Tíminn - 17.06.1977, Page 6
6
Föstudagur 17. júni 1977
A AÐALFUNDI Sambands
Islenzkra sam vinnufélaga,
sem haldinn var I vikunni,
rikti sérstök ánægja með af-
stöðu þá, sem stjörn Sam-
bandsins tók til kjara- og
vinnumáia þeirra, sem nú
eru efst á baugi. Voru sam-
vinnumenn á einu máli um
það, að þar hefði verið vel og
réttiátlega að málum staðið.
t ræðu, sem Eysteinn Jóns-
son, formaöur stjórnar StS,
flutti á fundinum, vék hann
að þessum málum. Birtist
hér sá kafli ræðu hans.
„Hér er ástæða til aö víkja
nokkuö að kjarasamningum
þeim, sem nú standa yfir og af-
skiptum Sambandsstjórnar af
þeim.
Sambandsstjórn var ljóst að
kjaramálin voru komin I erfiöan
hnút. Kaupgjald þeirra lægst
launuðu orðiö óhæfilega lágt
miöað viö dýrtíö, en svigrúm til
almennra kauphækkana án
hættulegra veröbólguáhrifa
ekki mikið.
Vinnumálasamband sam-
vinnuféiaganna fer með kjara-
mál fyrir Sambandiö og tugi
annarra fyrirtækja. Eigi að sið-
ur taldi Sambandsstjórn eölilegt
að móta og gera heyrum kunna
stefnu sina I þessum mikla
vanda og þá meö það fyrir aug-
um að vinna samkvæmt þvi inn-
an Vinnumálasambandsins og
hafa áhrif á lausnina.
Efnislega var stefnan mótuö
þannig I ályktun 5, mai, aö leiö-
rétta beri kjör þeirra, sem lægst
hafa laun I landinu og þvi lögö á-
herzla á, að það svigrúm, sem
fyrir hendi væri til almennra
kauphækkana veröi notað fyrst
og fremst til þess. Jafnframt
sterklega varaö við þvi að
ganga um of til móts við sér-
kröfur annarra, sem leiöa hlyti
til hrikalegrar veröbólgu. Meö
þessu taldi Sambandsstjórnin
sig styðja yfirlýsta jafnlauna-
stefnu Alþýöusambandsins I
kjarasamningunum.
Unnið hefur veriö i þessa átt
innan Vinnumálasambandsins
og fer vel á því að nefna nokkur
atriði hér, sem sýna nokkuö
hvernig reynt hefur veriö aö
þoka málum I þessa átt og hafa
með þvl heillavænleg áhrif á
samningana.
Stefnumörkun
stjórnar S.I.S. í
vinnumálu num
bar verulegan
árangur
Kafli úr ræðu
Eysteins Jónssonar
á aðalfundi S.Í.S.
Vinnumálasambandiö hafði
áhrif á það, aö I fyrsta kaup-
hækkunarboöi atvinnurekenda
var gert ráð fyrir fastri krónu-
töluhækkun á kaup en ekki
prósentuhækkun. Þar meö var
strax snúiö inn á rétta braut.
Fulltrúar samninganefndar
verkalýössamtakanna áttu fund
meö fulltrúum Sambands-
stjórnar þann 11. mal, þar sem
báöir skýröu viðhorf sln. Var
þaö mjög gagnlegur fundur og
skýrðist margt, sem ástæöa var
til að gera grein fyrir.
Þann 14. mal lagöi Vinnu-
málasambandið til sáttanefnd-
ar hugmyndir slnar um lausn
kjarasamninganna sem trúnaö-
armál. Var ætlunin að hjálpa til
að koma hreyfingu á málið I
rétta átt. Var þar gert ráð fyrir
meiri kauphækkunum en áöur
og með jafnri krónutölu upp úr
en ekki prósentuhækkun, og
gerö tillaga um fulla verðlags-
uppbót að vissu marki en jafna
krónutölu úr þvl, og þannig
breytt til frá 1. boöi atvinnurek-
enda, og I þá átt sem Alþýðu-
sambandsmenn lögðu áherzlu
á.
