Fréttablaðið - 05.03.2006, Page 10
10 5. mars 2006 SUNNUDAGUR
Ársfundur 2006
servíettur
dúkar
glaðlegir litir
fjölbreytileg mynstur
Halldór Sigdórsson
Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
R
V
62
04
Tilb
oð
mar
s 20
06
20%
afs
láttu
r af
LinS
tyle
serv
íettu
m o
g dú
kum
,
Fine
sse
WC
-pap
pír o
g
eldh
úsrú
llum
Glæsilegt yfirbragð við öll tækifæri
Lotus Professional pappírsvörur
FUGLAFLENSA, AP Ugg setti að gælu-
dýraeigendum víða um Evrópu
eftir að fuglaflensa af H5N1-
veiruafbrigðinu fannst í ketti á
eynni Rügen í Norðaustur-Þýska-
landi á þriðjudag. Þetta er í fyrsta
sinn sem flensan finnst í spendýri
í Evrópu og hafa þýsk yfirvöld
skipað fólki sem býr nærri sýkt-
um svæðum að halda köttum inni
og hafa hunda í ólum.
Hlébarðar, tígrisdýr og heimil-
iskettir hafa smitast áður af
fuglaflensu í Taílandi, enda éta
kattardýr fugla.
„Við vitum að spendýr geta
smitast af H5N1, en við vitum ekki
hvað það þýðir fyrir fólk,“ sagði
Maria Cheng sem starfar hjá
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og
bætti við að óvíst sé hvort kettir
geti smitað fólk af veirunni.
Vísindamenn telja að fólk sýk-
ist með því að að anda veirunni að
sér. En enn sem komið er virðist
hættan þó ekki ýkja mikil, að sögn
Paul Hunters, bresks faraldurs-
fræðings. Hann benti fréttamönn-
um breska ríkisútvarpsins á að þó
hundruð þúsundir manna hafi
handfjatlað sýkta fugla á helstu
smitsvæðunum í Asíu, þá hafi
færri en tvö hundruð manns sýkst
síðan árið 2003, samkvæmt tölum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
- smk
Fuglaflensa í ketti veldur gæludýraeigendum ótta:
Þýskum köttum
haldið inni við
FUGLAFLENSA Í KETTI Fjölmargir Þjóðverjar láta dýralækna nú skoða ketti sína, eftir að
fuglaflensa fannst í ketti á eynni Rügen. Þessi kisi í Bremen reyndist vera ósmitaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR „Það væri alveg takt-
laust að skoða það ekki alvarlega
að setja göng undir Vaðlaheiði á
samgönguáætlun þegar hún verð-
ur tekin til endurskoðunar í haust
í ljósi þess að þarna er hugsanlega
að skapast stórt atvinnusvæði,“
segir Guðmundur Hallvarðsson,
formaður samgöngunefndar.
„Við höfum átt gott samstarfs
við samgönguyfirvöld og erum
vongóðir um að hægt verði að hefj-
ast handa við gangagerð síðla árs
2007 með það fyrir augum að þau
verði tilbúin í lok árs 2010,“ segir
Pétur Þór Jónasson stjórnarfor-
maður Greiðrar leiðar. Fyrirtækið
var stofnað árið 2003 til að vinna
að gangagerðinni. Hann segir að
göngin yrðu rúmlega sjö kílómetr-
ar að lengd og myndu stytta leiðina
milli Húsavíkur og Akureyrar um
16 kílómetra. Kostnaður yrði rúm-
lega fimm milljarðar.
Rannsóknaboranir og rafseg-
ulmælingar hafa farið fram að
undanförnu og er niðurstöðu
þeirra rannsókna að vænta á
næstu dögum. Ekki náðist í sam-
gönguráðherra vegna málsins þar
sem hann er í útlöndum. - jse
Fyrirhuguð jarðgöng undir Vaðlaheiði:
Stefnt að opnun árið 2010
SJÚKRATRYGGINGAR Öryrkjabanda-
lag Íslands lýsir yfir stuðningi
við þau meginsjónarmið sem
fram koma í umdeildri skýrslu
sérfræðinga sjúkratrygginga-
sviðs Tryggingastofnunar um
réttlátari notendagjöld.
Framkvæmdastjórn banda-
lagsins hvetur Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra að skoða
skýrsluna með opnum huga og
hefja þegar í stað, á grundvelli
hennar, endurskoðun laga og
reglna í nánu samráði við heild-
arhagsmunasamtök öryrkja.
Þá lýsir Öryrkjabandalagið
sig reiðubúið að taka þátt í því
verkefni. ■
Öryrkjabandalagið:
Lýsir stuðningi
við skýrslu
SAMFÉLAGSMÁL Erlendum ríkis-
borgurum með lögheimili hér á
landi hefur fjölgað um rúm þrjú-
þúsund frá lokum ársins 2004 til
loka 2005 og er hlutfall þeirra nú
4,6 prósent. Þetta kemur fram í
árlegri samantekt Hagstofu
Íslands á íbúum eftir fæðingar-
landi. Hlutfall erlendra ríkisborg-
ara hér á landi er því orðið það
sama og í Noregi og litlu minna en
í Danmörku þar sem hlutfallið er
4,9 prósent og í Svíþjóð þar sem
það er 5,3 prósent.
Erlendir ríkisborgarar með
lögheimili hér voru í lok síðasta
árs 13.778 en árið þar áður 10.636.
Flestir þeirra eru frá Póllandi eða
3.221, næst flestir frá Danmörku,
903, en því næst frá Þýskalandi en
þeir eru 781 eða tíu fleiri en Fil-
ippseyingar sem verma fjórða
sætið.
Hlutfallið er hæst á Austur-
landi eða 17,6 prósent en næst-
hæst á Vestfjörðum þar sem það
er 6,2 prósent. Lægst er þetta hlut-
fall á Norðurlandi eystra en þar er
það 2,3 prósent. - jse
Hlutfall erlendra ríkisborgara með lögheimili hér:
Sama og í Noregi
RÚMENAR AÐ VINNU VIÐ HELLISHEIÐI-
SVIRKJUN Fjöldi erlendra ríkisborgara með
lögheimili hér á landi hefur þrefaldast
undanfarinn áratug og nú stöndum við
jafnfætis Norðmönnum í þessum efnum.
VAÐLAHEIÐARGÖNG Göng undir Vaðlaheiði
stytta leiðina milli Akureyrar og Húsavíkur
um 16 kílómetra. Sjálf göngin yrðu rúmir
sjö kílómetrar að lengd.
RÚMENAR VIÐ VINNU VIÐ HELLISHEIÐIS-
VIRKJUN Fjöldi erlendra ríkisborgara með
lögheimili hér á landi hefur þrefaldast
undanfarinn áratug og nú stöndum við
jafnfætis Norðmönnum í þessum efnum.
HEILAGUR FAÐIR Ungur drengur faðmar
Benedikt XVI páfa þétt að sér við upphaf
áheyrnar sem páfinn veitti um átta
þúsund Ítölum í sal Páls VI í Vatikaninu á
laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Akureyri
Ljósavatnsskarð
Víkurskarð
Vaðlaheiði
Eyjafjörður
Gangaleið