Fréttablaðið - 21.02.2006, Side 20
[ ]
Arnaldur Birgir Konráðsson
hefur rekið líkamsræktarstöð-
ina Boot Camp ásamt félaga
sínum Róberti Traustasyni í
um það bil tvö ár. Stöðin fékk
strax mjög góðar viðtökur og
nú eru komnar Boot Camp-
stöðvar víða um land.
Arnaldur, sem hefur starfað sem
einkaþjálfari í nokkur ár, segir
að hugmyndin að Boot Camp hafi
kviknað eftir að hann kom heim
frá Suður-Afríku og Bretlandi þar
sem hann var á lífvarðanámskeið-
um. „Þegar ég kom heim kynntist
ég Róberti og við fórum að bera
saman bækur okkar og þróa þetta
saman. Fljótlega slógust fleiri í för
með okkur og smám saman vatt
þetta upp á sig,“ segir Arnaldur.
Í Boot Camp er boðið upp á sex
vikna námskeið sem eru ýmist
blönduð, sérstaklega fyrir konur
eða sérstaklega fyrir unglinga.
Arnaldur segir að námskeiðin
henti öllum, hvort sem þeir hafa
lagt stund á líkamsrækt eða ekki.
„Hver og einn tekur þetta bara á
sínu eigin tempói og einu kröfurn-
ar sem við gerum eru að hver og
einn leggi sig hundrað og fimmtíu
prósent fram. Það getur þýtt að
einn taki sér tíu pásur á meðan
annar tekur enga en markmiðið er
að allir fari jafn þreyttir út.“
Í Boot Camp er æfingaraðstaða
bæði inni og úti. „Við erum inni
alla virka daga en annan hvern
laugardag hittast allir hóparnir
utandyra og oft koma einstakling-
ar frá útibúunum hér í kring eins
og Selfossi, Akranesi og Keflavík
og það er svo bara mismunandi
hvað við erum að bardúsa. Með
hækkandi sól förum við líka að
vera meira úti á virkum dögum,“
segir Arnaldur.
Arnaldur segir að markmið-
ið í Boot Camp sé að engir tveir
tímar séu eins. „Oft keyrum við
sextíu mínútna tíma með einföld-
um æfingum þar sem við erum
bara að nota eigin líkama, svo
eru sextíu mínútna tímar þar sem
við erum bara í tækjum og sextíu
mínútna tímar þar sem við erum
bara í þreki.“ Hann segir að tím-
arnir gangi mikið út á samvinnu
og oft séu tveir eða fleiri að vinna
saman við ýmsar aðstæður. „Þetta
er svona eins og í hernum þar sem
fólk þarf að vinna saman og það
er enginn skilinn eftir, eins og við
segjum. Þetta er svona félagsleg
líkamsrækt og það er þessi sam-
vinna sem gerir þetta skemmti-
legt.“
emilia@frettabladid.is
Ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
þ
r
ír
3
60
.0
4
5
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet.is/heilsuhorn
��������������
����������� ������
��������������
������������������
����������� ������������������
Hjólreiðar eru góð alhliða hreyfing. Þegar veður er sæmilegt
getur verið gott að geyma bílinn heima og hjóla bara í vinnuna.
Æfingarnar eru ýmiss konar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Boot Camp hentar öllum aldurshópum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Enginn er skilinn eftir
Arnaldur Birgir Konráðsson fylgist með hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Allir gera sitt besta í Boot Camp. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1