Þann 17. mal lagöi sátta-
nefndin fram umræöugrundvöll
sinn, sem alþekktur er. Daginn
eftir lýsti Vinnumálasambandiö
yfir þvl, að þaö gæti á hann fall-
izt sem sáttagrundvöll meö
vissum fyrirvörum um vlsitölu
og sérkröfur og stuðnings rlkis-
valds. Var hér fyrst og fremst
enn á ný stuðningur viö þá
stefnu, sem var kjarninn I til-
lögu sáttanefndar, að kaup
þeirra lægst launuðu hækkaði
mest og að kauphækkunin og
verölagsuppbótin hlypi ekki upp
eftir öllum launastiganum.
Fullyröi ég aö stefnuyfirlýs-
ing Sambandsstjórnar og áhrif
Sambandsins á gang málsins
hafa oröiö heillavænleg og mik-
ill ávinningur fyrir jafnlauna-
stefnuna. Er þaö nú einlæg von
manna að skammt sé aö biöa
þess að samningar takist um
kjaramálin.
Þaö veröur aö vera öllum
ljóst, að samvinnuhreyfingin
getur ekki ein ráöið kjaramál-
um, til þess eru þau oröin allt of
þétt riöin inn I net annarra þjóð-
mála og kjarahnútar eins og
þeir, sem hér er viö aö fást
verða ekki leystir nema meö
sameiginlegu átaki rfkisvalds
og aðila vinnumarkaöarins. A
hinn bóginn er meö réttu hægt
aö ætlast til þess aö Sambandiö
og Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna móti slna stefnu
um lausn kjaramála og vinnu-
aöferöir og reyni aö hafa þau á-
hrif, sem unnt er. Þaö vildi
Sambandsstjórn reyna og ég tel
aö árangur hafi oröiö verulegur
I þá átt, sem hún vildi stefna og
ályktaöi um.
Réttmætt er aö geta þess aö
reynt hefur veriö aö hafa áhrif I
þá átt aö framlag rlkisins til
lausnar kjaramálanna yröi
lækkun verölags á brýnum
nauösynjum og kæmi þess hátt-
ar verðlækkunarráöstafanir til
hagsbóta fyrir allan almenning.
Ennfremur aö vextir yrðu
lækkaöir og álögur á iðnfyrir-
tæki lagfæröar til þess aö vega á
móti mjög miklum kostnaöar-
auka, sem viö blasir framund-
Aður en ég skil við kjaramálin
leyfi ég mér aö lesa hér orörétt
niðurlag stefnuyfirlýsingar
Sambandsstjórnar um kjara-
málin frá 5. mal, þaö er þannig:
„Stjórn Sambandsins telur
nauösynlegt, aö unniö veröi aö
þvi aö auka kaupmátt dag-
vinnutekna I átt viö þaö, sem
gerist I nágrannalöndunum og
draga þannig úr hinum langa
vinnudegi, sem Islenzkir laun-
þegar verða nú aö leggja á sig.
Þessu markmiöi veröur þvl aö-
eins náö, aö framleiöni og af-
kastageta atvinnuveganna
veröi stórlega aukin og ytri
skilyröi atvinnurekstrarins bætt
til samræmis viö þaö sem á sér
staö I nágrannalöndunum.
Stjórn Sambandsins telur aö
þessu marki veröi aöeins náö
meö viötæku og samstilltu átaki
atvinnurekenda, launþegasam-
taka og rlkisvalds. Stjórn Sam-
bandsins lýsir sig reiöubúna til
samstarfs um þessi mál viö viö-
komandi aöila”.
