Fréttablaðið - 21.02.2006, Side 38

Fréttablaðið - 21.02.2006, Side 38
 21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR26 Nýkrýndur sigurvegari Eurovision-keppninnar, Silvía Nótt, hefur verið studd dyggilega að undan- förnu af fjölmennum hópi fagmanna. Flestir eru þeir landsþekktar persónur sem eiga að baki farsælan feril og því deginum ljósara að árangur Silvíu bæði í sjónvarpinu og í Eurovision er engin tilviljun. Mikil baktjaldavinna hefur átt sér stað til að skapa þessa ógleymanlegu persónu, sem á vonandi eftir að gera okk- ur öll stolt í Aþenu í maí. NOKKRIR AF BAKHJÖRLUM SILVÍU NÓTTAR: BÚNINGAMEISTARI: Ásgrímur Már Friðriksson „Ég er búinn að þekkja Ágústu síðan ég var sautján ára og hef lánað henni dót í þættina eins og stóra demantshringinn. Þetta er frábært verkefni og maður er búinn að leyfa sér allt,“ segir Ásgrímur Már, sem hannaði búninga Silvíu og dansaranna á úrslitakvöldi Eurovision. Hann segir að búningurinn hennar Sil- víu hafi verið úr ýmsum efnum, meðal annars satíni, pólýester og spandexi, en búningurinn fyrir keppnina í Aþenu verði aftur á móti mun stærri og dramatískari. HÁRGREIÐSLUMEISTARI: Skjöldur Eyfjörð „Hún hafði uppi á mér og bauð mér þetta og ég gat eiginlega ekki sagt nei. Ég „droppaði“ nokkrum verkefnum sem ég var með því hún borgaði svo vel og maður segir ekki nei við peningum. Þetta er búið að vera yndislegt en líka erfitt á köflum því hún er svolítið kröfuhörð,“ segir Skjöldur, sem sér um hárið á Silvíu Nótt fyrir merkisviðburði eins og Eurovision og Edduna. DANSHÖFUNDUR: Selma Björnsdóttir „Ég, Ágústa Skúladóttir, Gauk- ur og Ágústa sjálf gerðum þetta í sameiningu,“ segir Selma um dansatriðið á Eurovision. „Við settumst niður og „brainstorm- uðum“ og úr varð þetta atriði.“ Selma aðstoðaði Silvíu jafnframt við sönginn í keppninni en Silvía fór eitt sinn í söngtíma til hennar í þætti sínum. UPPTÖKUSTJÓRI: Sölvi Blöndal „Þorvaldur bað mig um að vera upptökustjóri og þetta var svona samstarfsverkefni. Mér finnst Eurovision frekar leiðinlegt en þetta Eurovision var ágætt miðað við önnur,“ segir Sölvi, sem samdi líka stefið fyrir þátt Silvíu Nóttar. „Ég og Gaukur [Úlfars- son leikstjóri] erum aldavinir og við vinnum að öllu saman. Hann var mikið með okkur í Quarashi. Annars er Silvía náttúrlega brillj- ant, ég bara dýrka hana.“ Fleiri bakhjarlar Silvíu Silvía Nótt: Ágústa Eva Erlends- dóttir Leikarar: Björn Thors og Rúnar Freyr Leikmyndahönnuður: Finnbogi Erlendsson Leikstjóri: Gaukur Úlfarsson Lagahöfundur: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Framkvæmdastjóri Meistara alheimsins: Þórólfur Beck Fólkið á bak við Silvíu Nótt SILVÍA NÓTT Ágústa Eva Erlendsdóttir hefur farið á kostum í hlutverki Silvíu Nóttar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON SÖLVI BLÖNDAL Sölvi Blöndal samdi stefið fyrir þátt Silvíu Nóttar og stjórnaði upptök- um á lagi hennar fyrir Eurovision. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SELMA OG ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR Selma Björnsdóttir og Ágústa Skúladóttir, leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu, höfðu umsjón með sviðsframkomu Silvíu Nóttar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKJÖLDUR EYFJÖRÐ Sá um hárgreiðsluna á Silvíu Nótt fyrir lokakeppni Eurovision. