Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 61
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2006 25
Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta-
fræðingur ætlar að stikla á stóru um
bókaútgáfu síðasta árs á rannsókna-
kvöldi Félags íslenskra fræða, sem
haldið verður í húsi Sögufélgsins
við Fischersund.
„Jólabókaflóðið er orðið að
eins konar vertíð í íslenskum
bókmenntum og það er komin hefð
fyrir því að gera þessa vertíð upp í
janúar. Félag íslenskra fræða hefur
staðið fyrir þessum fyrirlestrum
í nokkur ár,“ segir Úlfhildur, sem
ætlar að taka að sér þetta uppgjör
í ár.
Hún segir að bókaútgáfa síðast
árs hafi um margt verið býsna
óvenjuleg.
„Þetta var til dæmis gífurlega
gjöfult ár af þýðingum, og þær
voru mjög fjölbreyttar, allt frá
kínverskum ljóðaþýðingum til
splunkunýrra fantasíubóka fyrir
börn og unglinga. Sömuleiðis
þýðingar á klassískum skáldsögum
eins og Dauðanum í Feneyjum og
svo splunkunýjum eftir skáld eins
og Margaret Atwood og Kazuo
Ishiguro.“
Úlfhildur segist afskaplega
ánægð með allar þessar þýðingar,
ekki sé vanþörf á að minna á
mikilvægi góðra þýðinga fyrir
íslenska lesendur og íslenskt
bókmenntalandslag.
„Svo voru náttúrlega glæpasög-
urnar mjög áberandi, en það var
kannski viðbúið að þeim færi að
fjölga. Þetta er bara eðlileg þróun,
að þegar þessi tegund af bókmennt-
um kemur á annað borð undir sig
fótunum þá fjölgar slíkum bókum
hratt. Núna bíður maður bara
spenntur eftir því að íslenskum
hrollvekjum og vísindaskáldsögum
fari að fjölga.“ ■
Brennið þið menningarvitar
ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR Bíður spennt eftir
að íslenskar hrollvekjur nái sér á strik eins
og glæpasögurnar hafa gert.
Janúarverkefni Hugleiks í Leik-
húskjallaranum er gamanóperan
Bíbí og blakan eftir þá Ármann
Guðmundsson, Sævar Sigurgeirs-
son og Þorgeir Tryggvason. Verkið
segir frá hinni ungu og fögru Bíbí
sem bíður ein eftir að ástin sæki
hana heim. Málið vandast þegar
tvo gesti ber að garði sömu nóttina:
töfrandi en dularfullur rúmenskur
nýbúi og ábúðarmikill vampýru-
veiðari, sem telur sig heldur en
ekki vera kominn í feitt.
Bíbí og blakan er langlífasta og
víðförulasta sýning Hugleiks, og
fagnar nú tíu ára afmæli sínu.
Verkið hefur tekið talsverðum
breytingum í áranna rás, en leik-
arar að þessu sinni eru þau Einar
Þór Einarsson, Björn Thoraren-
sen, Hulda B. Hákonardóttir, Silja
B. Huldudóttir, Þorgeir Tryggva-
son, Þórunn Guðmundsdóttir og
Ylfa Mist Helgadóttir auk píanó-
leikarans Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur.
Aðeins verður ein sýning á
verkinu, og verður hún í kvöld
klukkan 21. ■
BÍBÍ OG BLAKAN Leikfélagið Hugleikur
verður með „Þetta mánaðarlega“ í
Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.
Bíbí og Blakan á ný
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
8 9 10 11 12 13 14
Miðvikudagur
■ ■ BÆKUR
20.00 „Brennið þið menningar-
vitar: flóð og fjara í íslenskum
bókmenntum 2005” er yfirskrift
rannsóknarkvölds í húsi Sögu-
félagsins, Fischersundi 3 þar sem
Úlfhildur Dagsdóttir stiklar á stóru í
hraðri yfirferð um bókaútgáfu síðasta
árs.
■ ■ LISTAHÁTÍÐ
21.00 Hugleikur sýnir Bíbí og
Blakan í Þjóðleikhúskjallaranum
á mánaðarlegu skemmtikvöldi
sínu undir yfirskriftinni “Þetta
mánaðarlega”.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Himnaríki
Föstud. 20.
Laugard. 21.
Laugard. 28
Mind Kamp
Forsýning föstud. 13. uppselt
Hátíðaropnun sunnud. 15. uppselt
Fimmtud. 19.
sunnud. 22.
föstud. 27.
sunnud. 29.
Ef
Mánud. 16. kl. 9 og 11 Uppselt
Þriðjud. 17. kl. 9 og 11 uppselt
Þriðjud. 24. kl. 9 og 11 Uppselt
Miðvikud. 25 kl. 9 og 11 Uppselt
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI