Fréttablaðið - 21.02.2006, Qupperneq 46
21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FJÓRIR SPURÐIR SEXTÁN LIÐA ÚRSLIT MEISTARADEILDAR EVRÓPU HEFJAST Í KVÖLD
Fylgistu með Meistaradeildinni?
[ VEISTU SVAIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Eyþór Arnalds.
2 Gyanendra.
3 Michael Lockwood.
Esther Ír Steinarsdóttir sýnir ljós-
myndina Ástu í versluninni Aurum
í Bankastræti til þriðja mars.
Myndin, sem er af vinkonu
hennar, Ástu, er hluti af mynda-
röðinni Vinir þar sem Esther Ír
sýnir vini sína við uppáhaldsiðju
sína og í sínum uppáhaldslitum.
„Ég vann verkefni fyrir
nokkrum árum tengt litum í
myndum. Þetta voru einlitar
myndir þar sem ég var að spá
í orkustöðvar og ýmislegt í því
samhengi,“ segir Esther er hún er
spurð hvernig hún fékk hugmynd-
ina að verkinu. „Það virðast allir
eiga sinn uppáhaldslit og ég set
inn í þetta það sem manneskjan
gerir. Flestir tilheyra einhverri
starfsstétt eða telja sig vera eitt-
hvað ákveðið,“ segir hún.
Esther útskrifaðist sem vöru-
hönnuður frá Listaháskóla Íslands
vorið 2005 og hefur síðan þá unnið
sem ljósmyndari á Blaðinu.
Esther hefur aðeins lokið við
þessa einu mynd í nýju mynda-
röðinni. Segir hún að eftirvinnsl-
an sé mikil við hverja mynd auk
þess sem erfitt sé að finna einlitt
umhverfi. „Ég ætla að reyna að
klára þetta en ég veit ekki hvað
þær verða margar. Vonandi getur
maður sýnt þetta í heild þegar
þetta er allt komið,“ bætir hún
við. - fb
Allir eiga sinn uppáhaldslit
ÁSTA Verkið Ásta eftir
Esther Ír er til sýnis í
versluninni Aurum.
MYND/ESTHER ÍR
LÁRÉTT
2 suma 6 tveir eins 8 stykki 9 ástæð-
ur 11 samtök 12 ráðagerð 14 fífla-
gangur 16 bor 17 mas 18 æðri vera
20 guð 21 nabbi.
LÓÐRÉTT
1 dreifa 3 fyrirtæki 4 stappar 5
keyra 7 inniskór 10 bergtegund 13
þrep í stiga 15 áætlun 16 temja 19
tveir eins.
LAUSN
HRÓSIÐ
...fá Lúðvík og félagar úr Rott-
weilerhundunum fyrir hugmynd-
ina að nýjum sjónvarpsþætti á
Sirkus þar sem hiphop verður í
forgrunni.
LÁRÉTT: 2 ýmsa, 6 tt, 8 stk, 9 rök, 11
aa, 12 áform, 14 flipp, 16 al, 17 mal,
18 guð, 20 ra, 21 arða.
LÓÐRÉTT: 1 strá, 3 ms, 4 stampar, 5
aka, 7 töfflur, 10 kol, 13 rim, 15 plan,
16 aga, 19 ðð.
Ekki mikið
Nei, ekki geri ég það nú
mikið. Þarf maður ekki
að hafa Sýn til þess?
Ég kíki kannski á þetta
af og til en fylgist ekki
beinlínis með.
Bragi Skúlason, Baggalútsmaður.
Held með Eiði Smára
Já, ekki alveg hundrað
prósent kannski en ég
kíki á þetta af og til. Ég
held eiginlega bara með
Eiði Smára en samt ekk-
ert brjálað með Chelsea.
Mér finnst samt alltaf
gaman að horfa á góðan
fótbolta.
Kristín Ýr Bjarnadóttir, söngkona í
Snooze.
Ögurstund hjá Arsenal
Ég hef fylgst annað
slagið með í gegnum
tíðina en hef ekki verið
voða duglegur í ár. Ég
ætla samt að reyna að
fylgjast með mínum
mönnum í Arsenal, það
er ögurstund má segja.
Þetta er búin að vera
mögur tíð síðustu vikurnar og ég er
frekar vondaufur um að þeir klári þessa
keppni. Juventus, AC Milan og Barcelona
hljóta að teljast líklegust til þess.
Stefán Hilmarsson, söngvari Sálarinnar
hans Jóns míns.
Aðdáandi Manchester
United
Ég hef eiginlega ekkert
gert það núna. Ég fylgist
aðeins með þegar það
eru heimsmeistaramót
en ég er ekki mikið fyrir
Meistaradeildina. Ég fæ
samt reglulega fréttir um
Manchester United og Liverpool hjá
fjölskyldunni. Ég fór að verða aðdáandi
Manchester United bara til að bögga
fjölskyldumeðlimi sem eru miklir Liver-
pool-aðdáendur en það nær nú ekki
dýpra en það.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir leikkona
Sigurður Pálmason, sonur söngv-
arans landsfræga Pálma Gunn-
arssonar, hefur nýlokið upptökum
á myndbandi við lag sitt Dreamer
in the Morning sem hefur verið
spilað töluvert í útvarpinu að und-
anförnu.
Myndbandið var tekið að mestu
upp í Landmannalaugum og fjallar
um hermann, eins og þá sem komu
við sögu í Star Wars-myndunum,
sem er sendur til Íslands í kassa.
