Fréttablaðið - 05.03.2006, Qupperneq 46
ATVINNA
16 5. mars 2006 SUNNUDAGUR
Magnús Halldórsson hefur
starfað sem sundlaugar-
vörður í Árbæjarlaug í
hálft ár. Magnús útskrifað-
ist frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti í fyrra og tók til
starfa í Árbæjarlauginni í
lok síðasta sumars. „Þetta
starf er mjög rólegt og gott,
mér líkar mjög vel við
þessa vinnu. Þetta snýst
aðallega um að sitja í stól
og horfa á fólkið synda,
gæta þess að það fari sér
ekki að voða,“ segir Magn-
ús en helsta vandamálið
sem hann hefur þurft að
glíma við eru blóðnasir sem
ungir krakkar fá þegar þeir
eru með ærslagang í laug-
inni.
Að sögn Magnúsar fer
ekkert mjög mikið fyrir
hinum almenna íslenska
sundlaugagesti. „Fólk á það
þó til að mæta beint eftir
vinnu og vera nokkuð
pirrað og þreytt. Stundum
gleyma menn sundskýlun-
um sínum og þá reynum við
eftir fremsta megni að
bjarga því,“ segir Magnús
sem fór um daginn á nám-
skeið um hvernig aðstoða
eigi börn og unglinga.
„Fyrst þegar ég var að
byrja þá fannst mér nokk-
uð óþægilegt að vera innan
um alla þessa nekt. Menn
að koma til mín naktir og
rétta mér körfur, ég var
ekkert vanur því. Annars
snýst þessi vinna aðallega
um að vera mjög vel vak-
andi og vera öllu viðbúinn,“
segir Magnús en hans uppá-
halds viðskiptavinir eru
þeir sem mæta eldsnemma.
„Stundum þegar maður
mætir á morgnana fyrir
opnun eru menn sem bíða í
bílunum sínum eftir að
komast í sund, það er nokk-
uð sérstakt. Annars eru
þeir viðskiptavinir oftast
þeir allra almennilegustu.“
Vel á verði í
lauginni
Heldur hefur dregið úr
launamun breskra karla
og kvenna.
Þótt breskir karlar séu með
13 prósentum hærri laun að
meðaltali en breskar konur,
samkvæmt rannsókn frá hag-
stofunni þar í landi, þá hefur
heldur dregið saman með
kynjunum. Könnunin var
gerð í apríl á síðasta ári og
hún sýndi að launamunurinn
hafði minnkað um 1,5 pró-
sent á einu ári því árið 2004
mældist hann 14,5 prósent.
Miðað er við tímakaup fólks í
fullu starfi. Þegar borið er
saman tímakaup kvenna í
hlutastörfum og karla í full-
um störfum þá breikkar hins
vegar bilið og verður 40 pró-
sent. Lög um jöfn laun kynj-
anna tóku gildi í Bretlandi
árið 1975. Þá var 30 prósenta
munur á þeim. Árið 1998 var
launamunurinn kominn í 17,4
prósent en er núna 13 pró-
sent eins og áður sagði, svo
þróunin er í rétta átt þó að
hægt miði. Sjá www.vr.is.
Launamunur
minnkar í Bretlandi
Vinnueftirlitið uppfærði í
byrjun febrúar eyðublað
sem nota á til að tilkynna
vinnuslys.
Eyðublaðið hefur verið sam-
ræmt nýju slysaskráningar-
kerfi Vinnueftirlitsins en
hægt er að nálgast það hjá
aðal- og umdæmisskrifstof-
um vinnueftirlitsins og á
heimasíðu þess, www.vinnu-
eftirlit.is.
Vinnuslys eru óvæntir
atburðir í tengslum við
vinnu sem valda áverkum,
heilsutjóni eða dauða. Ef
vinnustaðir halda vinnu-
slysaskrá er auðveldara að
sjá í hvaða starfi og við
hvaða aðstæður vinnuslys
verða helst. Lögum sam-
kvæmt ber atvinnurekanda
að tilkynna um slys sem
valda dauða eða fjarveru
frá vinnu í einn dag auk
slysadagsins. Ef starfsmað-
ur hefur orðið fyrir varan-
legu heilsutjóni á að til-
kynna Vinnueftirlitinu um
það innan sólarhrings svo
unnt sé að gera vettvangs-
rannsókn. Einnig á að skila
inn skriflegri tilkynningu
um það áður en vika er liðin
og er eyðublaðið notað til
þess.
