Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 23
][
,
Páskafríið er næsta langa fríið og því er alveg tilvalið
að fara að skipuleggja það ef fara á eitthvert út fyrir
landsteinana.
Icelandair ætlar að fljúga með
ástfangna til Boston 11. til 15.
febrúar.
Boston er ein skemmtilegasta
borg Bandaríkjanna í margra
augum þar sem hún sker sig nokk-
uð frá öðrum bandarískum borg-
um. Boston býður upp á fjölda
áhugaverðra veitingahúsa, iðandi
menningarlíf og marga merkilega
sögustaði.
Icelandair býður upp á Valentínus-
arferð til Boston um miðjan febrú-
ar, en vafalaust geta þeir sem ekki
vilja halda upp á Valentínusardag-
inn skellt sér með í för. Innifalið í
ferðinni er gisting í fjórar nætur á
Copley Square Hotel með morgun-
verði, flugvallarskattar og þjón-
ustugjöld. ■
Valentínus í Boston
Boston er ein af skemmtilegustu borgum Bandaríkjanna. Þangað ætlar Icelandair að fljúga
í Valentínusarvikunni um miðjan febrúar.
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
Margir kjósa að ferðast á eigin
vegum og styðjast við lág-
gjaldaflugfélög. Á internetinu
má finna margar síður sem
gefa þann kost að setja saman
ódýrar ferðir.
Þær síður sem helst ber að nefna
eru www.ryanair.com, www.eas-
yjet.com, www.scandinavian.
net, www.statravel.com og www.
searchguide.biz. Á öllum þessum
síðum má finna lág fargjöld sem
koma áhugasömum út í heim fyrir
lítið fé.
Einnig eru á vefnum tvær
hagnýtar leitarvélar sem skanna
heimasíður annarra flugfélaga í
leit að ódýrasta fargjaldinu. Leit-
arvélarnar eru www.dohop.com
og www.mobissimo.com. Dohop er
mun stærri þar sem hún skannar
yfir 600 flugfélög meðan Mobiss-
imo skannar rúmlega hundrað.
Hagstæðasta lausnin er sýnd hvort
sem það er í beinu flugi eða tengi-
flugum. Á Mobissimo er hægt að
bóka flugið gegnum síðuna en á
Dohop opnast vefur viðkomandi
flugfélaga sem selja ferðina.
Alltaf er mælst til þess þegar
fólk kaupir farmiða á vefnum að
kynna sér skilmálana vel og passa
að greiðslukerfið sé öruggt.
Farmiðinn keyptur á netinu
Reglum Icelandair um farangur til
Bandaríkjanna var breytt fyrir jól og
nú mega farþegar á almennu farrými
taka með sér tvær einingar af far-
angri sem hvor um sig
má ekki vera meira
en 23 kíló. Farþegar
á viðskiptafarrými
mega hins vegar
taka með sér tvær
einingar sem hvor
um sig má vera 32
kíló. Um daginn
birtust úreltar upp-
lýsingar hér á ferða-
síðunni um farangur
til og frá Bandaríkjunum.
Reglur um þyngd farangurs sem
hafa má með sér til Evrópu með
bæði Icelandair og Iceland Express
eru hins vegar óbreyttar. Almennt
gildir að farþegar mega hafa með
sér farangur sem samtals má ekki
vega meira en 20 kíló.
Um handfarangur
gilda þær reglur
hjá Icelandair
að farþegar á
almennu farrými
mega taka með
sér sex kíló en
farþegar á við-
skiptafarrými níu
kíló. Hjá Iceland
Express mega
farþegar hafa með
sér tíu kíló í handfarangur.
Reglur eru nokkuð breytilegar
hjá flugfélögum en hægt er að fá
frekar upplýsingar um leyfilega
þyngd og stærð farangurs á flestum
heimasíðum flugfélaga.
Hversu þung er taskan?
ÁÐUR EN HALDIÐ ER UTAN VAKNA OFT UPP SPURNINGAR UM HVERSU MIKINN
FARANGUR MÁ HAFA MEÐ SÉR.
Margir nýta sér lággjaldavefsíður flugfélaga og leitarvélar til að kaupa ódýra farmiða út í
heim.
Eitt af þeim námskeiðum sem í
boði eru núna hjá Sumarferðum
kallast Ný og betri kona og er það
námskeið sem Sumarferðir standa
að í samvinnu við Dale Carnegie.
Námskeiðið verður haldið dagana
16. til 23. febrúar og er ofið saman úr
námskeiðum frá Dale Carnegie um
hreyfingu, næringarfræði og gleði.
Dale Carnegie á Íslandi og Bjargey
Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur
sjá um skipulagða dagskrá alla
dagana. Markmið námskeiðsins
er að efla sjálfstraustið, bæta
hæfni í mannlegum samskiptum,
efla tjáningarhæfileikana, þróa
leiðtogahæfileika, hafa stjórn á
áhyggjum, streitu og kvíða, læra
hnitmiðaða markmiðasetningu og
bæta heilsu.
Ný og betri kona á Kanaríeyjum
SUMARFERÐIR BJÓÐA UPP Á SKEMMTILEG NÁMSKEIÐ SEM HALDIN ERU
Á ERLENDRI GRUND OG ERU UNDIR HEITINU NÝ OG BETRI. ÖLL HAFA
NÁMSKEIÐIN ÞAÐ AÐ MARKMIÐI AÐ BYGGJA UPP LÍKAMA OG SÁL.
Konur, sem hafa áhuga á að efla líkama og sál, fá frí um leið og örlítið dekur, geta
skellt sér á námskeiðið Ný og betri kona, sem Sumarferðir bjóða upp á í samvinnu við
Dale Carnegie.