Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 62
11. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
útskrifaðist af vöruhönnunarbraut
Listaháskóla Íslands síðastliðið
vor. Hún sendi inn þrjár línur
í keppnina og hafnaði í fyrsta
sætið. Hún gerði dömu-, herra- og
barnalínu og munu þær líklega
allar verða framleiddar. Eftir
útskrift hefur Sunna Dögg unnið
sjálfstætt, hannað föt og selt í
versluninni Triloginu ásamt því
að aðstoða við búningahönnun í
sjónvarpsþættinum Stelpunum
á Stöð 2. Aðspurð um hönnunina
segir Sunna Dögg hana vera í
ætt við hennar eigin karakter.
,,Ég lagði áherslu á að fötin væru
klæðileg og einföld en jafnframt
þægileg. Þetta eiga að vera föt
sem henta öllum burt séð frá
hæð eða breidd. Í dömulínunni
eru nokkrar týpur af peysum,
síðar hettupeysur og síðir bolir.
Mér finnst svo pirrandi hvað er
Vinningar verða afhentir hjá SonyCenter Kringlunni. Rvk. Með
því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið.
Viltu það
besta?
Taktu þátt!
Sendu SMS skeytið
BTC VSS á númerið 1900
12. hver vinnur
Stafrænar
myndavélar
Stafrænar
tökuvélar
Heimabíó
PSP
leikjatölva
PS2
leikjatölva
Coke
kippa
Coke
kippa
MP3 spilari
Gjafabréf
á Tónlist.is
Aðalvinningu
r
30" Sony LC
D sjónvarp
KLV30HR3S
Sony Heim
abíó
DAV-DZ500
GSM símar
ÖLLUM SEM TAKA ÞÁTT VERÐUR BOÐIÐ Á
SÉRSTAKA FORÚTSÖLU HJÁ SONY CENTER KRINGLUNNI
Og margt
fleira
Fullt af aukavinningum
SÍÐ OG NOTALEG hettupeysa frá Sunnu Dögg.
Frumleg og fersk hönnun
Verslunin Hagkaup efndi til hönnunarkeppni á haustdögum og voru úrslit úr
henni kunn síðastliðinn laugardag. Í fyrsta sæti varð Sunna Dögg Ásgeirsdóttir,
Helga Ólafsdóttir hafnaði í öðru sæti og Þórunn og Sveinbjörg Jónsdætur urðu
í þriðja sæti. Markmiðið með keppninni er að styðja við bakið á íslenskum
hönnuðum og gera þeim kleift að koma vörum sínum á framfæri. Afraksturinn
mun svo koma í verslanir Hagkaupa í september á þessu ári.
Helga Ólafsdóttir hafnaði í öðru
sæti í hönnunarkeppni Hagkaupa.
Línan sem hún hannaði er ætluð
börnum frá 2-5 ára og er litagleð-
in allsráðandi. Helga starfaði hjá
Nikita en býr nú í Bandaríkjunum
og er í fæðingarorlofi sem stend-
ur. Ameríkudvölin hefur svo góð
áhrif á hana að hún sefur varla
fyrir hugmyndum.
„Síðan ég eignaðist mitt fyrsta
barn fyrir rúmum þremur árum
hefur mig alltaf langað til að
hanna barnaföt. Þegar Hagkaup
auglýsti keppnina ákvað ég að
setjast niður og vinna úr þessum
hugmyndum,“ segir Helga.
Hressir og skærir litir einkenna
fatalínuna. Það er svo sem ekkert
skrítið því Helga hefur alltaf
verið litaglöð. „Ég er orðin svo
þreytt á því að kaupa alltaf bleikt
á stelpuna mína. Fyrir tveimur
mánuðum eignaðist ég strák og
það er varla hægt að fá annað en
ljósblátt á hann. Það veitir ekkert
af litum í skammdeginu og ég vil
hafa nóg af þeim í kringum mig.
Í barnalínunni eru föt
fyrir bæði kynin og leitaði ég
til vinkvenna minna, sýndi
þeim hugmyndirnar mínar og
litasamsetningar. Það hjálpaði
mér að fá þeirra álit.“ Helga segir
jafnframt að það skipti miklu máli
að barnaföt séu þægileg og líka
skemmtileg. „Þessvegna lagði
ég áherslu á lífleg smáatriði eins
og að setja kanínueyru á stelpu-
hettupeysuna og geimverueyru
á stráka-hettupeysuna. Efnin
og litirnir eru valin með það í
huga að flíkurnar þurfi oft að
þvo og megi alls ekki lita,“ segir
hún. Þar sem hún starfaði við
vöruþróun hjá Nikita þekkir
hún framleiðsluferlið vel sem er
mikilvægt þegar verið er að hanna
flíkur sem á að fjöldaframleiða.
„Ég mun svo fara yfir
„prótóÞtýpurnar“ með Hag-
kaupum og verð þeim innan
handar þegar framleiðsluferlið
fer á stað. Ég verð að fá að hrósa
Hagkaup fyrir þetta framtak. Mér
finnst það virkilega virðingarvert
að þeir séu að gera þetta, það er
ekki mikið gert til að styrkja
íslenska hönnuði. Þetta er ung
og brothætt grein á Íslandi og
margir sem skilja ekki út á hvað
þetta gengur allt.“
HELGA NOTAR LITRÍK EFNI í hönnun sína og blandar þeim saman á skemmtilegan hátt.
Sefur varla fyrir góðum hugmyndum
Innblástur frá New York og Japan