Fréttablaðið - 05.03.2006, Side 24

Fréttablaðið - 05.03.2006, Side 24
[ ] Hjúkrunarfræðingar gera kröfu um sveigjanlegan vinnutíma eins og aðrir. Þeir vinna flestir vaktavinnu og eiga erfitt með að skreppa frá vinnu sinni eðli hennar vegna. Til að koma til móts við kröfur starfsfólks síns hafa stjórnendur LSH notað sérstakt vaktaáætlana- og vinnuskilakerfi sem fengið hefur nafnið VinnuStund. Kerfið er hannað af Skýrr fyrir Fjársýslu ríkisins og er notað víða, til dæmis af Flug- málastjórn, Vegagerðinni og Tollstjóraembættinu. Not- endur eru um 10.000 og mun þeim fjölga til muna er kerf- ið verður innleitt á vinnu- stöðum Reykjavíkurborgar. Hægt er að gera vakta- skema á hefðbundinn hátt með VinnuStund, en einnig er hægt að fara aðra leið sem í daglegu tali er kölluð vakt- aóskaleiðin. Hún virkar þannig að yfirmenn tilgreina þörf á starfsfólki og starfs- menn skila inn óskum um vaktir og frídaga. Þetta fer allt fram rafrænt gegnum internetið. Því næst býr kerfið sjálfkrafa til vakta- plan þannig að orðið er við óskum sem flestra um leið og farið er eftir settum regl- um kjarasamninga. Með þessu móti hafa starfsmenn meira að segja um vinnu- tíma sinn, gerð vaktaplana einfaldast og aðgangur að vinnuskýrslum og áætluðu vinnufyrirkomulagi batnar. Starfsfólk getur sniðið vakt- aplan að eigin þörfum, upp að vissu marki, og öðlast sveigjanleika sem áður fyrr var ómögulegur. Auðséð er að ekki er unnt að gera öllum til geðs alltaf. Þess vegna gefur kerfið hverjum starfsmanni punkta út frá því hversu oft hann hefur fengið óskir sínar upp- fylltar. Verði árekstur milli óska skoðar kerfið stöðu punktanna og veitir þeim starfsmanni sem oftar hefur þurft að sætta sig við mála- miðlun forgang. Kerfið hefur vakið mikla athygli þau tvö ár sem það hefur verið í notkun. Athygl- in hefur jafnvel náð út fyrir landsteinana en árangur af notkun kerfisins var kynnt á þingi hjúkrunarforstjóra í Evrópu við góðar undirtekt- ir. Mestu máli skiptir að hjúkrunarfræðingarnir sjálfir séu ánægðir með kerfið og geti nýtt sér kosti þess. „Við bjuggumst við að 30-40 prósent starfsfólks á hjúkrunardeildum myndu nýta sér vaktaóskaleiðina en samkvæmt könnun sem við gerðum í lok árs 2004 er sú tala 67 prósent,“ segir Elísa- bet Guðmundsdóttir, hjúkr- unarfræðingur á LSH og ein af umsjónarmönnum kerfis- ins. „Þetta fer langt fram úr vonum okkar og við erum mjög ánægð með móttökurn- ar. tryggvi@frettabladid.is Réttindi eða forréttindi? Nútíminn gerir kröfu um rétt til sveigjanlegs vinnutíma. Við viljum ráða hvenær við vinnum og hvernig. Á sumum vinnustöðum er erfitt að koma þessu við og á það sérstaklega við um vaktavinnu. Til eru starfsstéttir sem verða að standa vakt sína svo að hjól samfélagsins snúist óhindrað. Þar á meðal eru hjúkrunarfræðingar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi (LSH). Námskeið um um réttindi og skyldur ríkisstarfs- manna verður haldið á vegum Starfsmenntar Fræðsluseturs. Starfsmennt Fræðslusetur stendur fyrir námskeiði um réttindi og skyldur rík- isstarfsmanna. Meginvið- fangsefni námskeiðsins er að kynna hugmyndafræði og reglur ríkisins gagnvart starfsfólki, kynning á lögum um réttindi starfs- manna ríkisins ásamt því að fjallað verður um lög opinberra starfsmanna og ýmis ákvæði laga sem þá varða. Stefnt verður að því að þátttakendur námskeiðsins öðlist betri skilning á stöðu sinni sem ríkisstarfsmenn, þekki hvert þeir geti leitað réttar síns og hvar helstu upplýsingar um helstu álitamál má finna. Einnig verður þátttakendum gert ljóst samspil stefnu í ríkis- rekstri og þróunar í laga- ákvæðum og kjarasamn- ingum. Að auki verða kynnt starfsmannakerfi í öðrum löndum. Kennari á námskeiðinu er Guðmundur H. Guð- mundsson, sérfræðingur á starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Námskeiðið fer fram 13. mars. Félagsmenn aðildar- félaga Starfsmenntar geta sótt námskeiðið endur- gjaldslaust en aðrir þurfa að greiða fimm þúsund krónur. Réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum gera kröfu um sveigjanlegan vinnutíma í takt við nútímann. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Námskeið um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna hefur það að markmiði að upplýsa opinbera starfsmenn um réttindi þeirra og skyldur á vinnu- markaði. Borgarfjörður er að breyt- ast í frístundabyggð. Þeim jörðum fækkar ört á Vesturlandi sem hefðbund- inn búskapur er stundaður á. Í Stafholtstungum einum hefur kúabúum fækkað á einum áratug úr 20 niður í þrjú eða fjögur, að sögn Magnúsar Magnússonar, rit- stjóra Skessuhorns sem birti fróðlega grein um þetta efni nýlega. Hann segir þau bú sem eftir eru hins vegar hafa stækkað að meðaltali. Jarðir hafa selst nýlega í Borgar- byggð á hátt í hundrað millj- ónir hver og þá til annarra nota en búreksturs. Með þessu áframhaldi verður héraðið að risastórri frí- stundabyggð eftir nokkur ár. Kúabúum fækkar Kúabændum fækkar vegna hækk- andi verðs á landi. Ferilskrá er mikilvæg þegar sótt er um nýtt starf. Það borgar sig að setja allt sem talist getur góð reynsla á ferilskrána og eiga nokkur eintök af henni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.