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. ÁSGRÍMUR MÁR FRIÐRIKSSON Ásgrímur hefur þekkt Ágústu Evu Erlendsdóttur síðan hann var sautján ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þann 5. mars verða augu heimsbyggðarinnar á einum manni, þáttastjórnandanum Jon Stewart. Hann mun takast á við vandmeðfarið hlutverk, sennilega það erfiðasta sem nokkur uppistand- ari getur reynt við, en Stewart verður kynnir- inn á Óskarsverðlaunahátíðinni. Stewart fetar í fótspor gamanleikara á borð við Steve Martin, Billy Crystal og Johnny Carson en í samtali við AP-fréttastofuna er ekki að heyra á honum að stressið sé að yfirbuga hann. „Fyrir uppistand- ara er þetta svið sviðanna,“ sagði hann og er aug- ljóslega alveg óhræddur. „Ef ég ætti að fara að standa á brimbretti væri ég stressaður en þetta eru jú bara gamanmál.“ Stewart sagðist í sam- talinu hlakka allra mest til að nota baðherbergið sem Steve Martin var með og njóta „hressing- anna“ í græna herberginu. Þrátt fyrir að þátturinn hans, The Daily Show, sé rammpólitískur og hann taki oft stjórnmála- menn á beinið segir Stewart að fólk þurfi engu að kvíða. „Þegar ég tók að mér þetta starf varð ég að beygja mig undir hefðir og reglur akademíunnar,“ útskýrði Stewart, sem hefur nýtt sér slysaskot varaforset- ans Dick Cheney til hins ýtrasta. Stewart hlaut Emmy-verðlaunin fyrir þátt sinn og þakkaði David Letterman fyrir stuðningin. Margir muna eflaust eftir því þegar Letter- man hakkaði hvern stórleikarann á fætur öðrum í sig og lét Opruh Winfrey finna til tevatnsins. Hvort Stewart hefur í hyggju að feta í fótspor lærimeistara síns verður bara að koma í ljós. Stewart hlakkar til Óskarsins HVERGI SMEYKUR Jon Stewart er hvergi smeykur við að koma fram á Óskarnum og segist ætla að skilja pólitíkina eftir heima. Ert flú 13-16 ára? N‡tt og spennandi útlitsnámskei› fyrir ungt fólk Viltu læra allt sem skiptir máli um útlit, för›un og framkomu? För›unarskóli rifka b‡›ur nú ungu fólki á aldrinum 13-16 ára upp á námskei› flar sem kennd eru öll helstu grunn- atri›i för›unarfræ›i og framkomu. Kennt er einu sinni í viku og tekur hvert námskei› 8 vikur. Vörur frá Rifka og nám- skeiðsgögn eru innifalin í námskeiðsgjaldi. Munið Gjafabréfin, tilvalin fermingargjöf. Þátttakendur frá 10% afslátt í förðunarskóla rifka síðar meir. Skráning er hafin í síma 565-2300 eða skráðu þig á www.rifka.is Umhir›a hú›ar og handsnyrting Náttúruleg för›un Smoky för›un Ásetning og me›fer› brúnkukrema Stílisering og klæ›aval, litgreining Umhir›a hárs Framkoma og sjálfstyrking Um námskei›in sér fagfólk í fremstu rö›: Magnea Elínardóttir för›unarmeistari kennir og hefur umsjón me› námskei›i. Rán Reynisdóttir hárgrei›slumeistari á Feimu kennir me›fer› á hári og hárgrei›slu. Kristin Stefánsdóttir snyrti- og för›unarmeistari sér um umhir›u hú›ar og handa. Kolbrún Pálína för›unarmeistari og einkafljálfari kennir framkomu og sjálfstyrkingu. A›eins kr. 19.900!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.