Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 25
Evrópskir bankaræningjar
Sífellt
harðari
6
Fjárfestingar útlendinga
Takmarkanir ekki
bundnar við fisk
4
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 11. janúar 2006 – 2. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Keops kaupir | Danska fasteigna-
félagið Keops sem er að stórum
hluta til í eigu Baugs Group hefur
keypt 84 fasteignir í Svíþjóð fyrir
22 milljarða króna.
Grænt ljós | Samkeppnisyfirvöld
hafa ekki gert athugasemd við
kaup FL Group á Sterling og telj-
ast kaupin því fullgengin í gegn.
Stoðir kaupa | Fasteignafélagið
Stoðir hefur keypt danska fast-
eignafélagið Atlas Ejendomme og
eignaðist þannig 150 þúsund fer-
metra húsnæði.
Straumhvörf í ÍSB | Hlutur
Straums-Burðaráss í Íslandsbanka
var seldur á 60 milljarða. Þáttur
er nú stærsti hluthafinn með hlut
að verðmæti 54 milljarða.
Fimmta frjálsasta | Ísland er í
fimmta sæti á lista yfir frjálsustu
hagkerfi heims og hækkar um
þrjú sæti milli ára.
100 milljarðar | Actavis hefur
gengið frá 100 milljarða fjármögn-
un sem byggist annars vegar á
sambankaláni og hins vegar á sölu
forgangsréttarhluta-bréfa.
Styrkingu lokið | Krónan mun
leita til baka á árinu og styrking-
arferli hennar er lokið að mati
greiningardeildar Landsbankans.
122.7 milljarðar | 9. janúar var
veltumesti dagur Kauphallarinnar
frá upphafi. Alls námu hlutabréfa-
viðskipti 122,7 milljörðum króna.
Um 68 milljarða viðskipti voru
með bréf Íslandsbanka.
Metár Volkswagen | Volkswagen
bílarisinn seldi á síðasta ári 5,24
milljónir ökutækja og hefur aldrei
selt meira á einu ári.
F R É T T I R V I K U N N A R
Gott til síðasta dropa
Markaðurinn og Sjóvá gangast
á árinu 2006 fyrir átaki á meðal
fyrirtækja til að draga úr slys-
um og tjóni á vinnustöðum og
auka þannig öryggi starfsmanna.
Reglulega verða birtir pistlar í
blaðinu um hvernig fyrirtæki
hafa sýnt gott fordæmi og dregið
úr slysum og tjóni. Tilgangur
átaksins er fyrst og fremst að
vekja athygli á þessum málum
í fyrirtækjum og sýna fram á
mögulegan ávinning fyrirtækja
af meiri forvörnum. Fyrsti pist-
ill Þórs Sigfússonar, forstjóra
Sjóvár, birtist í Markaðnum í
dag. Á eftir munu fylgja pistlar
frá starfsfólki Sjóvár um þennan
mikilvæga málaflokk.
Sjá pistil á blaðsíðu 17
Átak gegn
vinnutjóni
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
FL Group mun hafa leitað hófanna hjá Straumi-
Burðarási fyrir áramót um að Straumur seldi hlut
sinn í Finnair en ekkert varð af því. Eins og greint
hefur verið frá í fjölmiðlum eiga félögin tvö um
sautján prósent hlutabréfa í finnska flugfélaginu,
þar af er hlutur Straums sá næststærsti í félaginu
á eftir finnska ríkinu.
Málefni Finnair munu þó ekki hafa verið til
umræðu um helgina þegar Straumur og kaupendur
Íslandsbankabréfanna réðu saman ráðum sínum
en FL Group keypti einmitt bréf í Íslandsbanka af
Straumi.
Hannes Smárason, forstjóri FL Group, hefur
greint frá því að félagið hafi mikinn hug á að taka
frekari þátt í starfsemi Finnair ef finnska ríkið losi
um hlut sinn. Hlutabréf í Finnair hafa tekið mikinn
kipp upp á við eftir fjárfestingu FL Group og hækk-
að um tæp sautján prósent frá áramótum.
Í samtölum Markaðarins við sérfræðinga á
finnskum hlutabréfamarkaði kom fram að harla
ólíklegt sé að finnska ríkið sleppi hendinni af meiri-
hlutaeign sinni, enda ku ekki vera pólitískur vilji
fyrir því og lítil krafa frá fjármálamarkaðnum um
frekari einkavæðingu félagsins. Ríkið hefur heim-
ild til þess að selja átta af 58,1 prósenta eignarhlut
sínum en ekkert hefur verið ákveðið hvenær eða
hvort af því verði.
