs Heklu, sem er
umboðsaðili Scania, segir söluna
þá mestu frá árinu 1954 þegar
fyrsti Scania vörubíllinn var fluttur
inn til landsins. Hann telur söluna
verða minni í ár en er þó mjög
bjartsýnn því þegar liggja fyrir margar
staðfestar pantanir á bílum til
afgreiðslu á árinu 2006.
269 vörubílar skráðir 2005
Scania vörubílar eru þeir mest seldu
hér á landi.
Lexus RX 400 er tvinnbíll sem valinn var bíll ársins hér á landi 2005 í flokki jeppa og jepplinga.
Saturn Vue Græna lína frá General Motors.
Á alþjóða bílasýningunni í Detroit kynnti
GM tvo nýja tvinnbíla. Saturn Vue og
Chevrolet Tahoe en báðum bílum er ætlað
að koma út 2007.
(AP PHOTO/GENERAL MOTORS)
Viðskiptavinir Ingvars
Helgasonar njóta góðs af magn-
innkaupum GM í Danmörku.
Vegna samstarfs Ingvars Helga-
sonar við GM í Danmörku njóta
viðskiptavinir góðs af magninn-
kaupum GM við frændur sína
í Svíþjóð. Umboðið getur
því boðið Saab 9-3 á verði
frá 2.290.000.
SAAB á sér áratug-
alanga sögu og er sér-
staklega hannaður fyrir
skandinavískar aðstæður.
SAAB hefur fengið fimm stjörnur
frá NCAP tvö ár í röð og fékk 9-3
nýlega gullverðlaun fyrir öryggi
frá IIHS í Bandaríkjunum. Einn-
ig hafa tímaritin Auto Trader og
New Car Buyer‘s Guide í Bretlandi
verðlaunað Saab 9-3 sem bíl ársins í
sínum flokki.
Saab er nú aftur áberandi á mark-
aðnum eftir nokkurt hlé og hafa við-
brögðin verið framar björtustu
vonum, til að mynda
seldist Saab upp
hér á landi
í sumar.
Saab 9-3 á lækkuðu verði
Saab 9-3 fæst nú á lækkuðu verði hjá
Ingvari Helgasyni.