Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 42

Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 42
MARKAÐURINN A U R A S Á L I N 11. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR18 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Áramótin hjá Aurasálinni voru ömurleg og raunar með þeim verstu sem hún hefur upplifað. Ekki svo að skilja að þetta hafi verið eitthvað mjög ólíkt því sem gengur og gerist á íslenskum heimilum eða að áramótin hafi verið mjög frábrugðin þeim hefðum og venjum sem skapast hafa í fjölskyldu Aurasálarinnar gegnum árin. Það var kalkúnn í matinn og ágætt rauðvín með, heimalagaður ís í eftirrétt og kaffi og koníak eftir matinn. Svo var konfekt og snittur yfir hinu stórfenglega ára- mótaskaupi og svo var skotið upp flugeldum fyrir hundrað þúsund kall eða svo. Það voru svo sem ágætir gestir hjá Aurasálinni líka. Foreldrar Aurasálarinnar og systkini, tengdaforeldrarnir mættu og félagarnir úr brids- klúbbnum. Það var djammað fram eftir morgni og fólk hafði á orði að það hefði skemmt sér vel. Og Aurasálin stóð í þessari meiningu líka. Þangað til í gær. Þá kom í ljós að áramótin hjá Aurasálinni voru hörmung. Eitthvað lið í KB banka eyðilagði gjörsamlega áramót Aurasálarinnar um alla framtíð. Í partíinu hjá þeim var ekki bara dýrindismatur á boðstólum og nóg af brennivíni heldur var búið að koma fyrir beinagreind af risaeðlu sem skrauti og Tom Jones tróð upp. Og ekki nóg með það heldur skilst Aurasálinni að allir bankastjórar landsins hafi sameinast um að grýta í hann nærbuxunum sínum við mikinn fögnuð viðstaddra. Heima hjá Aurasálinni fór enginn úr nærbuxunum - nema Aurasálin sjálf. Og það var ekki fyrr en hún fór að sofa - og þá meira að segja fór hún í náttbuxur í staðinn. Það var nú ekki meiri spenna á gamlárskvöld hjá Aurasálinni. Það er ágætt að fá fréttir af því hvernig bankastjórar, Bakkabræður og aðrir stórbokkar halda partí. Það minnir fólk eins og Aurasálina á það hversu léttvægar, tilbreytingarsnauðar og hversdagslegar jafnvel mestu stórhátíðir þeirra eru. Ef ekki hefðu fengist fréttir af Tom Jones-partíinu hjá bankaliðinu þá hefði Aurasálin kannski haldið að það hefði ekkert verið að áramótunum hjá henni. Guðlaun fyrir að losna undan þeirri sjálfsblekkingu. Næstu áramót mega ekki misheppnast svona hryllilega. Þá verður ekki bara fengin risaeðlubeinagrind í partíið heldur verður henni skotið upp með flugeldunum. Og það verður enginn útbrunninn ellismellur að syngja - nei takk. Rolling Stones - ekkert minna. Og staðurinn: Buckingham-höll! Ömurleg áramót Lífeyrissjóðirnir hafa átt góða daga undanfarin þrjú ár eftir að markaðir tóku við sér á ný eftir stutt samdráttarskeið. Íslendingar búa vel, þegar horft er til lífeyriseignar og sjóðurinn sem þjóðin ávaxtar í gegnum lífeyriskerfið er kominn yfir þúsund milljarða. Til lengri tíma litið skiptir miklu að sjóðirnir séu vel reknir og skili góðri ávöxtun. Sameining lífeyrissjóða er óhjákvæmileg, ef hámarka á árangurinn, Árni Guðmundsson, er framkvæmdastjóri Gildis sem varð til þegar Lífeyrissjóður Sjómanna og Lífeyrissjóðurinn Framsýn sameinuðust. Gildi byrjar vel. Árið að baki gott og sjóðurinn var valinn besti íslenski lífeyrissjóðurinn af IPE sem er evrópskt tímarit sem fjallar um lífeyrissjóði í Evrópu og fjárfestingar þeirra. „Gildi er þriðji stærsti lífeyrissjóðurinn og þeir þrír stærstu eru langstærstir. Lífeyrissjóður sjómanna var lítill sjóður þegar horft er til fjölda greiðenda, þótt hann ætti miklar eignir. Sameiningin snerist um tryggingafræðilega stöðu og hagkvæmni. Við vorum til dæmis með einn mann í eignastýringu sem er ekki skynsamlegt á flóknum markaði, þótt árangurinn hafi verið frábær.“ Árni segir eignastýringuna hafa eflst verulega við sameininguna. Vaxandi örorka og hærri lífaldur þyngir byrðar lífeyrissjóðanna. Örorkan kemur misjafnlega niður og hlutfallið er hátt hjá Gildi miðað við marga aðra sjóði. „Lífeyrissjóðir sem eru með hátt hlutfall örorku eru ekki samkeppnishæfir og þurfa að skila miklu betri ávöxtun til að geta boðið sambærileg réttindi. Hins vegar er vakning gagnvart þessum málum og það á að skipa nefnd og útluta fjármunum til þeirra sjóða sem bera hæstu örorkuna, Ég er mjög sáttur við þá þróun og þó þessi lausn leysi ekki allan vanda, þá léttir hún mestu byrðinni af þeim sjóðum sem eru í þessari stöðu og gerir þá samkeppnishæfari.“ Íslenski markaðurinn hefur gefið vel af sér og lúxusvandamálin láta á sér kræla. „Við erum nettóseljendur á íslenskum bréfum, en eignin hækkar alltaf. Maður kvartar ekki yfir hækkuninni, en hún verður til þess að við erum við topp þess sem við megum eiga.“ Hann segir sjóðinn hafa notið þess að hafa haft hlutfallslega hátt hlutfall á innlenda markaðnum. Lífeyrissjóðirnir hafa reynst geysilega mikilvægir við uppbyggingu og sókn fyrirtækja. „Ég tel að það megi rýmka heimildir sjóðanna til fjárfestinga og að ekki þurfi að binda jafn mikið í l0g. Fjárfestingarstefnan sjóðanna sjálfra myndi þannig ráða meiru og ég held að umgjörð og eftirlit sé með þeim hætti að þetta þurfi ekki að vera niðurnjörvað í lög. Ég hef trú á því að þetta muni gerast.“ Árni hefur verið allan sinn starfsferil að sýsla við lífeyrismál. „Ég byrjaði hjá Tryggingastofnun ríkisins eftir að ég lauk námi í lögfræði sem var með Lífeyrissjóð sjómanna í rekstri. Síðan flutti sjóðurinn út úr stofnuninni, þannig að ég var búinn að vera með Lífeyrissjóð sjómanna í 23 ár þegar Gildi varð til við sameininguna á síðasta ári.“ Árni segir að hann hafi ekki haft hug á að praktísera lögfræði. „Í náminu sá ég ekki fyrir mér að ég vildi fara í lögmennsku. Tilviljanirnar ráða því oft hvar maður lendir og mér var boðin sumarvinna sem þróaðist í þessa átt og ég sé ekki eftir því. Þó maður sé búinn að vera í sama starfinu þennan tíma, þá hefur þetta breyst allt svo mikið á þessum tíma.“ Lífeyrissjóðirnir hafa gjörbreyst og eflst til mikilla muna á þessu tímabili. „Fjármálamarkaðurinn og umgjörð hans er líka gjörbreytt og tekur stöðugum breytingum. Kröfurnar hafa líka aukist mikið í kringum lífeyrissjóðina og gjörbreyst. Fyrstu árin máttum við ekki fjárfesta í hlutabréfum. Þá voru ávöxtunarleiðir okkar fjárfestingar í skuldabréfum Húsnæðisstofnunar, banka- bréfum og sjóðfélagalánum. Þetta var nú ekki flóknara en það.“ Lífeyrissjóður sjómanna fékk heimild til fjárfestinga í innlendum og erlendum hlutabréfum árið 1994. Nú eru heildareignir sjóðanna komnar yfir þúsund milljarða og þótt einungis lítill hluti þeirra sé í innlendum hlutabréfum, þá geta þeir verið valdamiklir í fyrirtækjum ef þeir beita sér. „Ég held að almennt séu lífeyrissjóðir ekki í því að beita sér beint með því að setja menn í stjórnir, þótt á því séu undantekningar. Ég held að þróunin sé í þá átt að beita sér ekki með þeim hætti, en þeir beita sér auðvitað með atkvæðisrétti eða með því að kaupa og selja bréf. Það er í stefnu okkar að stuðla að heilbrigðum markaði og við gerum hiklaust athuga- semdir við félög ef okkur finnst þau ekki standa sig við upplýsingagjöf eða aðra þætti. Við höfum gert slíkar athugasemdir í fleiri en eitt skipti ef við erum ekki sáttir.