Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 41
MARKAÐURINN Markaðurinn og Sjóvá gangast á árinu 2006 fyrir átaki á meðal fyrirtækja til að draga úr slys- um og tjónum á vinnustöðum og auka þannig öryggi starfsmanna. Hérlendis hafa vinnuslys verið nokkuð tíðari en í nágrannalönd- um okkar og margvísleg önnur tjón einnig. Reglulega verða birt- ir pistlar í blaðinu um hvern- ig fyrirtæki hafa sýnt gott for- dæmi og dregið úr slysum og tjónum. Þá verður sýnt fram á að margvísleg óhöpp og slys á fólki á vinnustöðum má rekja til þess að þjálfun starfsmanna var ábótavant eða eðlilegar forvarnir höfðu ekki verið gerðar. Fyrirtæki læra mest af því að heyra reynslusögur annarra fyr- irtækja, bæði þar sem vel hefur tekist og þar sem betur hefði mátt standa að málum. Tilgangur átaksins er fyrst og fremst að vekja athygli á þessum málum í fyrirtækjum og sýna fram á mögulegan ávinning fyrirtækja af meiri forvörnum. Mörg dæmi má taka um fyr- irtæki sem hafa sinnt sínum for- varnarmálum af mikilli prýði og uppskorið ríkulega. Þannig var til að mynda með málningarverk- smiðjuna Hörpu. Þegar eldur kom upp í nýrri verksmiðju fyr- irtækisins á Ártúnshöfða fyrir fáeinum árum kom í ljós hversu góðar eldvarnir fyrirtækisins reyndust ábatasamar fyrir það. Fyrirtækinu hafði verið skipt upp í eldhólf og brunavörnum verið fylgt í hvívetna og þess vegna náðist að afmarka eldinn við einungis einn hluta bygging- arinnar. Það þýddi síðan að fyrir- tækið gat áfram þjónað flestum viðskiptavinum sínum fljótlega eftir brunann. Þegar starfsmenn tileinka sér öryggi á vinnustað, minnkar það líkur á slysum og skemmdum á munum fyrirtækisins sem eykur síðan framleiðni. Þá hefur komið í ljós að starfsmenn sem tileinka sér öryggi á vinnustað eru lík- legri til að yfirfæra það á frítím- ann. Loks hefur fyrirtæki sem helgar sig forvörnum jákvæðari ímynd á markaði. Við þurfum að losna við vissa helgislepju sem hvílir á forvörn- um hérlendis. Fyrirtæki eiga að taka mun meira frumkvæði í þessum efnum og gera forvarnir að eðlilegum þætti í sinni dag- legu starfsemi. Með því getum við einnig dregið úr umfangi opinberrar eftirlitsstarfsemi. Við eigum að geta tekið upp vissa gæðavottun í öryggis- og for- varnamálum og séð um þessi mál meira sjálf. Þór Sigfússon, forstjóri Ö R U G G F Y R I R T Æ K I S P Á K A U P M A Ð U R 17MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 S K O Ð U N Helgislepju af forvörnum fyrirtækja! Þegar starfsmenn tileinka sér öryggi á vinnustað, minnkar það líkur á slysum og skemmdum á munum fyrirtækisins sem eykur síðan framleiðni... Loks hefur fyrirtæki sem helg- ar sig forvörnum jákvæðari ímynd á markaði. Ég vona að ekki hafi nokkrum lifandi manni dottið í hug að hlusta á mig þegar ég fór að fabúlera um að maður ætti að minnka stöðuna á markaðnum. Ég bara skil ekki hvað kom yfir mig, enda fór ég ekki að eigin ráðum sem betur fer. Sala Straums á bréfunum í Íslandsbanka hefur aldeilis hleypt lífi í þetta allt saman á ný. Ég fresta því öllum áætlunum mínum um að draga úr fjárfestingum á innlendum hlutabréfamarkaði og hana nú. Þetta er bara svo einfalt. Enginn þessara stóru mun tíma að leyfa markaðnum að lækka svo nokkru nemi. Íslandsbanki fer á fullt með Karli Werners og Baugi, meiri kraftur fer í allt hjá bankanum. Þetta var bara fyrsta skrefið í stærri fléttu. Jón Ásgeir á eftir að auka hlut sinn í bankanum þegar fram líða stundir. Mér finnst það dáldið fyndið í ljósi þess að hér gekk maður undir manns hönd til að koma í veg fyrir að hann eignaðist hlut í nokkrum fyrirtækjum. Tryggingamiðstöðinni, Íslands- banka og Flugleiðum. Hvar er hann nú? Sjóvá, Íslandsbanka og FL Group. Svona eru örlögin oft gráglettin og ekki skrýtið að Styrmir sendi SOS-skeyti í leiðurum til hins ónefnda og þessara þriggja sem eftir eru sama sinnis. Ég spái því að Karl Werners kaupi hlut í FL Group og Baugur meira í Þætti. Svo spái ég því að Ólafur Ólafsson eigi eftir að kaupa einhverjar eignir af FL Group, sennilega fraktflugið. Ég held að farþegaflugið sé ekki til sölu. Hannes ætlar að fara með það módel miklu lengra. Hann hættir ekki fyrr en hann er með stærsta flugfélag í Evrópu í höndunum, og hættir þá sennilega ekki heldur. Straumur er líka búinn að gera góðan díl. Innleysa helling á sölunni í Íslandsbanka og óskráðu eignunum til Baugs. Straumur getur því farið á fullt í erlend verkefni með Björgólfi Thor. Svo eiga Bjöggarnir það alltaf uppi í erminni að slá saman Landsbankanum og Straumi. Ég spái því fyrir páska eða um páskana, því þeir nota gjarnan langar helgar til að klára slík viðskipti. Það verður alla vega engin lognmolla á næstunni og þegar hann blæs, fer ég út með flug- drekann minn og græði á tá og fingri. Spákaupmaðurinn á horninu. Draumur að hafa Straum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.