Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 64
[ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN Napóleonsstríðin voru eitt allsherjarkraðak þar sem sumar þjóðir lögðu aðrar undir sig, aðrar öðluðust þjóðarvitund og sumar hurfu alveg af kortinu og hafa ekki birst aftur. Þetta kemst vel til skila í myndinni um Grimmbræður, þar sem Svíinn Peter Stormare leikur Ítala, hinn velski Jonathan Price leikur Frakka, og Ástralinn Heath Ledger, Bandaríkjamaðurinn Matt Damon, Ítalinn Monica Belucci og Lena Heady frá Bermúdaeyjum leika öll Þjóðverja. Allir tala að sjálfsögðu ensku með misýktum hreim. Þjóðverjarnir eru hér aldrei þessu vant í hlutverki góðu gæjanna og tala því að sjálfsögðu Oxfordensku. Matt Damon tekst misvel upp en það sem kemur mest á óvart er hversu sannfærandi Heath Ledger er í hlutverki gáfumennisins, eins undarlega og það kann að hljóma. Það er einnig merkilegt að þetta er líklega fyrsta myndin frá lokum síðari heimsstyrjaldar sem fjallar um hernám Frakka í Þýskalandi árin 1806-1813, sem sýnir að fyrir suma er seinni heimsstyrjöldinni endanlega lokið. Myndin er þó alls engin söguleg stórmynd í hefðbundnum skilningi því hetjurnar tvær þurfa að takast á við nornir, varúlfa, piparkökukarla og göldróttan skóg, jafnt sem hernámsliðið. Hún er afar lauslega byggð á lífi Grimmbræðra, sem söfnuðu saman ævintýrum í Þýskalandi á fyrri hluta 19. aldar. Hér eru þeir hinsvegar sýndir sem svikahrappar í gervi draugabana, sem er hressandi útúrsnúningur á ævintýraheiminum. Annar bræðranna, sem leikinn er af Ledger, skrifar jafnframt ævintýri sem hann sér nú verða að veruleika. Myndin er mitt á milli þess að vera gamanmynd og ævintýramynd og hún tekur sjálfa sig passlega alvarlega. Menn deyja með brandara og bros á vör og einnig er skemmti- legt atriði þar sem kettlingur kemur við sögu í þeim eina til- gangi að vera hent í hrærivél, að því er virðist. Hefur það farið fyrir brjóstið á mörgum Banda- ríkjamanninum. En ekki er nógu mikið af slíkum atriðum og undir lokin víkja þau alveg fyrir ævin- týrinu, sem er of auðveldur og hamingjusamur endir miðað við kaldhæðnina sem á undan kom. Terry Gilliam er mikill meist- ari hins sjónræna, sem hann hefur sýnt í myndum á borð við Brazil, The Fisher King og hina lágstemmdari 12 Monkeys, jafn- framt því sem hann teiknaði myndir Monthy Python-þátt- anna. Þetta er fyrsta myndin sem hann gerir síðan Fear and Loathing in Las Vegas kom út árið 1998. Í millitíðinni hefur hann verið týndur við gerð meints meistaraverks síns um Don Kíkóta, sem enn hefur ekki tekist að klára. Velta því sumir fyrir sér hvort myndin um hina myndarlegu bræður sé til þess gerð að fjármagna áframhaldandi gerð Kíkóta. Svo virðist sem Gilliam hafi ekki lagt sig allan í verkið. En nóg eimir þó eftir af snilld hans til að færa mann langleiðina inn í ævintýraheiminn. Valur Gunnarsson Grimmd við kettlinga THE BROTHERS GRIMM LEIKSTJÓRI: TERRY GILLIAM AÐALHLUTVERK: MATT DAMON OG HEATH LEDGER. Niðurstaða: Undir meðallagi Gilliams, en ágætis ævintýramynd samt sem áður. Auglýsingastofan Vatikanið vann nýverið verkefni fyrir færeyska fjarskiptafyrirtækið Kall sem fól í sér stofnun súpergrúppunnar The Message. Stofan fékk til liðs við sig fjóra þekkta popparara úr