“ Árni segir að menn hafi undantekningarlaust tekið vel slíkum athugasemdum og fagnað áhuga hluthafa á fyrirtækinu. Umhverfið á markaði hefur ekki síður breyst en lífeyrissjóðirnir sjálfir. Árni segir markaðinn hafa farið bratt í gegnum þróun sem margir aðrir markaði hafi farið í gegnum á mun lengri tíma. „Þegar á heildina er litið finnst mér hann hafa þróast vel. Auðvitað eru alltaf einhver mál sem maður setur spurningamerki við. Markaðurinn hefur gengið vel og menn hafa verið framsæknir og kaldir og þá koma auðvitað upp mál þar sem manni finnst að það hefði mátt gera hlutina öðruvísi.“ Árni segir að þegar IPE valdi sjóðinn bestan íslenskra lífeyrissjóða hafi legið til grundvallar nokkrir þættir. Skýr og vel mótuð fjárfestingarstefna sem skilað hafi framúrskarandi ávöxtun. „Þá var einnig nefnt að Gildi hefur verið leiðandi í að móta nýtt réttindakerfi sem er aldurstengt. Þetta kerfi er verið að taka upp hjá öðrum lífeyrissjóðum. Þetta eru þættir sem nefndir eru í umsögninni og við erum mjög stoltir af því.“ Útlit er fyrir að þeir sem nú eru á fyrri hluta starfsævinnar muni njóta fjárhagslegs öryggis á efri árum. „Þeir ættu að vera í góðum málum. Réttindin hanga saman við það sem menn greiða í sjóðina og réttindin eru eftir því misjöfn. Fyrir ungu fólki blasir við allt annar heimur en fyrir þeim sem byrjuðu seint að borga og greiddu kannski ekki af fullum launum sínum.“ Árni er mikill íþróttaáhugamaður og harður KR-ingur. Hinn heimvöllurinn er Stamford Bridge, en Chelsea hefur verið uppáhaldslið í áratugi. Hann keppti í körfubolta og fótbolta. „Ég er búinn að vera á kafi í íþróttum frá því ég man eftir mér og er enn, spilaði með KR og ÍS í körfubolta og KR í fótbolta.“ Hann segir starfið þess eðlis að hann sé vakinn og sofinn yfir því. „Sem betur fer finnst mér það mjög skemmtilegt.“ Árni segist hafa verið að fikra sig áfram með golf sem er einmitt íþrótt sem er gott að stunda þegar lífeyrisgreiðslur eru farnar að berast. „Ég er kominn með þá stórhættulegu bakteríu.“ Íþróttin er tímafrek. „Ég bý nú reyndar rétt hjá vellinum á Seltjarnarnesi og hann er níu holur svo það tekur ekki voðalega langan tíma að hlaupa einn hring, næ því jafnvel fyrir vinnu á morgnana. Ég er vanur boltaíþróttum og hélt það væri lítið mál að eiga við minni bolta,“ segir Árni og viðurkennir að glíman við litla boltann reyni oft á þolinmæðina. ÖFLUGUR SJÓÐUR Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, segir stjórn sjóðsins hiklaust gera athugasemdir líki henni ekki starfshættir fyrirtækja sem sjóðurinn fjárfestir í. Slíkum athugasemdum sé undantekningarlaust vel tekið. MARKAÐURINN/HEIÐA Í sama starfi á tímum mikillar þróunar Árni Guðmundsson hóf að stýra Lífeyrssjóði sjómanna strax að loknu lögfræðinámi. Hann hefur fylgt sjóðnum gegnum mikið breytingaskeið og stýrir nú Gildi sem varð til við sameiningu sjóðsins við Lífeyrissjóðinn Framsýn. Úr varð þriðji stærsti lífeyrissjóðurinn. Árni Guðmundsson Starf: Framkvæmdastjóri Gildis Fæðingardagur: 19. maí 1956 Maki: Margrét Halldórsdóttir Börn: Halldór f. 1984, Elín f. 1988, Guðmundur Örn f. 1991 Hádegisverður fyrir tvo á Apótekinu Lauksúpa með brauðteningum Kjúklingasalat með Madrassósu Drykkir Vatn og Kaffi Alls krónur xxxxxxxxx ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Árna Guðmundssyni framkvæmdastjóra Gildis

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.