„Fólk á eftir að vera svolítið hissa
þegar það sér þetta myndband. Ég
pantaði „stormtrooper“-búning
frá Bandaríkjunum sem þurfti að
sníða á mig. Fólk stoppaði mikið
þegar við vorum að taka upp
myndbandið og við þurftum að
fela okkur því það hafði svo mikil
áhrif á tökurnar,“ segir Sigurður,
sem hefur verið mikill Star Wars-
aðdáandi frá unga aldri.
Sigurður, sem er 31 árs, er
að undirbúa sína fyrstu plötu og
segir að verkefnið hafi verið lengi
að komast í gang. „Ég ætlaði aldrei
að fara út í þennan bransa. Ég var
alinn upp við þetta en fannst ball-
bransinn aldrei neitt spennandi.
Ég hef verið að semja síðan ég var
polli, þrettán til fjórtán ára, en var
hálfpartinn ýtt út í þetta. Ég sló
til og það eru allir í fjölskyldunni
hrifnir af lögunum. Það er líka frá-
bært hvað nýja lagið hefur fengið
mikla spilun,“ segir Sigurður.
Hann segist hafa tekið upp
stanslaust síðastliðin tíu ár með
vini sínum Hlyni Jakobssyni. Eftir
að hafa geymt lögin ofan í skúffu í
gegnum árin segist Sigurður loks-
ins vera tilbúinn að stíga fram í
sviðsljósið.
Að sjálfsögðu fékk hann föður
sinn til að aðstoða sig, enda þaul-
vanur úr bransanum. Pálmi spil-
aði á bassa í nýja laginu og ætlar
jafnframt að hjálpa Sigurði að
koma ferlinum af stað. „Hann
hefur ofboðslega mikla trú á mér
en það var samt aldrei pressa frá
fjölskyldunni um að ég gæfi út.
Ég ólst upp við Nat King Cole og
Frank Sinatra á meðan vinirnir
voru að hlusta á Duran Duran og
Wham. Allir horfðu á mann sem
þennan nörd,“ segir Sigurður og
hlær.
Pálmi vonar að þetta nýja lag
Sigurðar sé byrjunin á skemmti-
legum ferli. „Ég er voðalega hress
með að hann sé að gera þetta
svona. Hann fer þessa leið mjög
skemmtilega finnst mér,“ segir
Pálmi. „Hann er góður lagasmið-
ur og fínn söngvari og ég hvet
hann áfram í því sem hann er að
gera,“ segir hann og er greinilega
afar stoltur af hinum bráðefnilega
syni sínum.
freyr@frettabladid.is
SIGURÐUR PÁLMASON: FETAR Í FÓTSPOR FÖÐURINS
Ætlaði aldrei í bransann
SIGURÐUR PÁLMASON Sonur Pálma
Gunnarssonar er að undirbúa sína
fyrstu plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leiðtogi framsóknarmanna í Reykja-vík, Björn Ingi Hrafnsson, hefur ekki
átt sjö dagana sæla að
undanförnu en á
heimasíðu sinni
síðastliðinn fimmtu-
dag sagðist hann vera
veikur. Á föstudag
ágerðist „flensan“ enn
frekar og að lokum var
Björn Ingi lagður
inn á Landspítal-
ann í Fossvogi þar
sem hann greindist
með lungnabólgu
og neyddist því frambjóðandinn til að
eyða Eurovision-helginni með læknum
og hjúkrunarfólki. Þótt Björn hafi ekki
getað notið þess að vera í partíi eða
heima fyrir á meðan Silvía Nótt söng sig
inn í hugi og hjörtu landsmanna finnst
Birni það eflaust enn súrara að geta
ekki farið með forsætisráðherranum til
Bretlands. Þar er nefnilega ráðgert að
hitta sjálfan Tony Blair og fara síðan á
leik Chelsea og Barcelona í Meistara-
deildinni. Björn Ingi verður því að bíta í
það súra epli að láta sér nægja að horfa
á úr fjarlægð heima á Fróni.
Úrslit Eurovision-keppninnar á laugar-daginn voru afdráttarlaus en eins og
flestum ætti að vera kunnugt vann Silvía
Nótt hana með miklum yfirburðum. Það
var reyndar nokkuð sem var fyrir fram
gefið að mati flestra spekinga en slakt
gengi Birgittu Haukdal kom flestum á
óvart. Söngkonan hefur átt
ótrúlegu fylgi að fagna
undanfarin ár og talaði
DV meðal annars um
einvígi aldarinnar. Birg-
ittu virðist þó eitthvað
vera að fatast flugið því
hún hafnaði ekki einu
sinni meðal þriggja
efstu og höfðu meðal
annars „smástirnin“
Friðrik Ómar og
Regína Ósk betur
gegn þessu ókrýnda
óskabarni þjóðarinnar.
Það virðist því sem
svo að íslenska þjóðin
hafi fengið nóg í bili
af góðu drottningunni sem er annáluð
fyrir hógværð og góðmennsku og kýs
í staðinn tilbúna persónu sem stendur
fyrir allt sem Birgitta Haukdal er ekki.
Kannski hefur þjóðarsálin tekið stökk-
breytingum á þeim þremur árum sem
liðin eru síðan Birgitta var kosin með
miklum yfirburðum? - fgg
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
Saman á djamminu
um helgina
JÓNÍNA BEN. OG SULLENBERGER
Í góðu formi í
afmælisveislu á NASA
2x10-lesið 20.2.2006 20:40 Page 1