Rekstur Finnair er í miklum blóma. Félaginu
hefur tekist vel að skera niður kostnað í rekstr-
inum en síðustu uppgjör hafa öll verið fyrir ofan
væntingar markaðsaðila. Töluverður vöxtur hefur
verið á flugleiðunum til Asíu og hyggst félagið vaxa
frekar á þeim vettvangi. Starfsemi eins af dóttur-
félögunum, lággjaldaflugfélagsins FlyNordic, sem
gerir út frá Svíþjóð, hefur einnig vaxið hratt.
Finnska félagið greindi frá því í gær að það hafi
flutt 8,5 milljónir farþega á síðasta ári sem er mesti
farþegafjöldi í sögu félagins. Er það 4,5 prósenta
aukning á milli ára. Í desember jókst farþegafjöldi
allrar samstæðunnar um þrjú prósent og var sæta-
nýting um 74 prósent.
Burðarás hóf að fjárfesta í Finnair snemma á
síðasta ári og fór yfir tíu prósenta hlut undir lok
árs. Hlutur íslensku félaganna er um fimmtán
milljarðar króna að markaðsvirði.
FL Group vildi kaupa
hlut Straums í Finnair
Finnska ríkið mun ekki láta frá sér meirihlutastöðu. Fimmtán
milljarða fjárfesting Íslendinga.
Intrum Justitia hefur fengið leyfi
sænsks móður-
félags síns til að
hefja starfsemi
í Færeyjum og
hefur Sigurður
Arnar Jónsson,
forstjóri Intrum,
verið á ferð um
eyjarnar undan-
farna daga í leit
að heppilegum
fjárfestingar-
kostum.
KB banki, Landsbankinn,
tu ttugu sparisjóðir og Intrum
Justitia bv eiga hver sinn
fjórðungshlutinn í Intrum Justitia
á Íslandi og segir Sigurður
óvanalegt að félagi sem ekki er
í hundrað prósenta eigu Intrum
Justitia bv sé heimilað að reka
starfsemi undir merkjum Intrum
utan heimamarkaðar. „Rétturinn
var í rauninni í eigu Intrum í
Danmörku en var fenginn okkur.
Þetta verður dótturfélag hins
íslenska Intrum.“
Landsbankinn á tæplega sautj-
án prósenta hlut í Intrum Justitia
bv og situr Sigurjón Árnason
bankastjóri í stjórn félagsins. -jsk
Intrum opnar
í Færeyjum
HÖFUÐSTÖÐVAR
INTRUM VIÐ
LAUGAVEG
Íslandsbanki hefur selt einn
milljarð nýrra hluta í lokuðu
útboði til fagfjárfesta. Bréfin
voru seld á genginu 18,6 og
nemur söluandvirðið því 18,6
milljörðum króna.
Mikill áhugi var fyrir þessu
útboði. Áttatíu fagfjárfestar
óskuðu eftir því að kaupa bréf
fyrir 27 milljarða króna og var
umframeftirspurnin því 56 pró-
sent. Þá miðlaði Íslandsbanki
hlutabréfum í sjálfum sér fyrir
tíu milljarða króna en þetta voru
þeir hlutir sem bankinn keypti
af Straumi.
Hlutafjáraukningin styrkir
bankann fjárhagslega og gefur
honum kost á frekari vexti erlend-
is að sögn Bjarna Ármannssonar,
forstjóra Íslandsbanka.
Stjórn bankans hefur ákveðið
að bjóða hluthöfum upp á að taka
helming arðgreiðslna fyrir síð-
asta ár í formi nýrra hlutabréfa
í bankanum.
Þá hefur Bjarni Ármannsson
keypt bréf fyrir 930 milljónir
að markaðsvirði. Eignarhlutur
Bjarna og tengdra aðila í bank-
anum nemur því tæpum 2,5 millj-
örðum króna. Einnig var tilkynnt
um kaup félaga í eigu stjórnar-
mannanna Karls Wernerssonar
og Róberts Melax. Karl kaup-
ir fyrir þrjá milljarða króna í
gegnum Milestone og er hlutur
félagsins kominn í um fimm pró-
sent af hlutafé bankans. - eþa
Íslandsbanki selur nýtt
hlutafé fyrir 19 milljarða
Bjarni Ármannsson kaupir fyrir 930 milljónir og Karl Wernersson fyrir þrjá
milljarða. Nýtt hlutafé gefur bankanum tækifæri til frekari vaxtar.
Íslenskur bókamarkaður
Stendur styrkum
fótum
12-13