Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 54
16. janúar 2006 MÁNUDAGUR36
*Nema af stjörnumerktum vörum
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
25/11-
1/12
167
30/12-
5/1
108
2/12-
8/12
141
9/12-
15/12
136
16/12-
22/12
185
23/12-
29/12
104
,,Burt séð frá peningum og slíku
þá er draumahúsið mitt mjög
dýrt,“ segir Bjarni Arason eftir
smá umhugsun. ,,Ég veit ekki
hvernig ég á að lýsa því. Þetta er
risastórt einbýlishús með öllu, risa
bílskúr, risa sundlaug og svo fram-
vegis. Þar er nóg af herbergjum
fyrir gestina og pláss fyrir fimm
bíla.“ Bjarni viðurkennir að húsið
minni nokkuð á ameríska draum-
inn. ,,Húsið ætti að vera staðsett
á einhverjum góðum og flottum
stað í Kaliforníu, helst í hlíð með
góðu útsýni. Þar á að vera heitt og
ströndin ekki langt undan.“
Draumahúsið er hannað af
einhverjum góðum arkitekt og
umgjörðin hin glæsilegasta. ,,Það
á að vera gosbrunnur og allur
pakkinn. Allt væri hvítt á lit-
inn, mjög stílhreint og granít og
marmari í hólf og gólf.“
Þó flest eigi að vera stórt þarf
garðurinn ekki endilega að vera
það. ,,Það er sosum allt í lagi
þegar maður er kominn með fólk í
vinnu við að þrífa og sjá um garð-
inn, þá má garðurinn alveg vera
sæmilega stór, ekki spurning.“
Bjarni var sjálfur að kaupa sér
hús nýlega, þó það sé eilítið minna
og staðsett hér á klakanum. ,,Nú
finnst manni ekkert varið í húsið
sitt,“ segir hann en bætir því við
að það sé nú samt það næstbesta.
DRAUMAHÚSIÐ BJARNI ARASON
Gosbrunnur og granít
Draumahúsið hans Bjarna væri risastórt og
staðsett í Kaliforníu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Verktakafyrirtækið Eykt vill fá
land til að byggja húsnæði fyrir
15 þúsund manns í Vogum.
Fyrirtækið hefur nú þegar átt tvo
fundi með sveitarfélaginu en að
sögn fulltrúa frá bæði Eykt og bæj-
arstjórn er málið enn á frumstigi.
Óskir Eyktar eru fyrst og fremst
um það að í aðalskipulagi fyrir
sveitarfélagið Voga sé gert ráð
fyrir íbúðabyggð á þessum stað.
Verði af framkvæmdunum er
ljóst að um er að ræða gríðarmikl-
ar framkvæmdir sem munu allt
að því tvöfalda íbúatölu Reykja-
nesbúa. Byggt yrði bæði á landi
Voga og Hafnarfjarðar, allt frá
Straumsvík og með ströndinni í
Hvassahrauni að núverandi sum-
arhúsabyggð við mislæg gatnamót
í Hvassahrauni.
Ef samningar nást er búist við
að Eykt þurfi um þrjú til fjögur ár
í undirbúning. (www.vf.is)
Eykt vill byggja
í Vogum
Ef fyrirhugaðar framkvæmdir verða að
veruleika mun íbúafjöldi Voga tíu- til
fimmtánfaldast.
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar