Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 45
MARKAÐURINN 21MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006
Við sækjum! S. 520 2220 www.efnamottakan.is
Spillum ekki framtíðinni
Við eyðum
trúnaðargögnum
Efnamóttakan býður fyrirtækjum upp
á sérhæfða og umhverfisvæna þjónustu.
Rík áhersla er lögð á fullkomið öryggi
og trúnað. Efnamóttakan í Gufunesi
er opin virka daga frá 7.30 – 16.15.
Einkamál
Dæmi:
Trúna›arskjöl
Filmur
Tölvugögn
M
IX
A
•
fí
t
•
51
00
2
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
„Ég held af ýmsum ástæðum
að nú sé ágætur tími til
framkvæmdastjóraskipta hjá
SA, bæði fyrir mig og samtökin.
Ég hef haft ómælda ánægju
af þessu starfi og vil að lokum
þakka öllum aðildarfyrirtækjum
samtakanna fyrir að hafa
fengið tækifæri til að vinna að
málefnum íslensks atvinnulífs
á þessum skemmtilegu upp-
gangs og umbrotatímum,“
segir Ari Edwald, fráfarandi
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, í fréttabréfi
samtakanna. Tekur hann við
forstjórastarfi hjá 356 miðlum,
sem gefa meðal annars út
Markaðinn, í byrjun febrúar.
Ari segir eitt mikilvægasta, ef
ekki lang mikilvægasta, verkefni
samtaka á borð við SA, sé að
stuðla að vinnufriði, í samvinnu
við aðra aðila á vinnumarkaðnum
og stjórnvöld. Á því sviði hafi vel
farnast á undanförnum árum.
Kjarasamningar sem SA eigi
aðild að núna hafi gildistíma út
árið 2007 eða lengur, en séu háðir
forsendu um verðbólguþróun.
„Það hefur reyndar verið
bjargföst trú okkar sem störfum
fyrir SA, að æðsta markmið
samtakanna sé að bæta lífskjör
á Íslandi. Auk aðkomu að
kjaramálum kemur það fyrst og
fremst fram í tillöguflutningi
samtakanna um umbætur á
ýmsum sviðum þjóðlífsins, sem
er ætlað að hafa jákvæð áhrif á
samkeppnisstöðu Íslands, auka
verðmætasköpun, framleiðni
og samkeppni, en vinna gegn
óhagkvæmni,“ segir Ari Edwald
í kveðjupistli sínum.
KVEÐUR SAMTÖK ATVINNULÍFSINS
Ari Edwald ritar kveðjupistil í fréttablað
Samtaka atvinnulífsins, en hann mun taka
við forstjórastarfi hjá 365 miðlum í febrúar.
Ágætur tími til að skipta
um framkvæmdastjóra SA Flutningar Geest
og Samskipa á milli
Rotterdam og hafna
við Óslóarfjörðinn
hafa þrefaldast á síð-
ustu tveimur árum.
Hefur Geest, dótturfé-
lag Samskipa, fjölgað
ferðum þarna á milli
með því að gera sam-
starfssamning við Lys
Line.
Í fréttatilkynningu
kemur fram að frá ára-
mótum hafa tvö 750
gámaeininga skip, Lys-
Box og Lys-Point, ann-
ast siglingar tvisvar í
viku milli Rotterdam
og fjögurra hafna við
Óslóarfjörð, Óslóar,
Moss, Brevík og
Kristiansand, auk þess
sem hvort skipið hefur
viðkomu einu sinni
í viku í Fredrikstad
og Larvík. Jafnframt
mun annað skipanna
hafa viðkomu vikulega
í Hamborg, á leið frá
Noregi til Rotterdam.
Haft er eftir Gerard
de Groot, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs Geest, að Samskip voru með sterka
stöðu á þessum markaði og munu styrkja stöðu sína enn frekar með
þessum samningi. Hann sé jafnframt sannfærður um að markað-
ur sé fyrir aukna gámaflutninga milli Rotterdam og Noregs. Frá
Rotterdam geti Geest boðið upp á flutninga um alla Evrópu, hvort
sem er með lestum, fljótaprömmum, vöruflutningabílum eða skip-
um Geest.
GERARD DE GROOT,
FRAMKVÆMDASTJÓRI MARKAÐSSVIÐS GEEST
Samskip fjölgar
ferðum til Noregs
Strax Holdings hefur keypt allt hlutafé í more...
Mobilfunkzubehor GmbH og dótturfélagi þess,
more... International Ltd. Eftir kaupin starfar
Strax í tíu löndum í þremur heimsálfum við ýmsa
þjónustu sem tengist aukahlutum fyrir farsíma,
svo sem dreifingu, pökkun, rekstur vefsíðna, vöru-
þróun, birgðastýringu og fleira fyrir farsímafélög
jafnt sem smásala.
Strax tók við rekstri more... þann 1. janúar
2006 og kemur félagið inn í rekstur Strax frá og
með þeim degi. Samanlögð velta Strax og more...
var samkvæmt fréttatilkynningu um 200 milljónir
dollara á árinu 2005 og hagnaður fyrir fjármagns-
liði og skatta um 3,5 prósent af veltu. Eru það
tæpar 430 milljónir íslenskra króna miðað við
gengi dollars í gær. Kaupin voru fjármögnuð með
nýju hlutafé í Strax og lántöku og er kaupverðið
trúnaðarmál.
Strax keypti more... Mobilfunkzubehör GmbH
Hátúni 10c • S: 562-8500 • Fax: 552-8819 • www.mulalundur.is
Mikið úrval
Dagbóka Tilboðsmöppur
TILBO
Ð!
Bic Atlantispennar
1.080kr. pk.
Skrifborðs
Mottur
634.-kr
339kr. pr.stk.
DAGAT
ALI!Með
Milliblöð
TILBO
Ð!