Fréttablaðið - 22.03.2006, Side 24
MARKAÐURINN 22. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Ljóst er að starfsemi fjármála-
fyrirtækja hér stendur traustum
fótum, segja Samtök banka og
verðbréfafyrirtækja og benda
á að næmni lánveitinga fjár-
málakerfisins fyrir sveiflum
í íslenska hagkerfinu minnki
eftir því sem atvinnulífið verði
alþjóðlegra.
Samtökin tóku saman grein-
ingu á áhættu bankanna eftir því
hvort lán þeirra tengdust fyrir-
tækjum með tekjur í innlendri
eða erlendri mynt. „Niðurstaðan
sýnir að í hefðbundinni grein-
ingu væri erlend starfsemi
bankanna að meðaltali 35 til 74
prósent, eða 57 prósent að vegnu
meðaltali. Þegar tekið er tillit til
íslenskra fyrirtækja með starf-
semi erlendis er áhætta íslenska
bankakerfisins vegna erlendrar
starfsemi hins vegar að með-
altali á bilinu 62 til 84 prós-
nent. Þannig nemur raunveruleg
erlend áhætta að meðaltali fyrir
bankakerfið í heild 73 prósent-
um og innlend áhætta því aðeins
27 prósentum,“ segja samtökin.
„Skuldastöðu íslenska banka-
kerfisins ber því að meta í ljósi
mikillar alþjóðlegrar starfsemi
bankanna sjálfra sem og stærstu
viðskiptavina þeirra,” segja
Samtök banka og verðbréfa-
fyrirtækja og benda á að þjóð-
hagslegt gildi fjármálaþjónustu
hafi aukist verulega síðustu ár,
framlag til vergrar landsfram-
leiðslu hafi aukist úr um fjór-
um prósentum árið 1998 í um
átta prósent nú, sem sé jafnhátt
framlagi sjávarútvegs til lands-
framleiðslu. - óká
Innlend áhætta
er minnsti hlutinn
Heildaráhætta útlána bankanna er að stærstum
hluta tengd erlendri starfsemi og lánum.
Straumur-Burðarás er orð-
inn þriðji stærsti hluthaf-
inn í skipafélaginu Camillo
Eitzen (CECO) sem er
skráð í Kauphöllina í Osló.
Markaðsverð félagsins
er rétt um 27 milljarðar
króna þannig að fimm
prósenta hlutur Straums
er um 1,4 milljarða virði.
Camillo Eitzen hefur vaxið
hratt á síðustu misserum í kjöl-
far yfirtaka á öðrum félaögum.
Fyrirtækið skilaði fimm millj-
arða hagnaði á síðasta starfsári
og jókst hann um tæp 40 prósent
á milli ára. Tekjur félagsins námu
35 milljörðum króna á síðasta
ári sem var fimmtungs-
hækkun frá fyrra ári.
Félagið beinir starf-
semi sinni að gas- og efna-
iðnaði, gámaflutningum
og stundar auk þess víð-
tæka fjárfestingarstarf-
semi innan skipaiðnaðar-
ins. Sem dæmi um mikil
umsvif Camillo Eitzen
í yfirtökum og samrunum má
nefna að um næstu mánaðamót
sameinast renna dótturfélagið
TESMA Holding og Strömme í
eitt félag sem fær nafnið Eitzen
Maritime Service. Nýja félagið
verður að 55 prósentum hluta í
eigu CECO. - eþa
Kaupir í Camillo Eitzen
Fyrir aðalfund hátæknifyrir-
tækisins Flögu Group, sem er
skráð í Kauphöllina, liggur fyrir
tillaga að stjórnarmenn fái einn
Bandaríkjadal í laun fyrir störf
sín á síðasta ári. Einn dalur sam-
svarar um sjötíu krónum.
Aðalfundur fyrirtækisins er
haldinn á morgun, fimmtudag,
en fyrir honum liggur jafnframt
tillaga um að stjórnarlaun verði
600 þúsund krónur á þessu ári.
Hlutabréf í Flögu hafa lækkað um
fjörutíu prósent á einu ári. - eþa
Einn dalur á hvern haus
ÞÓRÐUR MÁR
JÓHANNESSON
FORSTJÓRI
S K I P T I N G Ú T L Á N A
Í S L E N S K U
V I Ð S K I P T A B A N K A N N A
■ Erlendir viðskiptamenn og innlendir
við skiptamenn með eignir í erlendri mynt.
■ Lán í íslenskum krónum.
27%
73%
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Á aðalfundi Verðbréfaþings hf. sem haldinn var 16.
mars kom fram að síðasta ár hefði verði metár í sögu
Kauphallar íslands. Verðbréfaþing er eignarhalds-
félag sem stofnað var sumarið 2002, en undir það
heyra Kauphöll Íslands hf. og Verðbréfaskráning
Íslands hf.
