Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 48
VISA húsið Laugavegi 77 Við erum flutt Höfum opnað í VISA húsinu Laugavegi 77 Gleðilegt ár Starfsfólk VISA VISA Ísland - Greiðslumiðlun hf. VISA húsinu, Laugavegi 77 101 Reykjavík sími 525 2000 www.visa.is 80 1667 60milljarða króna sambankalán Actavis, það hæsta sem íslensku fyrirtæki hefur verið veitt. lestir var heildarafli íslenskra skipa árið 2005. milljarða virði hlutar Straums-Burðaráss í Íslandsbanka sem seldur var á laugardag. SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Betri söngvari en Ármann Veisluhöld Ármanns Þorvalds- sonar, forstjóra KB banka í Bretlandi, gerast því glæsilegri eftir því sem vegur hans vex. Hann hefur gjarnan boðið vinum og viðskiptamönnum sínum til áramótaveislu í Lundúnum og þykja það góð partí. Veislan í ár sló fyrri met, haldin í glæsisal húsakynna Náttúrugripasafnsins við ánna Thames. Ármann er þekktur gleðimaður og þegar sá gállinn er á honum kveður hann við raust og fer þá gjarnan í fótspor, eða leðurbuxur væri kannski meira viðeigandi, Tom Jones og syngur fyrir vini sína slagarann góða Delilah. Nú brá svo við að Ármann kynnti til sögunnar mann sem hann taldi að myndi sennilega syngja þenn- an slagara betur en hann sjálfur. Kappinn reyndist auðvitað sjálf- ur Tom Jones, en ekki fylgir sög- unni hvort stórmenni íslensks viðskiptalífs fóru úr nærbux- unum og grýttu upp á svið eins og títt mun á tónleikum velska stórstirnisins. Meira bankafínerí Landsbankinn lætur heldur ekki sitt eftir liggja þegar fíneríið er annars vegar. Veislur bank- ans hafa þótt afar vel heppn- aðar og menn kunnað að gera sér glaðan dag í hópi viðskipta- manna og velunnara. Bankinn mun aukinheldur vera að koma sér upp aðstöðu fyrir innilegri samkomur þar sem færri koma saman til að ráða ráðum sínum. Enda munu ráð betri eftir því sem færri koma saman. Bankinn hefur því ráðist í innréttingu huggulegrar koníaksstofu í bankanum, þar sem djúpir stól- ar og dökkar innréttingar eru rammi fyrir fámenna fundi vætta dýrum veigum. Ekki er að efa að í slíku umhverfi munu menn lenda góðum samningum fyrir bankann. Sneið til Moggans Greiningardeild KB banka lauk pistli sínum um eignabreytingar í Íslandsbanka með þessum orðum: „Eftir stórviðskipti dagsins má velta því fyrir sér hvort komið gæti til kasta Yfirtökunefndar að kanna fullyrðingar fjölmiðla um að aðilar sem eiga meira en 40% eigi með sér samstarf um stjórnun bankans.“ Þykjast menn þar greina háðska sneið til leiðarahöfundar Morgunblaðsins sem taldi FL Group utan hóps og Karl Wernersson, Einar Sveinsson og Jón Snorrason hefðu með sér bandalag um meirihluta í bankaráðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.