Hér er gripiö á verkefni, sem
vinna þarf, hvernig sem til tekst
meö lausn kjaramálanna nú I
þessari umferö. Þaö et eitthvaö
verulegt að hjá okkur og tals-
vert skortir áreiöanlega á aö
nógu margir sjái og viöurkenni
sameiginlega hvaö þaö er. Þó er
þaö grundvöllurinn. Enginn
leysir þann vanda, sem hann
ekki sér nógu greinilega. Mér
þótti vænt um aö á þeim fundi,
sem viö áttum meö fulltrúum
ASl þ. 11. mai tók formaöur Al-
þýöusambandsins þaö sérstak-
lega fram, aö þetta væri verk-
efni, sem vinna þyrfti aö, hvern-
ig sem til tækist um lausn kjara-
málanna I yfirstandandi samn-
ingum. Þessi mál þarf aö brjóta
til mergjar, einmitt í hléum
milli samninga. Ættu sam-
vinnumenn aö eiga hér myndar-
legan hlut að máli”.
Barnavinafélagið Sumargjöf
l'oniliat;a S. — Simi 27277
Fulltrúastarf
Óskum að ráöa fulltrúa til starfa á innritunardeild.
Menntun og starfsreynsla á félags- eöa uppeldissviöi æski-
leg. Umsóknarfrestur er til 1. júll. Framkvæmdastjóri
veitirnánariupplýsingar. Umsóknareyöublöö fást á skrif-
stofu Sumargjafar.
Stjórnin.
Bændur — Athugið
STEWART FÓÐURSALT
Trygging gegn steinefnaskorti. Fyrirliggjandi hjá:
Samband isi. samvinnufélaga
Kaupíélögin
UM AI.1T 1AND INNFLUTNINGSDEILD
17. jum a
Egilsstöðum
F.l. Reykjavík.— Sautjánda júni
hátlöahöldin á Egilsstööum veröa
meö fjölbreyttum hætti og er þaö
skátafélagiö Ásbúar, sem aö
þeim stendur. Kl. 13:00 veröur
safnazt saman viö Búnaöarbank-
ann og gengiö I skrúögöngu aö
hátiöarsvæði. Hefst dagskráin
meö fánahyllingu og helgistund.
Einnig verbur danssýning og
söngur. Hátiöarræöu flytur
Siguröur Blöndal skógræktar-
stjóri.
A skemmtidagskrá, sem hefst
kl. 15:30, veröa m.a. sýndir tán-
ingadansar, Anna Káradóttir og
Páll Halldórsson sýna rokk,
töfrabrögö verða framin og Llna
langsokkur og Mikki refur koma I
heimsókn.
Dansleikur veröur um kvöldiö
og er þaö hljómsveitin Straumrof,
sem leikur fyrir dansi.
Tíl leigu — Vanur maöur
Simar 75143 — 32101
Vtir sf.
Hestamannafélagið
Dreyri
heldur árlegar kappreiðar sinar að
Ölver, sunnudaginn 26. júni, kl. 14.00.
Skráningarsimar eru 1485 og 1517 Akra-
nesi. Góðhestadómar hefjast kl. 20 á
laugardagskvöld 25. júni.
Stjórnin.
Framkvæmdastjóri
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga aug-
lýsa hér með lausa stöðu framkvæmda-
stjóra samtakanna.
Umsóknir um stöðuna þurfa að hafa borist
skrifstofu samtakanna, Austurvegi 22,
Selfossi, fyrir 30. júni nk.
*«
i ■> • *
Kóp^9ÍÞRÓTTA-
\ ahugafolk
bóov
1
• ■ • . •
1 *
Höfum opnað sportvöruverzlun að Hamraborg 10
Við póstsendum
um land allt
v <
% -.»
■m m * ♦. . * m *
m* •«* ••• *• m m • ‘+m*
IÞRÓTTAVORUR
í MIKLU ÚRVALI
SI*CI?TI3CRG
Hamraborg 10-Sími 4-45-77
* 9
« * * m 4* <