Fréttablaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 6
6 21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Innbrot í Þingholtum Brotist var inn
í verslun í Þingholtunum í gærmorgun.
Þjófavarnakerfi fór af stað og virðist
þjófunum hafa brugðið við það og haft
sig á brott án þess að ræna neinu.
LÖGREGLUFRÉTT
KJÖRKASSINN
Á að leyfa áfengisauglýsingar?
Já 61%
Nei 39%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að endurtaka útboð lóða í
Úlfarsárdal?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
KJARAMÁL Forsvarsmenn Jarðvéla
ehf. stóðu í þeirri trú að kennitalan
sem Irenusz Gluchowski hafði aflað
sér frá Hagstofu Íslands væri nóg til
að gera hann fullgildan á íslenskum
vinnumarkaði.
Pólverjinn Irenusz Gluchowski
hefur verið í fréttum að undanförnu
vegna afleiðinga sýkingar sem hann
hlaut um mitt síðasta ár. Hann missti
báða fætur fyrir neðan hné vegna
sýkingarinnar auk þess sem annað
nýra hans var fjarlægt. Þá hefur
Irenusz misst heyrn á öðru eyra.
Forsvarsmenn Jarðvéla viður-
kenna að mistök voru gerð við
ráðningu hans og að ganga hefði
átt eftir staðfestingu á atvinnuleyfi
frá Vinnumálastofnun. Þetta kemur
fram í greinargerð sem fyrirtækið
sendi Fréttablaðinu.
Irenusz hefur nú verið til með-
ferðar á Landspítalanum vel á átt-
unda mánuð og þarf enn að fara í
blóðskipti þrisvar sinnum á dag.
Vegna þess að atvinnuleyfi var ekki
til staðar er hann réttlaus og getur
ekki vænst neinna bóta hérlendis.
Stéttarfélagið Efling styður Irenusz
í baráttu sinni, meðal annars með
lögfræðilegri aðstoð.
Þær upplýsingar fengust hjá
Útlendingastofnun, um ráðningu
erlendra manna sem óska þess að
vinna hér á landi, að það væri alfarið
á ábyrgð atvinnurekandans að sækja
um tilskilin leyfi. „Kennitala hefur
ekkert með atvinnuleyfi að gera og
atvinnurekanda ber að sjálfsögðu
skylda til að kynna sér þær reglur
sem gilda um atvinnu útlendinga,“
segir Ragnheiður Böðvarsdóttir,
forstöðumaður stofnunarinnar. Giss-
ur Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunnar, segir að málinu verði
vísað til lögreglu til rannsóknar.
Lögreglan ákveði hvort ákært verði.
Efnt var til söfnunar fyrir Iren-
usz af starfsfólki Landspítalans til
að eiginkona hans gæti komið til
landsins. Þetta var gert á meðan
Irenusz var sem veikastur og honum
ekki hugað líf. Framkvæmdastjóri
Jarðvéla lagði söfnunni lið með 100
þúsund króna framlagi. Rauði kross
Íslands styrkti Irenusz einnig með
því að greiða ferðakostnað og uppi-
hald sonar hans.
Forsvarsmenn Jarðvéla telja
mikilvægt að kannað verði til hlít-
ar hvort ástand hans megi á ein-
hvern hátt rekja til starfa hans hjá
fyrirtækinu og leggja áherslu á við
Vinnueftirlit ríkisins að málið verði
rannsakað. svavar@frettabladid.is
Máli Pólverjans vís-
að til lögreglunnar
Forsvarsmenn Jarðvéla töldu að kennitala væri jafngildi atvinnuleyfis en
viðurkenna að það hafi verið mistök. Útlendingastofnun segir að þeir hafi átt
að vita betur. Vinnumálastofnun vísar málinu til lögreglu.
MANNLEGUR HARMLEIKUR Irenusz Gluchowski glímir við mikla erfiðleika. Össur hf. færði
honum gervifætur nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
INDLAND, AP Indverskir heilbrigð-
isstarfsmenn gengu hús úr húsi í
gær í leit að fólki sem gæti hafa
smitast af H5N1-veirustofni
fuglaflensunnar, en staðfest var á
laugardag að stofninn mannskæði
hefði fundist í landinu.
Jafnframt er verið að rann-
saka hvort ungur fuglabóndi sem
lést nýverið hafi verið með fugla-
flensu og grunur leikur á að átta
manns sem nú liggja á sjúkrahúsi
séu sýktir.
Í gær var búið að slátra
um 200.000 fuglum í kringum
Navapur og sögðust yfirvöld ætla
að slátra um 700.000 fuglum til
viðbótar. Tæplega fimmtíu fugla-
búgarðar verða tæmdir og haldið
lokuðum í þrjá mánuði. - smk
Þúsundum fugla slátrað:
Fuglaflensa á
Indlandi
HANI SKOÐAÐUR Indverskur dýralæknir
skoðar hana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Tveir ungir menn,
sextán og nítján ára gamlir, sem
grunaðir eru um að standa að
fíkniefnadreifingu eru í haldi lög-
reglunnar á Ísafirði.
Voru þeir úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til klukkan fjögur í dag
en grunsemdir eru um að fíkni-
efnunum er fundust á þeim hafi átt
að dreifa um alla Vestfirði. Í þágu
rannsóknar málsins er ekki gefið
upp hvert magnið er en nokkrir
aðrir hafa verið yfirheyrðir vegna
málsins. - aöe
Fíkniefnamál á Ísafirði:
Tveir í haldi
SVALBARÐI Utanríkisráðherra Nor-
egs, Jonas Gahr Støre, hinn danski
starfsbróðir hans Per Stig Møller
og Inuuteq Holm Olsen, fulltrúi
grænlensku heimastjórnarinnar,
undirrituðu í Kaupmannahöfn í
gær sáttmála um lögsögumörk á
hafsvæðinu á milli Svalbarða og
Grænlands.
Samkvæmt samkomulaginu
liggja lögsögumörkin eftir mið-
línu milli Svalbarða og Græn-
lands. Að miðlínureglan skuli
vera látin gilda í þessu tilviki
styrkir málstað Norðmanna í lög-
sögumarkadeilu sinni við Rússa
í Barentshafi, að því er segir í
Óslóarblaðinu Aftenposten. - aa
Lögsögumörk Svalbarða:
Miðlína gildir
við Grænland
SAMIÐ UM LÖGSÖGU Inuuteq Holm Olsen,
Per Stig Møller og Jonas Gahr Støre eftir
undirritunina í Kaupmannahöfn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Norðmenn veiddu
aðeins lítið brot af þeim loðnu-
kvóta sem þeim var úthlutað
samkvæmt Smugusamningunum.
Þeir eru hættir veiðum og farnir
af miðunum.
Samkvæmt samningum máttu
Norðmenn veiða 17.000 tonn af
íslenska loðnukvótanum auk
16.800 tonna sem þeir máttu veiða
vegna hlutdeildar í loðnustofn-
inum. Af þessum heildarkvóta
máttu þeir veiða 23.000 tonn í
íslenskri lögsögu en náðu aðeins
að veiða 2.200 tonn. 21.000 tonn-
um af kvóta þeirra hefur verið
skipt á milli íslenskra skipa. - shá
Loðnuveiðin árið 2006:
Lítil veiði hjá
Norðmönnum
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan eyði-
lagði skothylki sem hefðu getað
reynst mikilvæg sönnunargögn
í rannsókninni á morðinu á Olaf
Palme. Þetta kemur fram í nýrri
heimildarmynd sem sýnd verð-
ur á sænsku sjónvarpsstöðinni
SVT2 síðar í mánuðinum, en hinn
28. febrúar verða tuttugu ár liðin
frá því að sænski forsætisráð-
herrann þáverandi var skotinn
til bana fyrir utan kvikmynda-
hús í miðborg Stokkhólms.
Skothylkin fann lögregla fjór-
um mánuðum fyrir morðið heima
hjá kunningja Christer Petters-
son, sem var sterklega grunað-
ur um að hafa framið morðið
en fékkst ekki sakfelldur vegna
skorts á sönnunargögnum. Íbúð-
in er skammt frá morðstaðnum
og skothylkin voru af sömu sjald-
gæfu gerð og Palme var skotinn
með, Winchester .357 magnum.
Lögreglan fargaði skothylkjunum
þremur mánuðum eftir morðið.