ólíkum jað- arhljómsveitum í Færeyjum og lét sem þeir hefðu stofnað nýja hljómsveit. Stofnuð var heimasíða með nýjustu fréttum af sveitinni og aðdáendasíða, auk þess sem auglýst var að lagið 1000 SMS yrði gefið út. Útgáfutónleikar voru einnig fyrirhugaðir. Fjölmargir bitu á agnið og héldu að The Message væri alvöru hljómsveit, þar á meðal færeyski landssíminn sem er keppni- nautur Kalls sem birti fréttir af hljómsveitinni og fylgdist vel með gangi mála. Þegar til kom var einungis um að ræða auglýsingu á nýju skafkorti Kalls með mynd- um af hljómsveitarmeðlimum The Message. Magnús Árnason, starfsmaður Vatikansins, segir að verkefnið hafi gengið framar vonum enda skapaðist mikill áhugi á þessari „nýju“ hljómsveit. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem svona markaðs- herferð er reynd í Færeyjum. Hann segist ekki vita hvort menn hafi orðið fúlir þegar fréttist að The Message væri ekki alvöru hljómsveit. Auglýsingastofan hafi einungis verið að stríða mark- aðnum og það hafi virkað alveg prýðilega. „Þeir alla vega birtu fréttirnar og síðan kom grúpp- an saman og samdi lag og þá var ekkert verið að auglýsa,“ segir Magnús. Naut lagið 1000 SMS töluverðra vinsælda í Færeyjum í framhaldinu. THE MESSAGE Hljómsveitin The Message var stofnuð í tengslum við auglýsingaherferð í Færeyjum. Rokkdúettinn The White Stripes, sem hélt eftirminnilega tónleika í Laugardalshöll á síðasta ári, hefur frestað fyrirhugaðri tónleikaferð sinni um Japan. Á s t æ ð a n er sú að söngvarinn Jack White er í vandræðum með radd- böndin sín og má hvorki tala og hvað þá syngja næstu tvær vikurnar. Á heimasíðu sveitarinnar eru að- dáendur hennar í Japan beðnir afsökunar og vonast hún til að koma þangað sem allra fyrst. White missti röddina JACK WHITE Rokkdúettinn The White Stripes er ekki á leiðinni til Japans alveg á næstunni. Hip hop-hljómsveitin The Phar- cyde frá Los Angeles heldur tón- leika á Gauki á Stöng þann 25. febrúar næstkomandi. Hljómsveitin, sem hefur haft töluverð áhrif á hip hop-jaðar- senuna í Bandaríkjunum, var stofnuð af fjórum aðilum árið 1990 og gaf út sína fyrstu plötu, Bizarre Ride II the Pharcyde, sem náði gullsölu. Eftir að hafa hitað upp fyrir De La Soul og A Tribe Called Quest og komið fram á Loppalapooza- hátíðinni árið 1994 gaf The Pharcyde út sína aðra plötu, Labcabincalifornia. Eftir að rólegt hafði verið yfir sveitinni í nokkur ár kom út þriðja platan, Plain Rap, árið 2000. Aðeins tveir eru eftir í sveitinni nú, þeir Imani Wilcox og Bootie Brown. Gáfu þeir út plötuna Humboldt Beginnings árið 2004. The Pharcyde til Íslands í febrúar THE PHARCYDE Hljómsveitin The Pharcyde hefur gefið út fjórar breiðskífur. Vatikanið með ný markaðstrikk HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TAL Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 B.i. 16 ára Lúxus kl. 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka ���� - Toronto Sun ���� HJ MBL ���� Dóri DNA - DV ���1⁄2 K&F XFM ��� VJV / Topp5.is ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com ��� - Topp5.is SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL ���� - Toronto Sun ���� HJ MBL ���� Dóri DNA - DV ���1⁄2 K&F XFM ��� VJV / Topp5.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.