Bjarni Ármannsson, fráfarandi stjórnarformað-
ur Verðbréfaþings, upplýsti að hlutabréfaviðskipti
hefðu verið fyrir 1.202 milljarða króna, meiri en
nokkru sinni fyrr. Úrvalsvísitalan hækkaði um 65
prósent og sló með því fyrra met frá árinu 1996.
Þá var heildarvelta skuldabréfa sú næstmesta
frá upphafi, 1.322 milljarðar króna, og velta á
einum ársfjórðungi sú mesta frá byrjun, 507 millj-
arðar króna.
Kosin var ný stjórn Verðbréfaþings hf. Við stjórn-
arformennskunni tók Friðrik Jóhannsson, varafor-
maður er Ingólfur Helgason og ritari stjórnar Þorgeir
Eyjólfsson. Auk þeirra voru kosin í stjórn Tryggvi
Pálsson, Óttar Pálsson, Finnur Sveinbjörnsson,
Yngvi Örn Kristinsson, Halla Tómasdóttir og Gylfi
Magnússon. Varamenn eru Björgólfur Jóhannsson,
Jafet Ólafsson, Haukur Hafsteinsson, Tómas
Örn Kristinsson, Helgi Sigurðsson, Finnur Reyr
Stefánsson, Sævar Helgason, Ágúst H. Leósson og
Vilhjálmur Bjarnason. Samþykkt var á fundinum að
stjórnarmenn fengju greiddar fyrir setuna 60.000
krónur á mánuði og stjórnarformaður 120.000 krón-
ur. Varamenn fá greiddar 30.000 krónur fyrir hvern
fund sem þeir sitja. Auk Bjarna létu af stjórnarsetu
Þorkell Sigurjónsson og Ragnhildur Geirsdóttir.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup hallar innar,
segir stefnt að frekari vexti og að því að laða
til viðskipta fleiri erlend fyrirtæki og fjárfesta.
Meðal helstu verkefni sem fyrir liggja á þessu
ári segir hann vera frekari samhæfingu innlends
fjármálaumhverfis því sem algengast er erlendis
og stofnun lánamarkaðar með verðbréf í samstarfi
við Verðbréfaskráninguna og kauphallaraðila, sem
vænst sé að muni stuðla að auknum seljanleika
á markaðnum. Þá segir hann verið að hleypa af
stokkunum iSEC nýjum markaði fyrir smá og
millistór félög, auk þess sem áfram verði unnið að
því að efla NOREX-samstarfið og að styrkja sam-
starfið við Færeyjar. Hann segir nýrra skráninga
færeyskra félaga að vænta á næstu misserum.
Metár í sögu
Kauphallarinnar
Bjarni Ármannsson hefur látið af störfum sem stjórnar-
formaður Verðbréfaþings. Vænst er skráningar færeyskra
félaga í Kauphöll Íslands á árinu.
HORFT TIL FRAMTÍÐAR Bjarni Ármannsson, fráfarandi stjórn-
arformaður Verðbréfaþings hf., og Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands og framkvæmdastjóri Verðbréfaþings, horfa yfir
sviðið á aðalfundi Verðbréfaþings sem haldinn var á fimmtudaginn
var.
MARKAÐURINN/E.ÓL.
Launagreiðslur, auk bónusa og
fríðinda, til dr. Kára Stefánsson,
forstjóra Íslenskrar erfðagrein-
ingar, námu 63,3 milljónum króna
á síðasta ári, rúmri einni milljón
Bandaríkjadala.
Hækkuðu þau um meira
en helming frá árinu 2004 en
þessar upplýsingar koma fram
í ársskýrslu deCode genetics.
Hækkun milli ára er að miklu
leyti komin til vegna 300 þúsund
dala bónusgreiðslu.
Kári átti 5,6 prósenta hlut
í deCode Genetics um miðjan
febrúar, sem samsvarar tæpum
1,8 milljörðum króna að mark-
aðsvirði. Kári er fjórði stærsti
hluthafinn í deCode á eftir T.
Rowe Price Associates, sem er
stærsti hluthafinn með 12,6 pró-
sent, AXA Financial (6,6 prósent)
og SAPAC Corporation (5,9 pró-
sent). - eþa
DR. KÁRI STEFÁNSSON Þáði yfir 63 millj-
ónir í launagreiðslur frá deCode á síðasta
ári. Hann á hlutabréf fyrir 1,8 milljarða að
markaðsvirði.
deCode borgaði
Kára 63 milljónir
Forstjórinn á hlutabréf fyrir 1,8 milljarða króna.