Ingemar Krusell, sem stýrði
lögreglurannsókninni á morðinu
á sínum tíma, tjáði Expressen
að hann hefði fyrst núna frétt
af þessum skothylkjum, sem að
hans mati hefðu getað reynst
mikilvæg sönnunargögn í Palme-
málinu. - aa
MORÐSTAÐURINN Blóm á stéttinni þar sem
skotið var á Palme-hjónin seint að kvöldi
hins 28. febrúar 1986. NORDICPHOTOS/AFP
Nýjar upplýsingar í Palme-málinu tuttugu árum eftir morðið:
Gögnum eytt af misgáningi
STJÓRNMÁL Ragnar Sverrisson,
kaupmaður í JMJ á Akureyri,
hefur sent formanni kjörstjórnar
á Akureyri formlegt erindi þar
sem hann óskar
eftir listabók-
stafnum A
vegna sveitar-
stjórnarkosn-
inganna í vor.
„Ég og margir
aðrir hafa mikl-
ar áhyggjur af
því að uppbygg-
ing bæjarins,
og þá ekki síst
atvinnuuppbyggingin, gangi allt
of hægt. Bæjaryfirvöld þurfa að
hafa skýra framtíðarsýn í þeim
efnum og beita sér markvisst til
að gera hana að veruleika en á það
hefur skort,“ segir Ragnar.
Í erindinu sem Ragnar sendi
kjörstjórn kemur fram að hann
vinni að hugsanlegu framboði í vor
en endanleg ákvörðun þess efnis
hafi þó ekki verið tekin. - kk
Nýr framboðslisti á Akureyri:
Vilja láta
verkin tala
RAGNAR SVERRISSON
Sunneva Hafsteinsdóttir var ranglega
nefnd myndlistarmaður á bls. 20 í Fast-
eignablaði Fréttablaðsins í gær. Hún er
menntaður textílkennari en starfar sem
framkvæmdastjóri Handverks og hönn-
unar auk þess sem hún er bæjarfulltrúi
á Seltjarnarnesi.
LEIÐRÉTTING
FJÖLMIÐLAR Starfsmaður fyrirtæk-
isins Nýsis var einn þeirra manna
sem voru afhjúpaðir í fréttaskýr-
ingaþættinum Kompás á NFS um
barnaníðinga. Nýsir sendi í gær
frá sér yfirlýsingu vegna málsins
þar sem fram kemur að gengið
hafi verið frá starfslokum manns-
ins í kjölfar þáttarins.
Í þættinum, sem var á sunnu-
dagskvöldið, var tálbeita notuð
til að leggja gildru fyrir barna-
níðinga í þeim tilgangi að sýna hve
langt fullorðnir karlmenn væru
tilbúnir að ganga til að sænga hjá
barni. Tálbeitan var auglýsing
þrettán ára stúlku á einkamála-
vefsíðu sem sagðist vilja kynnast
eldri strákum og voru svarendur
á aldursbilinu sextán ára upp í
sjötugt. Samskiptin fóru fram á
netinu, í gegnum síma og svo voru
stefnumót samþykkt.
Í þættinum eru fjórir fullorðnir
menn sýndir sem koma til að hitta
tálbeituna með skýran tilgang í
huga að sögn þáttastjórnenda. Andlit
þeirra eru gerð óskýr en hægt er að
greina föt þeirra og í tilviki tveggja
þeirra má greina bílategund.
Kolbrún Sævarsdóttir saksókn-
ari segir í þættinum að lögreglu sé
óheimilt að nota tálbeitu í sínum
störfum nema sterkur grunur
leiki á að ákveðinn aðili sé að fara
að fremja alvarlegt brot. - sdg
JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON Ritstjóri
Kompáss tók í þættinum tvo menn tali
sem hugðust hitta tálbeituna.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fyrirtækið bregst við þætti Kompás á NFS um barnaníðinga:
Starfsmaður Nýsis rekinn
ALÞINGI Björgvin G. Sigurðsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
óskar eftir utandagskrárumræð-
um um heimildir lögreglu til að
nota tálbeitur. Lögregla á að fá
slíkar heimildir þar sem það fælir
níðinga frá því að leita uppi börn
að mati Björgvins sem býst við
að umræðurnar muni fara fram á
næstu dögum.
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
er ánægður með tillögu Björgvins
að umræðum en segir þetta jafn-
framt viðkvæmt mál vegna þess
slíkar heimildir, að ginna menn,
geta rekist á við hagsmuni ein-
staklinga, - sdg
Rýmkaðar heimildir lögreglu:
Leyfi til að
nota tálbeitu
FRÁ NORÐFJARÐARHÖFN Norðmenn náðu
aðeins að veiða tíu prósent af kvóta sínum.
Íslendingar veiða það sem út af stendur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA