Fréttablaðið - 05.03.2006, Blaðsíða 36
ATVINNA
14 5. mars 2006 SUNNUDAGUR
Gagnheiði 28
IS-800 Selfoss
Iceland
Sími +354 480 1700
Fax +354 480 1701
JÁVERK er öflugt, metnaðarfullt og ört vaxandi verktakafyrirtæki á 14. starfsári. Starfsmenn eru
um 70 og verkefnastaða fyrirtækisins er traust næstu árin. Áætluð velta 2006 er 2,5 milljarðar.
Fyrirtækið hefur skrifstofur og verkefni á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Auk eigin verkefna á
undirbúningsstigi er fjöldi verkefna framundan, m.a. bíó- og keilusalir við Egilshöll, endurbætur
á Hótel Borg, viðbygging við sjúkrahús á Selfossi, sundlaug og íþróttahús að Borg í Grímsnesi
og leikskóli á Selfossi. Aðbúnaður og starfsumhverfi eru með því besta sem þekkist.
Starfsandi er góður og virkt starfsmannafélag stendur fyrir margskonar skemmtunum og
ferðalögum.
STARFSFÓLK ÓSKAST
Byggingaverkfræðingur/tæknifræðingur
Vegna mikilla verkefna framundan óskum við eftir að ráða byggingaverkfræðing eða
tæknifræðing til framtíðarstarfa.
Helstu verkefni:
Verkefnastjórnun
Innkaup og samningar við birgja, undirverktaka og verkkaupa
Kostnaðareftirlit, reikningsgerð og uppgjör verka
Tilboðsgerð
Allar nánari upplýsingar veita Gylfi í síma 860 1707 (gylfi@jav.is) og Guðmundur í síma
860 1730 (gbg@jav.is)
STJÓRNSÝSLU- & STARFSMANNASVIÐ
Stjórnsýslu- & starfsmannasvið vill ráða mannauðsráðgjafa
til starfa í öflugan hóp sérfræðinga á starfsmannaskrifstofu.
Starfsmannaskrifstofan hefur yfirumsjón með starfsmanna-
málum stofnana Reykjavíkurborgar, undirbýr stefnumörkun
á sviði mannauðsmála borgarinnar, veitir margvíslega
ráðgjöf og hefur eftirlit með framkvæmd starfsmannastef-
nunnar.
Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í mannauðs-
deild starfsmannaskrifstofunnar fyrir metnaðarfullan og
jákvæðan einstakling, sem er opinn fyrir tækifærum og
reiðubúinn að sýna frumkvæði í störfum.
Ábyrgðarsvið
• Ráðgjöf um starfsmannaval og ráðningar
• Ráðgjöf um starfsmannasamtöl, starfsþróunaráætlanir og
starfslokasamtöl
• Fræðsla á sviði áreitni-, eineltis- og vinnuumhverfismála
Önnur mikilvæg verkefni
• Þátttaka í ráðgjöf og fræðslu til lykilstarfsmanna um
mannauðsupplýsingakerfi borgarinnar (Oracle)
• Þátttaka við framkvæmd viðhorfskannana og
árangursmælinga í mannauðsmálum Reykjavíkurborgar
• Þátttaka í þróun og viðhaldi Innra nets – starfsmanna-
vefsíðu borgarinnar
• Reglubundin samvinna og ráðgjöf við starfsmannastjóra
sviða um mannauðsmál og framkvæmd starfsmanna-
stefnu
Menntunar og hæfniskröfur
• Krafa um háskólamenntun í mannauðsfræðum (HRM)
eða sambærilegt nám
• Æskileg reynsla af störfum við mannauðsmál og starfs-
mannastjórnun
• Áskilin góð færni í mannlegum samskiptum og tjáningu
• Krafa um sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og
metnað til að ná árangri í starfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Hallur Páll Jónsson, deildarstjóri mannauðsdeildar
starfsmannaskrifstofu, Stjórnsýslu- og starfsmannasviðs,
(hallur.pall.jonsson@reykjavik.is) í síma 411-4200.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en mánudaginn 10. mars
nk. Umsóknir skulu berast deildarstjóra mannauðsdeildar
eða á netfangið hallur.pall.jonsson@reykjavik.is, merkt
mannauðsráðgjafi.
Mannauðsráðgjafi
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á
heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar
og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
������������
����������
��� �
��������������
�������
����������
����
TÆKNITEIKNARI
Verkfræðistofan Hamraborg óskar eftir að ráða
tækniteiknara til starfa sem fyrst.
Góð þekking á autocad nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur Sævar Geirsson í síma
554 2200. Umsóknir sendist með tölvupósti
saevar@hamraborg.is
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn
á sviði þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum
minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á
menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á
grundvelli safnalaga nr. 106/2001 og þjóðminjalaga nr. 107/2001.
SÝNINGARGÆSLA OG UPPLÝSINGAGJÖF
Framtíðarstörf og afleysingarstörf
Þjóðminjasafn Íslands mun á komandi mánuðum ráða
starfsfólk í afleysingar-, sumar- og framtíðarstörf í
sýningarsali safnsins við sýningargæslu og upplýsingagjöf.
Starfssvið:
• Eftirlit og öryggisgæsla í sýningarsölum á opnunartíma
safnsins
• Upplýsingagjöf til safngesta
Hæfniskröfur:
• Athugull og röskur starfskraftur
• Góð tungumálakunnátta
• Góð framkoma, snyrtimennska og þjónustulund
• Áhugi á menningararfinum
Um hlutastörf er að ræða sem unnin eru eftir
vaktafyrirkomulagi.
Vetraropnunartími safnsins er 11-17 (lokað mánudögum)
(54% starf) en
sumaropnunartími 10-18 (opið alla daga) (70% starf).
Launakjör eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna, SFR. Nánari upplýsingar um störfin veitir
Anna Ásgeirsdóttir í s. 530-2200.
Umsóknarfrestur er til og með mánud. 13. mars.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, reynslu og
meðmælendur berist skrifstofu safnsins, Suðurgötu 41,
101 RVK.
Starfsmaður taki þátt í því að Þjóðminjasafn Íslands nái
markmiðum sínum sem vísinda-og þjónustustofnun. Starfsmaður
leggi áherslu á góða þjónustu og ráðgjöf, fagleg og ábyrg
vinnubrögð og jákvætt skapandi andrúmsloft á vinnustað.