Ekki er lengur tekið við
eldri útgáfum af eyðublað-
inu.
Slys á að tilkynna
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Matreiðslumaður
Okkur vantar dugmikinn
matreiðslumann (sveinspróf í
matreiðslu) til framtíðarstarfa á
hótelið. Mjög fjölbreytt matreiðsla fer
fram hér á hótelinu. Upplýsingar gefur
Reynir í síma 444-4052 eða e-mail
reynirm@icehotel.is
Ritara vantar við
Sunnulækjarskóla á Selfossi
Starf skólaritara Sunnulækjarskóla á
Selfossi er laust til umsóknar.
Auk almennra ritarastarfa og símsvörunar sinnir
skólaritari fjölbreyttum verkefnum varðandi innkaup,
skráningu barna í ýmsa þjónustu, grunnvinnu
reikningagerðar, eftirlit með greiðslum og aðra
bókhaldstengda vinnu. Ritari veitir foreldrum,
nemendum og starfsmönnum skólans þjónustu.
Ritari þarf að hafa góða hæfni í samskiptum, góða
skipulagshæfileika, vera fær um að vinna sjálfstætt að
verkefnum og hafa þekkingu og reynslu af tölvuvinnu.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Birgir Edwald í
síma 480-5400 eða tölvupósti, birgir@sunnulaek.is.
Umsóknarfrestur er til 17. mars 2006.
Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist Sunnulækjarskóla, Norðurhólum 1 á Selfossi.
Skólastjóri
KÓPAVOGSBÆR
LAUS STÖRF
Félagsþjónusta Kópavogs:
• Aðstoð við heimilisstörf
• Félagsleg heimaþjónusta
• Starf á sambýli aldraðra Skjólbraut
• Störf við liðveislu
Íþróttamiðstöðin Versalir:
• Laugar/baðvarsla karla 100% starf
• Baðvarsla kvenna 100% starf
• Baðvarsla karla 85% starf
GRUNNSKÓLAR KÓPAVOGS:
Digranesskóli:
• Forfallakennari í 3 mánuði
Hjallaskóli:
• Danskennari
• Stundakennari í forföll
Kársnesskóli:
• Gangavörður/ræstir 50% starf
Kársnesskóli íþróttahús:
• Baðvarsla stúlkna
Kópavogsskóli:
• Íþróttakennari
Lindaskóli:
• Smíðakennari
Smáraskóli:
• Forfallakennari í stundakennslu
LEIKSKÓLAR KÓPAVOGS:
Álfaheiði:
• Matráður
Álfatún:
• Deildarstjóri, sérkennslustjóri,
leikskólakennari
Dalur:
• Leikskólakennari, matráður, starfs-
maður í eldhús, kennari í listaskála
Fagrabrekka:
• Sérkennslustjóri
Fífusalir:
• Deildarstjóri, leikskólasérkennari eða
þroskaþjálfi, ræsting
Grænatún:
• Leikskólakennari
Kópasteinn:
• Leikskólakennari v/sérkennslu á deild
Marbakki:
• Aðstoð í eldhús
Rjúpnahæð:
• Leikskólakennari
Smárahvammur:
• Leikskólasérkennari
KYNNIÐ YKKUR BETRI
KJÖR Í KÓPAVOGI
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
Íslenskukennsla á unglingastigi
Vegna forfalla vantar Réttarholtsskóla
íslenskukennara á unglingastig fram til vors.
Upplýsingar veita skólastjóri og
aðstoðarskólastjóri í síma 5532720
Magnús Halldórsson, sundlaugarvörður í Árbæjarlaug.
Er þörf á jafnrétti? var spurt á
íslenska kvennafrídaginn. Svarið
hlýtur að vera já.
Sé réttur búnaður notaður minnka
líkurnar á slysi.